Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Séra Leifur Ragnar Jónsson flytur.
Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Alþjóðasamvinna stendur á krossgötum og í Norræna húsinu í dag verður stefnt saman fólki úr öllum áttum til að ræða hvaða stefnu Ísland á að taka. Við ræddum við Piu Hansson, forstöðumann Alþjóðastofnunar Háskóla Íslands, um ráðstefnuna og alþjóðamálin.
Í Þýskalandi er kosningabarátta komin á fullt, en þar verður kosið til þings í september rétt eins og á Íslandi. Umdeildar auglýsingar eru farnar að birtast, meðal annars ein sem er talin fela í sér árás á gyðinga, sem hefur vakið fólk til umhugsunar um það hversu langt má ganga í auglýsingum. Arthúr Björgvin Bollason sagði okkur frá því helsta í þýskum stjórnmálum.
Við tengjum kannski flestöll fljúgandi furðuhluti við geimverukvikmyndir og samsæriskenningar. En fljúgandi furðuhlutir eru nú mál málanna í þingsölum Washington, þar sem beðið er skýrslu bandarískra leyniþjónustustofnana um óútskýrð fyrirbæri á flugi í lofthelgi Bandaríkjanna. Já, hvað vita bandarísk yfirvöld í raun um fljúgandi furðuhluti? Skýrslunnar er beðið í ofvæni - en svörin gætu orðið loðin. Við fjölluðum um þetta mál.
Í gær var tekin fyrsta skóflustunga að 1.100 fermetra viðbyggingu við flugstöðina á Akureyrarflugvelli. Þetta er langþráður áfangi fyrir ferðaþjónustuna á Norðurlandi, en ný og stærri flugstöð er talinn afar stór þáttur í eflingu millilandaflugs um Akureyri. Hjalti Páll Þórarinsson, starfsmaður Markaðsstofu Norðurlands ræddi við Ágúst Ólafsson fréttamann um framtíðina og hvað það þýðir að fá nýja flugstöð.
Tónlist:
Sól rís - Bubbi Morthens
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Ásrún Brynja Ingvarsdóttir
Tæknimaður: Markús Hjaltason
Útvarpsfréttir.
Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.
Gestur þáttarins er Svanhildur Óskarsdóttir handritafræðingur hjá Stofnun Árna Magnússonar. Umsjón: Brynja Þorgeirsdóttir.
Morgunleikfimi með Halldóru Björnsdóttur.
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Kristján Kristjánsson.
Útvarpsfréttir.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Nú þegar fleiri mega koma saman þá opnast dyrnar fyrir ýmislegt sem ekki hefur verið hægt að gera í talsverðan tíma. Til dæmis hafa húsfundir í húsfélögum að miklu leyti setið á hakanum, en nú eru húsfélög um allt land að vakna úr dvala og víða eru fyrirhugaðar eru framkvæmdir sem mikilvægt er að standa vel að. Við fengum Tinnu Andrésdóttur lögfræðing hjá Húseigendafélaginu til þess að fara aðeins yfir það helsta sem hafa þarf í huga en félagið er að fá mörg mál inn á borð til sín þessa dagana vegna galla á verkum verktaka og galla í fasteignakaupum þar sem hraðinn er mikill núna á fasteignamarkaðnum.
Það er sannkölluð sumarbyrjun þegar sumarblómin eru komin á Austurvöll sem alltaf skartar sínu fegursta á þjóðhátíðardaginn 17.júní. Karen Hauksdóttir er skrúðgarðyrkjufræðingur og aðstoðarverkstjóri í hverfastöðinni við Fiskislóð. Hún og starfsfólk hennar hafa verið á fullu við að gróðursetja í beðin við Austurvöll og víðs vegar um borgina, en það eru í kringum 180 tegundir og yrki. Í fyrra var það hvítur litur sem var allsráðandi, við hringdum í Karen og spurðum hvaða litur varð fyrir valinu í ár.
Á laugardaginn var ný gönguleið milli Stokkseyrar, Eyrarbakka og Þorlákshafnar formlega opnuð. Leiðin kallast Vitaleiðin og dregur nafn sitt að vitunum þremur, Selvogsvita og Knarrarósvita sem marka upphaf og enda leiðarinnar og svo Hafnarnesvita í Þorlákshöfn. Margrét Blöndal var við vígsluna og fylgdist með þegar klippt var á borðann. Hún talaði við Dagnýju Jóhannsdóttur, framkvæmdastjóra Markaðsstofu Suðrulands, Gunnhildi Hrólfsdóttur og Sigrúnu Klöru Hannesdóttur úr stjórn Vitafélagins, Gísla H. Halldórsson bæjarstjóra Árborgar og Gest. Þór Kristjánsson forseta bæjarstjórnar Ölfuss.
