Árið er

Árið er 2009 - fyrsti hluti

Hjaltalín sópar til sín verðlaunum, Jóhanna Guðrún stelur senunni í Moskvu og Árstíðir syngja sig inn í hug og hjörtu þjóðarinnar. Söngfuglinn Nanna Bryndís Hilmarsdóttir kveður sér hljóðs og Margrét Kristín Sigurðardóttir fabúlerar í fjórða sinn á plötu. Helgi Hrafn Jónsson dundar sér í garðinum, það haustar hjá KK, Múm poppar sig upp og Leone Tinganelli er hálfur Íslendingur.

Fjallabræður hefja upp raust sína, Pascal Pinon dustar rykið af gömlu ævintýri og Berndsen kemur fram á sjónarsviðið. Mannakorn syngur yfir sokkinni þjóðarskútu, Morðingjarnir syngja manvísu, Todmobile er 25 ára og Stefán Hilmarsson þakkar fyrir sig. EGÓ snýr aftur í byltingargír, Stuðmenn syngja um ruglið, grasið grænkar hjá Milljónamæringunum Langa Sela og Skuggunum er drullukalt og Baggalútur segir þetta búið.

Í þáttunum, Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum, eru helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu.

Meðal viðmælenda í 38. þættinum, í fyrsta hluta umfjöllunar um íslenska tónlistarárið 2009, eru Högni Egilsson, Guðmundur Óskar Guðmundsson, Guðmundur Kristinn Jónsson, Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, Margrét Kristín Sigurðardóttir, Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, Brynjar Leifsson, Jófríður Ákadóttir, Ásthildur Ákadóttir, Kristín Ylfa Hólmgrímsdóttir, Daníel Auðunsson, Gunnar Már Jakobsson, Ragnar Ólafsson, Bubbi Morthens, Halldór Gunnar Pálsson, Magnús Eiríksson, Davíð Berndsen og Haukur Viðar Alfreðsson.

Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.

Lagalisti:

Hjaltalín - Suitcase Man

Múm - Sweet Impressions

Hjaltalín - Sweet Impressions

Hjaltalín - Feels Like Sugar

Hjaltalín - Hooked On Chili

Ingó - Undir regnboganum

Jóhanna Guðrún - Is It True

Fabúla - Monster

Fabúla - With His Eyes Closed

Nanna Bryndís (Songbird) - We’re Getting Older

Nanna Bryndís (Songbird) - Blueberry Mountain

Nanna Bryndís (Songbird) - Happy Song

Pascal Pinon - En þú varst ævintýr

Pascal Pinon - Sandur

Helgi Hrafn Jónsson - Digging Up A Tree

KK - Þá kom haustið

Sálin hans Jóns míns - Kominn tími til

Dönsk - Ég ætla brosa

Ívar Bjarklind - Nesti og nýir skór

Múm - Sing Along

Múm - Hullaballabalú

Árstíðir - Sunday Morning

Árstíðir - Með hallandi höfði

Árstíðir - Heiðin

Árstíðir - Látum okkur sjá

Egó - Kannski var bylting vorið 2009

Egó - Í hjarta mér

Egó - Fallegi lúserinn minn

Egó - Eyjan græna

Egó - Vonin er vinan mín

Todmobile - Ert ekkjað djókí mér?

Stuðmenn - Ruglið

Karl Olgeirsson & Milljónamæringarnir - Grasið grænkar

Leone Tinganelli - Hálfur Íslendingur

Baggalútur - Þetta er búið

Beggi Dan & Tryggvi Már Gunnarsson - Þegar þungar þrautir

Langi Seli og skuggarnir - Ryk og sól

Langi Seli og skuggarnir - Drullukalt

Fjallabræður - Tröllasöngur

Fjallabræður - Minni Færeyinga

Fjallabræður ásamt Magnúsi Þór - Freyja

Mannakorn - Þjóðarskútan

Mannakorn - Elska þig

Buff - Reyndu aftur

Berndsen - Lover in the dark

Berndsen - Supertime

Morðingjarnir - 81 (sé þig aldrei meir)

Morðingjarnir - Manvísa

Morðingjarnir - Sunnudagsmorgunn í Reykjavík

Bróðir Svartúlfs - Gullfalleg útgáfa af forljótum náunga

Stefán Hilmarsson - Þakka þér fyrir

Stefán Hilmarsson - Aldrei einn á ferð

Frumflutt

1. apríl 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Árið er

Árið er

Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum. Í þáttunum er eitt ár í íslenskri dægurlagtónlistarasögu tekið fyrir í einu frá árinu 1980 til 2020. Umsjónarmenn: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.

Þættir

,