Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínill vikunnar er SATT 3 sem kom út 1984.
Á áttunda áratug síðustu aldar risu deilur um svonefnd STEF-gjöld, sem innheimt voru af tónlist vegna flutnings í útvarpi. Ágreiningurinn sneri að því hvernig gjöldunum var skipt þegar kom að greiðslu til rétthafa og svo fór að árið 1979 voru stofnuð Samtök alþýðutónskálda og tónlistarmanna, skammstafað SATT, til að freista þess að auka hlut þeirra sem fengust við dægurtónlist. Einnig átti félagið að ýta undir tónleikahald og lifandi spilamennsku og koma upp félagsheimili tónlistarmanna.
Eitt af því sem samtökin gerðu til að safna fé til húsnæðiskaupa var að gefa út þrjár safnplötur árið 1984, SATT 1, 2 og 3, sem seldar voru saman á verði einnar plötu. Tónlistarmaðurinn Jóhann G. Jóhannsson, sem var einn af hvatamönnum stofnunar samtakanna, hafði umsjón með útgáfunni fyrir hönd SATT og fyrirtæki hans, Listamiðstöðin, annaðist dreifingu. Jóhann áritaði og tölusetti líka plöturnar sem gefnar voru út í þúsund eintökum.
Í vínil vikunnar fyrir tveimur vikum fékk fyrsta plata að hljóma, önnur platan í síðustu viku, en nú er komið að þriðju og síðustu plötunni, SATT 3.
Fyrsta lag A-hliðar plötunnar er Róbótinn með hljómsveitinni Grafík, lagið eftir sveitarmeðlimi en textinn eftir Helga Björnsson sem syngur lagið. Aðrir í sveitinni voru Rúnar Þórisson sem lék á gítar, Örn Jónsson á bassa og Rafn Jónsson á trommur. Það má geta þess að þetta er fyrsta lagið sem Helgi Björnsson söng inn á bandi sem meðlimur Grafíkur.
Þar næst kemur Tímabundið vonleysi með hljómsveitinni Qtzjí Qtzjí Qtzjí sem starfrækt var í Keflavík 1983 til 1985. Lagið er eftir hljómsveitina en texta orti Erpur Snær Hansen. Eðvarð Vilhjálmsson leikur á trommur, Einar Falur Ingólfsson á bassa, Sævar Ingimundarson á gítar og Jón Ben Einarsson syngur.
Lagið Henry er með hljómsveitinni Taktlazk. Ásgeir Baldursson, Aðalsteinn Gunnarsson og Atli Ingvarsson sömdu lagið, Unnar Stefánsson textann. Ásgeir leikur á gítar, Aðalsteinn á bassa og Atli á trommur, en Unnar syngur.
Sperglar er lag með Tappa Tíkarrassi, lagið eftir Tappann allan, en textinn eftir Björk Guðmundsdóttur. Björk Guðmundsdóttir syngur, Jakob Magnússon leikur á bassa, Eyjólfur Jóhannesson á gítar og Guðmundur Gunnarsson á trommur.
Lokalag A-hliðar er lagið Ég er aumingi með hljómsveitinni Þarmagustunum sem lentu í öðru sæti í Músíktilraunum SATT 1983. Pétur Jónsson og Ríkharður Flemming Jensen sömdu lagið. Á umslagi segir að texti lagsins sé eftir Stein Steinarr, en rétt mun að hann er eftir Þórberg Þórðarson. Pétur leikur á gítar, Kristján Hallur Leifsson á bassa, Ingólfur Örn Steingrímsson á gítar og Ríkharður á trommur. Þórhildur Þórhallsdóttir syngur.
Fyrsta lagið á B-hliðinni er Part með hljómsveitinni Með nöktum. Lagið eftir hljómsveitarmeðlimi en textinn eftir Magnús Guðmundsson forðum Þeysara. Hann syngur, Ágúst Karlsson leikur á gítar, Halldór Lárusson á slagverk, Birgir Mogensen á bassa og Helgi Pétursson á hljómborð.
Rugl kemur næst, lag með hljómsveitinni Byl. Leó Torfason samdi lagið og leikur á gítar, Jóhannes G. Snorrason leikur einnig á gítar, Ólafur Stolzenwald á bassa, Svavar Sigurðsson á hljómborð og Karl Jóhann á trommur.
Frankfurt '45 heitir lag með Bandi nútímans. Ævar Ögmundsson samdi lagið og Magnús Árni Magnússon textann. Magnús Árni syngur og leikur á hljómborð, Gunnar Ólafsson leikur á bassa, Ævar á gítar og Kristján Pétur Vilhelmsson á trommur.
Þá kemur lagið Peningar með Joð Ex. Hljómsveitarmenn semja lag og texta, en þeir eru Sigurjón Baldvinsson sem syngur., Kristinn Valgeir Einarsson sem leikur á trommur, Rögnvaldur Rögnvaldsson sem leikur á gítar og Steinþór Stefánsson sem leikur á bassa.
Lokalag B-hliðar er lagið 14.40 með hljómsveitinni Ást. Kristinn Jón Guðmundsson og Steinn Skaptason sömdu lag og texta. Hljómsveitina skipuðu þeir Kristinn Jón Guðmundsson, Steinn Skaptason, Trausti Júlíusson og Gunnar Lárus Hjálmarsson, en á þessari upptöku eru þeir einir Kristinn Jón og Steinn.

