Nákvæm framkvæmd á nýju námsmati í grunnskólum liggur ekki fyrir fyrr en líður á veturinn segir skólastjóri í Garðaskóla. Skólastarfið er að hefjast.
Leiðtogar helstu vinaþjóða Úkraínu funda í Kyiv í dag. Sendiherra Íslands, sem tekur þátt í fundinum, segir mikilvægt að halda áfram stuðningi við Úkraínu. Markmið Rússa sé að valda sem mestum hryllingi.
Icelandair ætlar ekki að flytja störf úr landi vegna kaupa á Fly Play Europe, segir forstjóri Icelandair. Hann vonar að óánægja Félags íslenskra atvinnuflugmanna með kaupin auki ekki spennu í kjaraviðræðum.
Skýrslutöku af erlendum læknum í Reykholtsmálinu var frestað í dag þar sem túlki gekk illa að þýða það sem læknir sagði. Mögulegt er að aðalmeðferð lengist.
Þungur rekstur Sýnar undanfarið er ekki ástæða þess að viðræður slitnuðu um kaup Ása á fjölmiðlum félagsins, segir forstjóri Sýnar.
Hollenska sjónvarpsstöðin sem hefur síðustu ár sent framlag í Eurovision, ætlar að sniðganga keppnina annað árið í röð - því keppnin geti ekki lengur talist hlutlaus.
Stýrivaxtahækkun skilar sér hraðar í aukinni greiðslubyrði óverðtryggðra lána eftir að vaxtadómurinn féll í fyrra að sögn fjármálaráðgjafa. Greiðslubyrði af fjörutíu milljóna króna láni eykst að jafnaði um sjö þúsund krónur á mánuði.
Ríkið hefur samið við Heilsuvernd um að reka nýtt hjúkrunarheimili í Þursaholti á Akureyri. Forstjóri vonar aðframkvæmdir hefjist á næstu mánuðum.