Svipmynd

Svipmynd af rithöfundi: Kristín Ómarsdóttir

Kristín Ómarsdóttir hefur komið víða við á sínum rithöfundarferli. Skrifað skáldsögur, ljóð, leikrit, leikgerðir, smásögur og sýningartexta. Þá hefur hún einnig starfað sem blaðamaður og bókavörður. Teikningar Kristínar eru líka mörgum kunnar en nýlega var opnuð sýning á teikningum eftir hana í Gerðubergi og nefnist hún Sjáðu fegurð þína í höfuðið á ljóðabók sem Kristín gaf út árið 2008. Kristín hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir verk sín og hafa þau einnig komið út víða um heim. Fyrir þessi jól sendir Kristín frá sér skáldsöguna Móðurást: Oddný, bók sem fjallar um lífshlaup langaömmu hennar sem elst upp í Bræðratungu á 19. Öld í hópi hörkuduglegra og glaðsinna systkyna.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson

Frumflutt

22. nóv. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Svipmynd

Svipmynd

Listamenn koma með tónlist í farteskinu og rifja upp sögur úr lífi sínu, segja frá verkum, áhrifavöldum og andagift. Dregin er upp svipmynd vikulega í menningarþættinum Víðsjá á Rás1.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,