Svipmynd

Svipmynd af tónskáldi: Anna Þorvaldsdóttir

Anna Þorvaldsdóttir er meðal kunnustu tónskálda Íslands og ekkert minna en súperstjarna í heimi klassískrar tónlistar. Verk hennar eru flutt í bestu tónleikahúsum heims og margar af helstu hljómsveitum heims hafa pantað hjá henni verk. Tónverkum hennar hefur verið lýst sem einstökum innan samtímatónlistar og sköpunarkrafti hennar mætti auðveldlega líkja við einhverskonar náttúruafl. Anna býr í Surrey á Englandi en ferðast mikið til vera viðstödd flutning á tónlist sinni víðsvegar um heim.

Brot úr eftirtöldum verkum eru leikin í þættinum: Aion, Archora, Metacosmos, Sola og Catamorphosis.

Frumflutt

6. okt. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Svipmynd

Svipmynd

Listamenn koma með tónlist í farteskinu og rifja upp sögur úr lífi sínu, segja frá verkum, áhrifavöldum og andagift. Dregin er upp svipmynd vikulega í menningarþættinum Víðsjá á Rás1.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,