Árið er

Árið er 1997

Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu.

Björk gerir Homogenic og hreppir tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs, Dr. Gunni heillar og hneikslar með Prumpufólkinu en Páll Óskar dansar sinn hinsta dans. Liðsmenn Lands og sona eru Vöðvastæltir, Skítamórall meikar það á sveitaballarúntinum, Maus ímeilar þig en Helgi Björns skrifar þér ljóð á kampavínstappa. Botnleðja hitar upp fyrir Blur, Gus Gus treður upp víðs vegar um heiminn en Unun sér rautt í útrásarmeiki.

Íslenska tónlistarárið 1997 er tekið fyrir í átjánda þættinum. Meðal viðmælenda eru Eggert Gíslason, Páll Óskar Hjálmtýsson, Hreimur Örn Heimisson, Heiðar Örn Kristjánsson, Haraldur Freyr Gíslasson, Barði Jóhannsson, Gunnar Lárus Hjálmarsson, Björk, Sjón, Sölvi Blöndal, Ragna Kjartansdóttir, Baldur Stefánsson, Jón Þór Birgisson, Ágúst Ævar Gunnarsson, Ragnhildur Gísladóttir, Gunnar Ólason, Herbert Viðarsson, Einar Ágúst Víðisson. o.fl.

Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.

Lagalisti:

Maus - Ég ímeila þig/(inn í) Kristalsnótt/Ungfrú orðadrepir

Helgi Björns - Ég skrifa þér ljóð á kampavínstappa

Páll Óskar - Minn hinsti dans

Emilíana Torrini - Perlur og svín

Elísa Newman?Það er komið

Talulla - Sykurpabbi

Greifarnir - Skiptir engu máli

Land & Synir - Beautyful life/Vöðvastæltur

Á móti sól - Djöfull er ég flottur

Rúnar Júlíusson - Ég ætla gera það sem ég vil/Keflavíkurnætur

Ellen Kristjáns - I Miss You Tonight

Botnleðja - My Biggest Hero

200.000 naglbítar - Hæð í húsi

Tristian - Hungur

Bang Gang - Svefn

Vinyll - Flókið einfalt

Unun - I see red/You Do Not Exist

Bubbi Morthens - Trúir þú á engla/Leiðin liggur heim

Björk - Joga/Bachelorette/Hunter/All Is Full Of Love

Quarashi - Catch 22/Fram og til baka

Subterranean - My Style Is Freaky

Dr. Gunni - Herra Rokk og fýlustrákurinn/Prumpufólkið

Megas - Hommage á TG

Páll Óskar - Sennilega það síðasta ...

Gus Gus - Gun

Nýdönsk - Klæddu þig

Björn Jörundur & Emilíana Torrini - Heaven Knows

Stolía - Broddgölturinn sítuðandi

Sigur Rós - Hún jörð

Bag Of Joys - Sveitasnakk

Ragga & The Jack Magic Orchestra - Fairy Godmother

Stefán Hilmarsson - Þau dönsuðu

Reggea On Ice - Ég vil

Sóldögg - Friður

Skítamórall - Skjóttu mig/Þú veist hvað ég meina mær

Soðin Fiðla - Grænn

Andhéri - Stundum veit ég ekki alveg hvar ég er

Woofer? - Græna Tréð

Curver - Þriðjudagur

KK - Ég vil sjá þig

Frumflutt

7. okt. 2023

Aðgengilegt til

14. okt. 2024
Árið er

Árið er

Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum. Í þáttunum er eitt ár í íslenskri dægurlagtónlistarasögu tekið fyrir í einu frá árinu 1980 til 2020. Umsjónarmenn: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.

Þættir

,