Tónleikurinn áskilur sér rétt til að fara í allar áttir, ákveðin tónskáld verða tekin fyrir í sumum þáttum, í öðrum eltir þáttastjórnandi ákveðnar tilfinningar, liti eða kenndir. Aðrir tónlistarmenn en tónskáld verða líka til umfjöllunar, flytjendur teknir tali og spurðir spjörunum úr. Einnig verður farið í ferðalög útfrá nöfnum og verkum tónskálda sem eru á dagskrá hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands eða á öðrum vettvangi þau skoðuð í víðu samhengi og leikin önnur verk eftir sömu tónskáld.
Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir
Fyrsta tónskáld vetrarins er Arvo Pärt enda ekki vanþörf á að tæma hugann og hefja veturinn með ró í sinni. Að því tilefni verður verk hans Tabula rasa burðarás þáttarins, en auk þess verða flutt verkin Magnificat fyrir blandaðan kór, Arbos fyrir málmblásarasveit og Orient Occident, fyrir strengjasveit, öll eftir Arvo Pärt.

frá Veðurstofu Íslands.
Hvaða hugmyndir höfum við um geðveikar mömmur? Hvers vegna breytast sum viðhorf en önnur ekki?
Þættir um mæður, geðsjúkdóma og sögurnar sem fjölskyldur segja – eða segja ekki.
Hera Guðmundsdóttir fléttar saman sögu langömmu sinnar sem send var á Klepp um miðja tuttugustu öldina, eigin reynslu af geðhvörfum og samtímasögur mæðra sem lifa með geðsjúkdómum: Sögur um móðurhlutverkið, skömm og þagnir en líka ást, nánd og nýjar raddir.
Dagskrárgerð: Hera Guðmundsdóttir
Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Hvernig höldum við að geðveikar mæður séu?
Í þessum þriðja og síðasta þætti veltir Hera fyrir sér hugmyndum um góðar og slæmar mæður. Hún heldur áfram leitinni að rödd langömmu sinnar og við heyrum fleiri sögur mæðra úr samtímanum: Sögur um fordóma og ótta en líka hreinskilni og von. Geta nýjar raddir breytt gömlum viðhorfum?
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson.
Í Vikulokunum í dag var rætt um fjárlög og kjaramál, fjölmiðlalandslagið og þær fréttir sem hafa snúist um börn og ungmenni í vikunni, aukna áfengisdrykkju, útivistartíma og annað.
Fyrsti hluti:
- Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra
Annar hluti:
- Birkir Karl Sigurðsson, stjórnandi hlaðvarpsins Chess after dark
- Eyrún Magnúsdóttir, ritstjóri Gímaldsins
- Oddur Ævar Gunnarsson, fréttamaður á Sýn
Þriðji hluti:
- Erlingur Sigvaldason, frístundaráðgjafi og kennaranemi
- Árni Guðmundsson, sérfræðingur í æskulýðsmálum
- Þóranna Rósa Ólafsdóttir, skólastjóri Rimaskóla

