Svipmynd

Svipmynd af ljósmyndara: Pétur Thomsen

Pétur Thomsen kemur úr ljósmyndarafjölskyldu og vissi snemma hann vildi taka myndir. Það var á unglingsárunum sem hann uppgötvaði ljósmynd gæti verið myndlist, og hann gæti orðið listamaður. Á námsárunum í Frakklandi fylgdist hann með umræðunni um Kárahnjúkavirkjun úr fjarlægð og fann hann yrði taka þátt, á sinn hátt. Ljósmyndaserían Aðflutt landslag, sem er vitnisburður um framkvæmdirnar við virkjunina og hugleiðing um samband manns og náttúru, er sennilega hans þekktasta verk, verk sem hefur verið verðlaunað og ferðast víða um veröld. Pétur myndar fyrst og fremst landslag en segist eiga í flóknu sambandi við landslagsljósmyndum. Upphafning hins rómantíska landslags er honum fjarri. Það er frekar hið ægifagra með sínum undirliggjandi ótta sem hægt er tengja við fagurfræði hans. Pétur er Reykvíkingur en korter í hrun ákvað hann kaupa sér hús á Sólheimum í Grímsnesi þar sem hann býr í dag með fjölskyldu sinni. Þar er hann með sína vinnustofu og þar heldur hann úti útvarpsþætti ásamt þjónustuþegum á Sólheimum.

Frumflutt

25. okt. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Svipmynd

Svipmynd

Listamenn koma með tónlist í farteskinu og rifja upp sögur úr lífi sínu, segja frá verkum, áhrifavöldum og andagift. Dregin er upp svipmynd vikulega í menningarþættinum Víðsjá á Rás1.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,