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Útvarpsfréttir.
Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf. Fréttaskýringar, samtöl og umræður um það sem er efst á baugi.
Ziona Chana, 76 ára leiðtogi kristins sértrúarsöfnuðar á Indlandi og faðir stærstu fjölskyldu í heimi, er látinn. Hann lætur eftir sig 89 börn, 36 barnabörn og 38 eiginkonur. Öll búa þau saman í fjögurra hæða, hundrað herbergja, bleiku stórhýsi í litlu þorpi á Indlandi - húsi sem ferðamenn keppast um að líta augum. Óvíst er hver tekur við söfnuðinum að svo stöddu, en elsti sonur leiðtogans, hinn sextugi Para þykir líklegur. Ekki liggur fyrir hvenær útför leiðtogans fer fram þar sem safnaðarmeðlimir eru ekki vissir um fráfall hans, þrátt fyrir úrskurð heilbrigðisyfirvalda þar um. Þeir segjast enn finna púls á Chana og segja hann hlýjan viðkomu. Á meðan þau telji hann enn með lífsmarki verði ekki haldin jarðarför.
Rúmum fjórum mánuðum frá því herinn rændi völdum í Mjanmar hefur frelsishetjan Aung San Suu Kyi verið leidd fyrir herrétt, en þessi friðarverðlaunahafi Nóbels er leiðtogi NLD-flokksins, flokksins sem vann stórsigur í þingkosningum í landinu í nóvember. Hún er ákærð fyrir eitt og annað, allt frá því að eiga talstöðvar og hafa brotið sóttvarnarreglur, yfir í spillingu og fyrir að hafa hvatt til uppreisnar. Verði hún fundin sek gæti hún setið á bak við lás og slá það sem eftir er. Mannréttindasamtök víða um heim hafa fordæmt réttarhöldin, og við fjöllum um þessi réttarhöld og stöðuna í Mjanmar í síðari hluta þáttarins.
Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
Útvarpsfréttir.
Joe Biden og Vladimír Pútin sitja á fundi í Genf í Sviss. Þeir töluðust lítið sem ekkert við þegar þeir mættust úti fyrir fundarstaðnum enda sammála um að samband ríkjanna sé verra nú en síðustu áratugi.
Útboð á 35 prósenta hlut ríkisins í Íslandsbanka gekk geysilega vel, segir stjórnarformaður Bankasýslunnar. 24 þúsund manns verða hluthafar í bankanum þegar hann verður skráður á markað.
Fjármálaráðherra segir að tækifærum væri kastað á glæ með því að afneita þeim kostum sem geta falist í fjölbreyttu rekstrarfyrirkomulagi í heilbrigðiskerfinu, þar með talið auknum einkarekstri.
Ný flugstöðvarbygging á Akureyrarflugvelli verður mikil lyftistöng við markaðssetningu á erlendum mörkuðum. Faraldurinn hefur þó enn mikil áhrif hjá viðskiptavinum erlendis.
Fyrstu göngugarpar sumarsins eru að búa sig í Laugavegsgöngu þrátt fyrir talsverðar fannir, sérstaklega í Hrafntinnuskeri.
Valur hefur yfirhöndina gegn Haukum í baráttunni um Íslandsmeistaratitil karla í handbolta. Valsmenn unnu í gærkvöldi fyrri leik liðanna í úrslitaeinvíginu með þremur mörkum.
Dánarfregnir.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisráðherra: ný stefna í meðhöndlun úrgangs á Íslandi
Gyða Guðmundsdóttir, leikskólastjóri á Borg í Bakkahverfi: segir frá verkefninu Það þarf þorp, sem miðar að því að efla félagsfærni barna og bæta hverfisbraginn.
Edda Olgudóttir, vikulegur vísindapistill: um misjafnar tegundir bóluefna.
Útvarpsfréttir.
Spurningaþáttur.
Umsjón: Vera Illugadóttir.
Spurningaþáttur.
Umsjón: Vera Illugadóttir.
Spurningaþáttur.
Umsjón: Vera Illugadóttir.
Spurningaþáttur.
Umsjón: Vera Illugadóttir.
Útvarpsfréttir.
Þröstur Helgason ræðir við forvitnilegt fólk um reynslu þess og viðhorf.
