Morgunútvarpið

Steraleikarnir,sérfræðingur í viðverustjórnun og umboðsmaður barna um börnin á Bifröst

Í dag fer fram ráðstefnan Framtíðin er heima mikilvæg skref fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu. Á meðal fyrirlesara eru Helga Dagný Sigurjónsdóttir hjá Icepharma Velferð og fjallar hún um mismunandi lausnir til aðstoða fólk heima og hvernig er hægt gera fólki kleift búa lengur heima með velferðartækni. En hvar standa Íslendingar í fjarheilbrigðislausnum miðað við til dæmis hin Norðurlöndin? Gætum við gert meira heima? Helga Dagný kíkti í Morgunútvarpið.

Það styttist í sveitarstjórnakosningarnar og það gera ráð fyrir því samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu verði eitt af stóru málunum á suðvesturhorni landsins í aðdraganda kosninga. Geir Finnson fyrrum varaborgarfulltrúi ritað áhugaverða grein sem birtist á Vísi í gær þar sem hann biðlaði til frambjóðenda þvert á flokka sýna kjósendum þá virðingu taka mið af greiningarvinnu séfræðinga í sínum málflutningi í stað þess ala á reiði og ótta. Geir kom til okkar og ræddi málin.

Í Morgunútvarpinu í gær viðraði Súsanna Björg Ástvaldsdóttir, yfirlæknir heilsugæslu á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, áhyggjur af því tungumálastefna Landspítalans ekki nægilega vel útfærð. Á Landspítalanum er stefnan hins vegar sögð bæði vel hugsuð og vel útfærð. Hún á ekki útiloka ráðningar á erlndum læknum og setur þær skyldur á starfsemina útvega starfsfólki góða íslenskukennslu. Ólafur Skúlason, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítalanum, er maðurinn á bakvið stefnuna og hann kom til okkar.

Í síðustu viku bárust þær fréttir Hafþór Júlíus Björnsson ætli taka þátt í hinum svokölluðu steraleikum, sem fara fram í Las Vegas í Bandaríkjunum í vor. Á Steraleikunum eru engin lyfjapróf en þar keppa íþróttamenn sem nota árangursbætandi efni fyrir opnum tjöldum í ýmsum íþróttagreinum. Birgir Sverrisson, framkvæmdastjóri Lyfjaeftirlits Íslands, segir ýmislegt bogið við mótið og hann mætti í spjall.

Reykjavíkurborg auglýsti á dögunum eftir sérfræðingi í viðverustjórnun og á hann vera hluti af teymi sem vinnur lægra veikindahlutfalli í borginni. Starfsfólk Reykjavíkurborgar hefur tekið fleiri veikindadaga siðustu þrjú ár en árin á undan. Auglýsingin vakti athygli meðal annars Snorra Mássonar varaformanns Miðflokksins sem gerði grín því þegar allir væru hættir mæta í vinnunna þá væri það eina í stöðunni ráða inn nýjan starfsmann og það sérfræðing. En hvað gerir sérfræðingur í viðverustjórnun ? Mental ráðgjöf hefur boðið stjórnendum upp á sækja námskeið í viðverustjórnun og Hilja Guðmundsdóttir sem þar starfar kom til okkar á eftir og fræddi okkur um það.

fyrir helgi ræddum við við Stefán Brodda Guðjónsson sveitarstjóra Borgarbyggðar. Ástæðan var langtímabúseta flóttafólks á Bifröst en í upphafi Úkraínustríðsins var gerður samningur milli ríkisins, sveitarfélagsins og Háskólans á Bifröst um koma á fót móttökustöð fyrir flóttamenn sem vara átti í þrjá mánuði. Skammtímaúrræðið er orðið langtímaúrræði og viðraði Stefán Broddi áhyggjur sínar af fólkinu sem þarna býr og þá sérstaklega áhyggjur sínar af öllum þeim fjölda barna sem þar dvelur. Börnin hafi lítið við vera og ekki tengjast jafnöldrum sínum og aðlagast íslensku samfélagi. En hver er staða þessara barna og hver eru réttindi þeirra. Salvör Nordal umboðsmaður barna kom til okkar.

Frumflutt

13. jan. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,