
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Um miðjan mánuðinn féll dómur Hæstarétti Íslands í máli sem Elva Björk Haraldsdóttir höfðaði Gegn tryggingafélaginu Verði. Málið getur haft fordæmisgildi fyrir námsmenn og efnaminna fólk sem lendir í slysum og þarf að fá vinnu- og tekjutap sitt bætt vegna örorku.
Með þessum dómi lýkur sjö ára ferli í lífi Elvu Bjarkar sem hófst eftir að hún hafði lent í bílslysi í Reykjavík. Ágreiningurinn í máli snerist um það hvort reikna ætti skaðabæturnar út frá lágmarkslaunum eða meðaltekjum tanntækna en Elva Björk var í því námi þegar slysið átti sér stað.
Nítján lögmenn hafa sent erindi um dóminn til dómsmálaráðherra þar sem þeir fara fara fram á að skaðabótalögum verði breytt i ljósi hans.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.