Þröstur Helgason ræðir við forvitnilegt fólk um reynslu þess og viðhorf. Gestur þáttarins er Jón Ormur Halldórsson, alþjóðastjórnmálafræðingur. Jón Ormur hefur að undanförnu birt nokkrar greinar í Kjarnanum þar sem hann hefur fjallað um þá deiglu sem alþjóðamál eru í um þessar mundir. Kína og Indland koma þar við sögu en líka Rússland, Tyrkland og Íran, sem Jón Ormur segir að leiti sér öll meira olnbogarýmis í heiminum. Þýskaland kemur við sögu, Evrópa og Bandaríkin. Í samtalinu við Jón Orm kemur Ísrael einnig við sögu en hlustendur ættu að verða einhvers vísari um samhengi hlutanna í alþjóðamálum samtímans.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.
Í Víðsjá í dag verður rætt við Högna Egilsson tónlistarmann um sköpun kvikmyndatónlistar en tónlist Högna spilar stóra rullu í þáttaröðinni Kötlu sem Baltasar Kormákur leikstýrir og frumsýnd verður á streymisveitunni Netflix á morgun, 17. Júní.
Í bíó er hið sjónræna yfirleitt sett í aðalhlutverk en á viðburðinum HljóðMyndum er boðið upp á nokkuð óvenjulega upplifun í bíósal þar sem slökkt er á myndvarpanum og hljóðlistin fær að njóta sín. Í Víðsjá í dag heyrum við í Þórönnu Dögg Björnsdóttur og Curver Thoroddssen, listrænum stjórnendum þessa viðburðar.
Og Kristín Eiríksdóttir rithöfundur heldur áfram að velta fyrir sér margskonar skrifum í pistlum sínum í Viðsjá og í dag er hún með hugann við sjálfið.
Umsjón: Guðni Tómasson og Tómas Ævar Ólafsson.
Útvarpsfréttir.
Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Eftir því sem tölvuleikjaiðnaðurinn hefur stækkað hafa áhrif hans orðið víðtækari, efnahagslega, menningarlega og ekki síst á persónuleg samskipti fólks. Einstaklingar spjalla, þeir kynnast, verða vinir, fella hugi saman í gegnum stafræna hliðarheima tölvuleikjanna. Tölvuleikir geta á vissan hátt virkað eins og vináttuvélar. Það er að minnsta kosti kenningin sem liggur að baki nýju netnámskeiði Háskóla Íslands sem er unnið í samstarfi við tölvuleikjaframleiðandann CCP. Annar kennara námskeiðsins, Ársæll Arnarson, heimsækir Lestina í dag og ræðir vináttuna.
Við rýnum í tvær nýjar kvikmyndir í þætti dagsins, hryllingsmyndina A Quiet Place 2 eða Þöglavík, eins og Ásgeir H. Ingólfsson kvikmyndagagnrýnandi þýðir það, og nýja íslenska kvikmynd á ensku, Shadow Town, Skuggahverfið.
Við gerum okkur ferð á Borgarbókasafnið í grófinni þar sem innsetningin Koddahjal - Endurhlaða eftir Sonju Kova?evi? var opnuð á dögunum. Framsetningin er einföld ; hátalarar hafa verið settir á samanbrjótanlega bedda, eins og notaðir eru sem rúm fyrir hælisleitendur og úr hátölurum heyrast síðan frásagnir flóttamanna á Íslandi.
Í tilefni kvenréttindadagsins 19. júní veltum við fyrir okkur staðhæfingu Vigdísar Finnbogadóttur frá 1980 að þjóðin ætti ekki að kjósa hana vegna þess að hún væri kona heldur af því að hún væri maður.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala segir mikilvægt að vinna að úrbótum til að atburðir eins og hópsmitið á Landakoti gerist ekki aftur. Hann segir samhljóm í skýrslu embættis Landlæknis og Landspítala um málið.
Fjármálaráðherra vill halda áfram að losa um eignarhald ríkisins yfir Íslandsbanka á næsta ári ef markaðsaðstæður leyfa. Hann segir nýlokið útboð hafa gengið framar vonum og að áhugi erlendra fjárfesta hafi vakið sérstaka athygli.
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir að fyrsti fundur hans með Joe Biden Bandaríkjaforseta hafi verið uppbyggilegur á ýmsum sviðum. Fundurinn var styttri en reiknað hafði verið með.
Eimskip viðurkenndi í dag alvarleg brot á samkeppnislögum og greiðir einn og hálfan milljarð króna í sekt. Ætluð brot Samskipa eru enn til rannsóknar.
