Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 24. ágúst 2026

Nákvæm framkvæmd á nýju námsmati í grunnskólum liggur ekki fyrir fyrr en líður á veturinn segir skólastjóri í Garðaskóla. Skólastarfið er hefjast.

Leiðtogar helstu vinaþjóða Úkraínu funda í Kyiv í dag. Sendiherra Íslands, sem tekur þátt í fundinum, segir mikilvægt halda áfram stuðningi við Úkraínu. Markmið Rússa valda sem mestum hryllingi.

Icelandair ætlar ekki flytja störf úr landi vegna kaupa á Fly Play Europe, segir forstjóri Icelandair. Hann vonar óánægja Félags íslenskra atvinnuflugmanna með kaupin auki ekki spennu í kjaraviðræðum.

Skýrslutöku af erlendum læknum í Reykholtsmálinu var frestað í dag þar sem túlki gekk illa þýða það sem læknir sagði. Mögulegt er aðalmeðferð lengist.

Þungur rekstur Sýnar undanfarið er ekki ástæða þess viðræður slitnuðu um kaup Ása á fjölmiðlum félagsins, segir forstjóri Sýnar.

Hollenska sjónvarpsstöðin sem hefur síðustu ár sent framlag í Eurovision, ætlar sniðganga keppnina annað árið í röð - því keppnin geti ekki lengur talist hlutlaus.

Stýrivaxtahækkun skilar sér hraðar í aukinni greiðslubyrði óverðtryggðra lána eftir vaxtadómurinn féll í fyrra sögn fjármálaráðgjafa. Greiðslubyrði af fjörutíu milljóna króna láni eykst jafnaði um sjö þúsund krónur á mánuði.

Ríkið hefur samið við Heilsuvernd um reka nýtt hjúkrunarheimili í Þursaholti á Akureyri. Forstjóri vonar aðframkvæmdir hefjist á næstu mánuðum.

Birt

24. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,