Tónlist héðan og þaðan
Útvarpsfréttir.
Fjármálaráðherra segir ekki koma til greina að stíga inn í kjarasamninga á kostnað hallalausra fjárlaga – þau séu mikilvægasta aðgerð ríkisins til að draga úr vöxtum og verðbólgu.
Tveir af helstu erindrekum Bandaríkjaforseta eru komnir til Moskvu til að ræða áætlun um hvernig eigi að ljúka innrásarstríði Rússa í Úkraínu. Þeir eiga svo að fara til Úkraínu á morgun.
Yfir 40 þúsund íbúar á höfuðborgarsvæðinu urðu rafmagnslausir í rúma klukkustund í gærkvöld. Í Mjóafirði hefur verið fjarskiptalaust í rúman sólarhring vegna bilunar í ljósleiðara.
Svartklæddir mótmælendur með lambhúshettur mótmæltu komu flóttafólks til Bretlands með því að loka fyrir umferð til og frá höfninni í Dover í morgun. Margra kílómetra langar bílaraðir mynduðust.
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti með yfirgnæfandi meirihluta að hætta notkun svokallaðs Mercator-heimskorts og taka upp annað -- sem sýnir stærð ríkja í réttu hlutfalli.
Norska hirðin segir allt að sjö klukkustunda bið sé eftir því að votta Haraldi Noregskonungi virðingu sína. Röðin nær um kílómetra frá kapellunni.
Hótel- og matvælaskólinn fagnar þrjátíu ára afmæli í í dag, með alls kyns matarkynningum, kleinuhringjakeppni, þrautabraut fyrir þjóna og fleiru. Við kíkjum í veisluna í fréttatímanum.
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Það gekk á ýmsu í úkraínskum stjórnmálum í sumar. Mótmæli brutust út þegar varnarmálaráðherranum, sem naut mikilla vinsælda, var vikið úr embætti. Síðsumars ruggaði hann bátnum allhressilega þegar hann sendi frá sér myndband þar sem hann lagði til að efnt yrði til kosninga. Bannað er að halda kosningar samkvæmt herlögum sem hafa gilt síðan Rússlandsher hóf allsherjarinnrás 2022. Þá hafa orðið vendingar í spillingarmáli sem virðist teygja sig alla leið inn á skrifstofu forseta landsins, Volodymyrs Zelenskýs. Dagný Hulda Erlendsdóttir fer yfir stöðuna í úkraínskum stjórnmálum.
Þau Birta og Bjarni Pétur fara svo yfir nokkrar af helstu fréttum sumarsins. Þar kemur meðal annars við sögu fatastíll Georgiu Meloni, tónlistarsmekkur Andy Brunham, frændsystkinin Margrét Þórhildur og Karl Gústaf og fleira.
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Eftir að hafa stundað tónlistarnám fram á unglingsár lagði Fanný Hrund Þorsteinsdóttir tónlistina á hilluna um hríð og fór að læra hjúkrun. Tónlistin togaði þó alltaf í hana og þegar færi gafst tók hún upp þráinn og sneri sér að tónsmíðaforritun.
Lagalisti (allt óútgefið:
Claymo
Collider Bounce
Granapríl
Blálok
Metacolor
Drekafræ
Stjórnendur Lestarinnar, þau Lóa og Kristján, kryfja popplög með Friðriki Margrétar Guðmundssyni, tónskáldi, tónlistarmanni og poppmeinafræðingi.
Harry Styles byrjaði í strákahljómsveitinni One Direction en hefur þróast og þroskast á fjórum sólóplötum. Nýlega gaf hann út plötu með athyglisvert nafn: Kiss all the time. Disco, occasionally. Í popplagakrufningunni í þetta skiptið ætlum við fara í saumana á laginu American Girls.
Í þættinum fær Sverrir Norland til sín skemmtilega gesti sem endurhugsa með honum heiminn.
Gestir þáttarins eru Vilhjálmur Árnason prófessor í heimspeki, Nanna Hlín Halldórsdóttir nýdoktor og Hrefna Óskarsdóttir, sviðssjóri iðjuþjálfunar í verkjateyminu á Reykjalundi.
Rætt er um vinnustaðinn og vinnumenningu í samhengi við „verðleikasamfélagið“ og förum á heimspekilegar nótur. Hvernig metum við gildi manneskju? Hvers vegna eru svo margir í eilífu kapphlaupi, keyra sig út og klessa jafnvel á vegg?
Umsjón: Sverrir Norland.
Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Við týnumst í New York með Holden Caulfield í þætti dagsins. The Catcher in the Rye eftir J.D. Salinger er 75 ára í ár. Skáldsögunni fylgir ákveðinn sögulegur baggi, ára og sögusagnir, allt að því samsæriskenningar. Í heimalandinu Bandaríkjunum hefur bókin sums staðar verið blátt áfram bönnuð. Þetta uppsafnaða umtal hefur gert það að verkum að viðtökusaga bókarinnar er einn þyngsti hluti hennar sem litar afstöðu allra lesenda og verðandi lesenda. Og það er eins og það sé ekki hægt að ræða hana of mikið.
Hún fyrst út í hlutum á árunum 1945-1946 en heildarútgáfan kom út hjá Little, Brown and Company sumarið 1951. Hún hefur verið þýdd á fjölmörg tungumál og selst ár hvert í um það bil milljón eintökum, sem líklega skýrist af því að hún er víða kennsluefni í ensku, þar á meðal hér á Íslandi. Flosi Ólafsson þýddi verkið árið 1975 og heitir Bjargvætturinn í grasinu.
Viðmælendur: Hjálmar Sveinsson, Pétur Már Sigurjónsson og nafnlaus ritlistarnemi.
Leikin er tónlist með Thelonious Monk, Eyþóri Gunnarssyni og brot úr útvarpsþættinum Segið aldrei neinum frá neinu (2009) og upplestri Elíasar Mar á Vögguvísu frá 1974.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Pétur Grétarsson ræðir við Oddrúnu Lilju Jónsdóttur gítarleikara og tónsmið sem býr og starfar í Noregi, þar sem hún hljóðritar fjölbreytta tónlist sína hjá Jazzland Recordings, sem var stofnað af Bugge Wesseltoft fyrir margt löngu. Oddrún Lilja var hér á landi til að spila á Djasshátíð Reykjavíkur og rifja upp íslenskuna sem hún lærði þegar hún dvaldi eitt ár hér á landi og tók sjöunda bekkinn i grunnskóla.
Tónlistin í þættinum er öll eftir Oddrúnu Lilju:
Muna - af samnefndri plötu 2026
Lilja - Muna 2026
Paris - Marble 2020
Tyr - Marble 2020
Nobody knows - Muna 2026

