08:03
Fyrst á fætur

Hulda Geirsdóttir er fyrst á fætur á sunnudagsmorgnum á Rás 2. Hún heyrir í fólki víða um land, fær til sín góða gesti og leikur fjölbreytta tónlist að sínum hætti. Notaleg morgunstund með hlustendum.

Sveitasíminn hringdi vestur á Ísafirði þar sem Þröstur Jóhannesson svaraði og sagði frá lífinu fyrir vestan, ísjökum og hvölum í Djúpinu og fleiru. Gestur þáttarins var Kristjana Þórarinsdóttir sálfræðingur sem sagði frá uppvextinum á Djúpavogi, oft við erfiðar aðstæður, hvernig hún valdi sér nýjan heimabæ af handahófi og dreif sig í nám á fertugsaldri. Hún varði nýverið doktorsverkefni sitt í sálfræði og segir frá áhugaverðum niðurstöðum í áfallameðferð.

Tónlist:

Hildur Vala - Sem og allt annað.

Egill Ólafsson og Tríó Bjössa Thor - Rólegan æsing.

Genesis - Misunderstanding .

Marillion - Kayleigh.

Ragnheiður Gröndal - Má ég?

Alabama Shakes - Hold On.

Gosi - Ófreskja.

Tom Jones & Stereophonics - Mama Told Me Not To Come.

Peter Gabriel - Steam.

Police - Wrapped Around Your Fingers.

Magnús og Jóhann - Ástin og lífið.

Martin Garrix & U2 - Fireflies.

Lloyd Cole and the Commotions - Brand New Friend.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 57 mín.
,