Svipmynd

Svipmynd af tónlistarmanni: Tómas R. Einarsson

Tómas R. Einarsson, kontrabassaleikari og tónskáld, hefur verið áberandi í íslensku tónlistarlífi svo áratugum skiptir. Tómas ólst upp á Laugum í Dalasýslu þar sem sund og bókmenntir áttu hug hans allan. Nokkru eftir menntaskóla lagði Tómas land undir fót. Ferðaðist með harmonikkunni í gegnum Barcelona og til Buenos Aires til komast í tæri við Tangótónlist. Hann hóf nám á kontrabassa 1978 og þvældist fiðluboginn sem hann var látinn leika með, og þjóðlögin sem fyrir hann voru sett, mikið fyrir, enda vildi hann helst toga úr hljóðfærinu blúsgang. Hann féll á prófi í Tónskóla Sigursveins en hélt samt áfram spila á hljóðfærið og rataði í sína fyrstu djasssveit árið 1980. Síðan þá hefur hann gefið út yfir 20 plötur með eigin tónsmíðum og hlotið fjölda viðurkenninga fyrir.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Frumflutt

6. des. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Svipmynd

Svipmynd

Listamenn koma með tónlist í farteskinu og rifja upp sögur úr lífi sínu, segja frá verkum, áhrifavöldum og andagift. Dregin er upp svipmynd vikulega í menningarþættinum Víðsjá á Rás1.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,