18:00
Kvöldfréttir útvarps
Hækkun virðistaukaskatts á baðlón, áfengisneysla unglinga, stækkun þyrlupallsins á Surtsey og andlát Steins Ármanns Magnússonar leikara

Fréttir

Fréttir

Fjármálaráðherra telur að virðisauka-skatts-hækkun á baðlón eigi eftir að skila allt að fjórum milljörðum króna á ári í ríkissjóð. Samtök ferðaþjónustunnar hafa gagnrýnt áformin harðlega.

Áfengisneysla unglinga á Menningarnótt kemur framkvæmdastjóra Samfés ekki á óvart. Starfsfólk félagsmiðstöðva hafi lengi varað við aukinni drykkju meðal unglinga.

Steinn Ármann Magnússon ruddi brautina með nýrri tegund af gríni, með uppistandi sem fáir höfðu lagt á sig, segir Davíð Þór Jónsson, æskuvinur Steins. Steinn Ármann lést á föstudag.

Tilfellum þungunarrofs hefur fjölgað í Danmörku frá því að lög, sem heimila að rjúfa þungun fram að átjándu viku meðgöngu, tóku gildi í fyrra.

Þyrlupallurinn í Surtsey verður næstum þrefaldaður að stærð, samkvæmt áformum Surtseyjarfélagsins, sem Vestmannaeyjabær hefur samþykkt.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 10 mín.
,