Fréttir
Ár er liðið frá innrás Rússa í Úkraínu. Hvernig tölum við um Rússland og hinn slavneska heim í kjölfar þessara voveiflegu atburða? Eigum við að slaufa rússneskri menningu eða þvert á móti faðma hana að okkur fastar en nokkru sinni fyrr í von um að ná áttum í heimi sem stendur á krossgötum? Kaldastríðsbarn og lúsugur Rússlandsfari kafar ofan í þessar hábölvuðu spurningar með hjálp sérfróðra.
Umsjón: Gunnar Þorri Pétursson.
Í níunda þætti RÚS er viðmælandi Gunnarr Þorra Péturssonar Árni Bergmann rithöfundur.
Í lok þáttarins syngur Feodor Chaliapin aríu Igors úr Igor fursta eftir Alexander Borodin.
Ár er liðið frá innrás Rússa í Úkraínu. Hvernig tölum við um Rússland og hinn slavneska heim í kjölfar þessara voveiflegu atburða? Eigum við að slaufa rússneskri menningu eða þvert á móti faðma hana að okkur fastar en nokkru sinni fyrr í von um að ná áttum í heimi sem stendur á krossgötum? Kaldastríðsbarn og lúsugur Rússlandsfari kafar ofan í þessar hábölvuðu spurningar með hjálp sérfróðra.
Umsjón: Gunnar Þorri Pétursson.
Guðni Tómasson veitti aðstoð við dagskrárgerð og samsetningu.

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Jónatan Garðarsson valdi.
Söngkonan Dakota Staton syngur lögin Body And Soul, I'm Just A Lucky So And So, Ain't No Use, I Can't Quit You Babe, Cold Cold Feeling, Mean To Me, The Thrill Is Gone og I Cover The Waterfront. Kvartett Mark Whitfield leikur lögin Girl Talk, Mr. Syms, Berkshire Blues, Ba-lue Bolivar Ba-lues-are, The Mystery Of Love Everlasting, Blues For David Alexander og John And Mary. Kvartett Dexters Gordon leikur lögin Boston Bernie, Fried Bananas, Sticky Wicked og Lady Bird.
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir, Atli Sigþórsson og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Þáttur um íslenskt mál og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir.
Bæjarfógetinn í Reykjavík hafði í nægu að snúast við að selja eigur skuldara á uppboði á árunum í kringum aldamótin 1900. Uppboðin voru auglýst í blöðum og þar voru gjarnan taldir upp helstu munir úr innbúum sem þar yrðu seldir svo sem sófar og kommóður, skatthol og skammel, servantar og púff. Fjallað var um ýmis húsgagnaheiti og grennslast fyrir um uppruna þeirra.
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Axel Ingi Árnason, segir frá sínu uppáhalds tónverki.
John Williams stjórnað flutningi Berlínar fílharmóníunnar á eigin verki; Olympic theme and fanfare. Hljómsveitin leikur auk þess Svítu úr kvikmyndinni Far and Away, eftir sama tónskáld.

