Svipmynd

Hreinn Friðfinnsson

Hreinn Friðfinnsson fæddist á í Dölum í febrúar 1943. Hann útskrifaðist frá Handíða- og myndlistaskóla Íslands 1960 og fluttist stuttu síðar til Amsterdam. Hann var einn af stofnendum SÚM hópsins og hefur oft verið kallaður einn af frumkvöðlum hugmyndalistar hér á landi. Hreinn vann með i8 gallerí hér á landi og fleiri galleríum víðsvegar um Evrópu, en hann sýndi reglulega vítt og breitt um heiminn. Hreinn var fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum 1993, árið 2000 voru honum veitt virtustu myndlistarverðlaun Finnlands, Ars Fennica verðlaunin, og fyrr í þessum mánuði féll heiðursviðurkenning Myndlistarráðs í skaut Hreins. Hreinn kvaddi þennan heim á hjúkrunarheimili í Amsterdam þann 6.mars síðastliðinn.

Viðmælendur í þættinum eru Hrafnhildur Helgadóttir, Sigurður Guðmundsson, Styrmir Örn Guðmundsson, Ragnheiður Gestsdóttir, Ólöf Kristín Sigurðardóttir, Emma Heiðarsdóttir og Börkur Arnarson.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Frumflutt

20. mars 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Svipmynd

Svipmynd

Listamenn koma með tónlist í farteskinu og rifja upp sögur úr lífi sínu, segja frá verkum, áhrifavöldum og andagift. Dregin er upp svipmynd vikulega í menningarþættinum Víðsjá á Rás1.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,