Svipmynd

Svipmynd af myndlistarmanni: Kristín Gunnlaugsdóttir

Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona er frá Akureyri en stundaði nám í Myndlista-og handíðaskólanum. Eftir útskrift fluttist hún til Rómar þar sem hún dvaldi í klaustir og lærði gylla og mála íkona. Hún bjó svo í nær áratug í Flórens þar sem hún stundaði framhaldsnám en flutti svo til Reykjavíkur.

Kristín er leitandi listamaður sem sífellt leitar nýrra leiða í sinni listsköpun. Hún fjallar jafnan um málefni samtímans með ævafornum aðferðum og eru til mynda íkonar hennar af þreyttum einstæðum mæðrum með Bónuspoka gott dæmi um það. Sýning hennar Sköpunarverk sem sett var upp í Listasafni Íslands 2013 var ákveðin vendipunktur á hennar ferli en þá var finna píku í hverju einasta verki. Hún segist hafa lítið selt af myndlist fyrstu árin eftir þá sýningu.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson

Frumflutt

29. nóv. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Svipmynd

Svipmynd

Listamenn koma með tónlist í farteskinu og rifja upp sögur úr lífi sínu, segja frá verkum, áhrifavöldum og andagift. Dregin er upp svipmynd vikulega í menningarþættinum Víðsjá á Rás1.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,