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar.
Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.


frá Veðurstofu Íslands
Í Litlu flugunni er leikin tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Þátturinn hefst á Tango in Moonlight með Terry Schninder All Stars. Aðrir flytjendur eru m.a. Three Suns, Don Marino Barreto, Ragnar Bjarnason og Sigrún Jónsdóttir ásamt KK sextetti og Alfreð Clausen. Þátturinn var fyrst á dagskrá 13. október 2005
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson.
Í Vikulokunum í dag var rætt um fjárlög og kjaramál, fjölmiðlalandslagið og þær fréttir sem hafa snúist um börn og ungmenni í vikunni, aukna áfengisdrykkju, útivistartíma og annað.
Fyrsti hluti:
- Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra
Annar hluti:
- Birkir Karl Sigurðsson, stjórnandi hlaðvarpsins Chess after dark
- Eyrún Magnúsdóttir, ritstjóri Gímaldsins
- Oddur Ævar Gunnarsson, fréttamaður á Sýn
Þriðji hluti:
- Erlingur Sigvaldason, frístundaráðgjafi og kennaranemi
- Árni Guðmundsson, sérfræðingur í æskulýðsmálum
- Þóranna Rósa Ólafsdóttir, skólastjóri Rimaskóla

Útvarpsfréttir.
Í Þú veist betur eru engin umræðuefni of lítil eða of stór. Í meira en 100 þáttum höfum við skoðað allt frá skammtafræði, eldgosum og kjarnorku yfir í ketti, bjór, laxeldi, talmeinafræði, hunda, lungun og landnám Íslands. Og svona mætti lengi telja.
Þættir á mannamáli fyrir forvitna sem vilja skilja heiminn betur, hvort sem það snýst um vísindi, samfélag, líkamann eða söguna.
Umsjón: Atli Már Steinarsson.
Hvað er kapítalismi í raun og hvers vegna er svo erfitt að tala um hann án þess að taka pólitíska afstöðu? Í þessum þætti kemur Gylfi Magnússon hagfræðiprófessor til að rekja sögu kerfisins sem mótar daglegt líf okkar. Frá Adam Smith og iðnbyltingunni, í gegnum kommúnismann sem reis upp sem andsvar, og baráttuna gegn auðhringjum eins og Standard Oil í upphafi 20. aldar. Gylfi fer yfir hvernig Ísland og Vesturlönd endaðu með blandað hagkerfi kapítalisma ásamt velferðarkerfi og í lokin ræðum við áhyggjuefni nútímans, vald risafyrirtækja yfir samfélagsumræðunni, takmarkaðar auðlindir jarðar, og hvort kerfið sem við búum við í dag eigi sér framtíð.
Umsjón: Atli Már Steinarsson
Viðmælandi: Gylfi Magnússon

