Hvar erum við núna?

Suðausturland

Í þessum þætti ferðumst við um Suðausturland, frá Reynisfjöru Höfn í Hornafirði! Frænkurnar, suðausturlandssérfræðingarnir og heimamennirnir í Hornafirði þær Elín Ósk og Ída Mekkín segja okkur frá lífinu þar og gefa okkur fullt af hugmyndum um hvað hægt er gera á svæðinu. Þjóðsaga þáttarins fjallar um eldsumbrot og jökulhlaup, Móðuharðindin og hvers vegna Katla, eldstöðin ógurlega, fékk það nafn! Ef þið hlustið vel gætuð þið fengið gott forskot í spurningakeppninni í lokin!

Frumflutt

11. júní 2020

Aðgengilegt til

4. júlí 2024
Hvar erum við núna?

Hvar erum við núna?

Spennum beltin og ferðumst hringinn með KrakkaRÚV! Stórskemmtilegir fjölskylduþættir fyrir ferðalanga á ferð um Ísland. Þjóðsögur og ævintýri, bílaleikir, fróðleiksmolar og sögur frá krökkum á öllum aldri. Í hverjum þætti er spurningakeppni þar sem kemur í ljós hvaða fjölskyldumeðlimur veit mest um Ísland...nú eða hlustaði best á þáttinn!

Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir og Jóhannes Ólafsson.

,