15:00
Njála á faraldsfæti
4. þáttur - Ævi og ástir Hallgerðar

Umsjón: Jón Karl Helgason

Lesarar: Eiríkur Guðmundsson og Jórunn Sigurðardóttir

Í þættinum fjallar Jón Karl Helgason um skáldsöguna Fire in the ice, eftir bandarísku skáldkonuna Dorothy James Roberts.

Ævi og ástir Hallgerðar Langbrókar eru viðfangsefni sögunnar. Bókin kom út í Bandaríkjunum og Kanada 1961. Höfundi þótti takast vel að flétta

saman þáttum úr söguþráðum Laxdælu og Njálu og fékk skínandi viðtökur meðal bandarískra gagnrýnenda. Í þættinum er sagan m.a. borin saman við skáldsöguna Drottningarkyn, eftir Friðrik Á. Brekkan.

Frumflutt 29. nóvember 1999

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 44 mín.
e
Endurflutt.
,