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.
Bergur Ebbi Benediktsson hefur sent frá sér nýja bók um Öld ímyndunaraflsins og hann kom í Fimmu hjá Felix og ræddi fimm tölvur sem höfðu áhrif á líf hans og fjölskyldunnar. Spjallið fór eins og vera ber um víðan völl og við sögu komu ýmis ævintýri á magnaðri ævi.
Í síðari hlutanum minntist umsjónarmaður látinna snillinga, Dolly Parton, Tim Curry og Freddy Mercury en hann hefði orðið áttræður í dag. Að auki koma Harpa Þorvaldsdóttir úr hljómsveitinni Brek í spjall með nýtt lag undir hendinni
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson.
Í Vikulokunum í dag var rætt um fjárlög og kjaramál, fjölmiðlalandslagið og þær fréttir sem hafa snúist um börn og ungmenni í vikunni, aukna áfengisdrykkju, útivistartíma og annað.
Fyrsti hluti:
- Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra
Annar hluti:
- Birkir Karl Sigurðsson, stjórnandi hlaðvarpsins Chess after dark
- Eyrún Magnúsdóttir, ritstjóri Gímaldsins
- Oddur Ævar Gunnarsson, fréttamaður á Sýn
Þriðji hluti:
- Erlingur Sigvaldason, frístundaráðgjafi og kennaranemi
- Árni Guðmundsson, sérfræðingur í æskulýðsmálum
- Þóranna Rósa Ólafsdóttir, skólastjóri Rimaskóla
Útvarpsfréttir.
Fjármálaráðherra segir ekki koma til greina að stíga inn í kjarasamninga á kostnað hallalausra fjárlaga – þau séu mikilvægasta aðgerð ríkisins til að draga úr vöxtum og verðbólgu.
Tveir af helstu erindrekum Bandaríkjaforseta eru komnir til Moskvu til að ræða áætlun um hvernig eigi að ljúka innrásarstríði Rússa í Úkraínu. Þeir eiga svo að fara til Úkraínu á morgun.
Yfir 40 þúsund íbúar á höfuðborgarsvæðinu urðu rafmagnslausir í rúma klukkustund í gærkvöld. Í Mjóafirði hefur verið fjarskiptalaust í rúman sólarhring vegna bilunar í ljósleiðara.
Svartklæddir mótmælendur með lambhúshettur mótmæltu komu flóttafólks til Bretlands með því að loka fyrir umferð til og frá höfninni í Dover í morgun. Margra kílómetra langar bílaraðir mynduðust.
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti með yfirgnæfandi meirihluta að hætta notkun svokallaðs Mercator-heimskorts og taka upp annað -- sem sýnir stærð ríkja í réttu hlutfalli.
Norska hirðin segir allt að sjö klukkustunda bið sé eftir því að votta Haraldi Noregskonungi virðingu sína. Röðin nær um kílómetra frá kapellunni.
Hótel- og matvælaskólinn fagnar þrjátíu ára afmæli í í dag, með alls kyns matarkynningum, kleinuhringjakeppni, þrautabraut fyrir þjóna og fleiru. Við kíkjum í veisluna í fréttatímanum.
Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.
Hjörtur Jóhann Jónsson leit við og hrærði í meðmælasúpu með Júlíu Margréti Einarsdóttir. Hulda Geirsdóttir var á línunni frá Ljósanótt og Daníel Hjálmtýsson tónlistarmaður einnig. Lagaþema dagsins var haust, og allt sem því tengist.
Lögin í þættinum:
BORKO - Haustpeysan.
Aldous Harding, Hawkline, H. - Venus in the Zinnia.
EARTH WIND & FIRE - September.
LONDON GRAMMAR - Strong.
Ásgeir Trausti Einarsson - Heartbeat.
DURAN DURAN - The Reflex.
Valdimar - Tenerife.
Grande, Ariana - Hate that i made you love me.
DAVID GRAY - This Years Love.
Green Day - Wake Me Up When September Ends.
HIPSUMHAPS - Hjarta.
Björn Jörundur Friðbjörnsson, Memfismafían - Ég kenni þér um.
Caldwell, Bobby - What You Won't Do For Love.
Klara Einarsdóttir - Ef hann myndi.
Böðvar Guðmundsson - Næturljóð úr Fjörðum.
THE WHITE STRIPES - My doorbell.
Moses Hightower - Ráðahagur.
TRAVIS - Why Does It Always Rain On Me.
ROXY MUSIC - Dance Away.
Young, Neil - Harvest moon.
Winehouse, Amy - Tears dry on their own.
Diljá Pétursdóttir, Hreimur - Svona var lífið.
EMMSJÉ GAUTI - Klisja.
FOO FIGHTERS - These Days.
NORAH JONES - Seven Years.
HJÁLMAR OG MUGISON - Ljósvíkingur.
Ríó - Gult og rautt.
ARLO PARKS - Black dog.
Luigi, Maron Birnir Reynisson, Tómas Gauti Óttarsson - Berdreymi.
Páll Óskar Hjálmtýsson, Benni Hemm Hemm - Allt í lagi.
Malen Áskelsdóttir - Ready Now.
Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.

Fréttir

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.

Tónleikarnir hefjast kl. 19:30.
Dagskrá:
We Will Rock You
Alaska1867
Hipsumhaps
Bandmenn ásamt Kristmundi Axel og Birgittu Haukdal
Flugeldasýning
Lagið Gamli bærinn minn með Hljómum eftir Gunnar Þórðarson spilað. Texti: Þorsteinn Eggertsson.
Emmsjé Gauti
Dagskrárlok
Kynnir á sviði er Hulda G. Geirsdóttir.

Heiða Eiríks og Ingi Þór stjórna Næturvaktinni til skiptis. Þau spjalla við landann og spilar tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.