12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 3. mars 2022
Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Ekkert lát var á sprengjárásum rússneska hersins á borgir í Úkraínu í nótt. Herinn situr um nokkrar borgir, þar á meðal Mariupol. Borgaryfirvöld segja að íbúar séu án rafmagns, vatns og hita.

Íslendingur í Austur-Úkraínu sem kaus að vera áfram í landinu þegar stríðið braust út segist ekki sjá eftir þeirri ákvörðun. Hann segir forréttindi að geta orðið að liði og hjálpað þeim sem minna mega sín.

Á annað hundrað manns sungu við rammgirta glugga rússneska sendiráðsins í morgun. Hópurinn vildi með söngnum sýna úkraínsku þjóðinni stuðning.

Einn er í haldi lögreglu grunaður um að hafa kveikt í húsi við Auðbrekku í Kópavogi í nótt. Fjórtán voru í húsinu en engan sakaði.

Komið hefur fyrir að barefli hafi verið beitt gegn eftirlitsmanni Matvælastofnunar við störf. Stofnunin kærði nýlega til lögreglu atvik þar sem veist var að starfsmanni.

Sóttvarnalæknir telur Íslendinga nálgast harðónæmi og að mögulega sé kórónuveirufaraldurinn í hámarki sem stendur.

Alþjóðanefnd fatlaðs íþróttafólks ákvað í morgun að Rússar og Hvít-Rússar fái ekki að kepppa á Vetrarólympíumótinu sem hefst á morgun. Í gær hafði nefndin hins vegar ákveðið að leyfa þeim að keppa.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,