Talið er að fjórðungur þeirra sem fengið hafa COVID glími við langvinn einkenni, segir framkvæmdastjóri lækninga á Reykjalundi. Margir þeirra sem fara í COVID endurhæfingu á Heilsustofnun í Hveragerði eru býsna illa haldnir. Framkvæmdastjóri lækninga þar, segist jafnvel hafa gefið þau læknisráð að fólk láti af því að setja í uppþvottavélina og sinna öðrum heimilisstörfum, svo það hafi einfaldlega orku til að tala við börnin sín. Ragnhildur Thorlacius tala við Birnu Guðmundsdóttur og Stefán Yngvason.
Samherji stefnir að því að reisa fiskeldisstöð á Reykjanesi sem gæti innan 11 ára framleitt um 40 þúsund tonn af laxi. Fyrrverandi formaður Landssambands fiskeldisstöðva og framkvæmdastjóri Laxa fiskeldis segir að framleiðsla í sjókvíaeldi geti á næstu 10 árum auðveldlega farið í 200 til 300 þúsund tonn á ári. Fiskeldi jókst um 20% í fyrra. Arnar Páll Hauksson segir frá og talar við Jens Garðar Helgason og það heyrist í Jóni Kjartani Jónssyni.
Í Bretlandi hefur mikil orka farið í að koma Brexit frá, klára útgönguna úr ESB. En það er líka enn eins og breska stjórnin hafi ekki fundið sér sinn samastað í alþjóðasamfélaginu, utanríkisstefnan enn óskýr. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
Spennum beltin og ferðumst hringinn með KrakkaRÚV! Stórskemmtilegir fjölskylduþættir fyrir ferðalanga á ferð um Ísland. Þjóðsögur og ævintýri, bílaleikir, fróðleiksmolar og sögur frá krökkum á öllum aldri. Í hverjum þætti er spurningakeppni þar sem kemur í ljós hvaða fjölskyldumeðlimur veit mest um Ísland...nú eða hlustaði best á þáttinn!
Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir og Jóhannes Ólafsson.
Hvað er skemmtilegra en að fara í útilegu á sumrin? EKKERT! Förum aftur í útilegu og leitum uppi skemmtilegustu staðina til að tjalda á. Útilegusérfræðingar þáttarins eru Áslaug Nanna og systkinin Unnur Mist og Tristan Þór. Þjóðsögurnar fjalla um frægan dal þar sem stórar tjaldbúðir eru reistar í ágúst á hverju ári og svo útilegumenn, en það eru ekki bara menn sem fara í útilegur...Hver veit mest um útilegur? Það kemur í ljós í spurningakeppninni í lokin!
Dánarfregnir.
Tónleikahljóðritanir frá Sambandi evrópskra útvarpsstöðva.
Umsjón: Bergljót Haraldsdóttir og Guðni Tómasson.
Hljóðritun frá tónleikum Norður-þýsku útvarpshljómsveitarinnar sem fram fóru í sal Norður-þýska útvarpsins í Hannover.
Á efnisskrá eru verk eftir Georg Philiipp Telemann, Giles Farnaby, Johann Sebastian Bach og Tylman Susato.
Einsöngvari: Anna Prohaska.
Stjórnandi: Riccardo Minasi.
Umsjón: Bergljót Haraldsdóttir.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Nú þegar fleiri mega koma saman þá opnast dyrnar fyrir ýmislegt sem ekki hefur verið hægt að gera í talsverðan tíma. Til dæmis hafa húsfundir í húsfélögum að miklu leyti setið á hakanum, en nú eru húsfélög um allt land að vakna úr dvala og víða eru fyrirhugaðar eru framkvæmdir sem mikilvægt er að standa vel að. Við fengum Tinnu Andrésdóttur lögfræðing hjá Húseigendafélaginu til þess að fara aðeins yfir það helsta sem hafa þarf í huga en félagið er að fá mörg mál inn á borð til sín þessa dagana vegna galla á verkum verktaka og galla í fasteignakaupum þar sem hraðinn er mikill núna á fasteignamarkaðnum.
Það er sannkölluð sumarbyrjun þegar sumarblómin eru komin á Austurvöll sem alltaf skartar sínu fegursta á þjóðhátíðardaginn 17.júní. Karen Hauksdóttir er skrúðgarðyrkjufræðingur og aðstoðarverkstjóri í hverfastöðinni við Fiskislóð. Hún og starfsfólk hennar hafa verið á fullu við að gróðursetja í beðin við Austurvöll og víðs vegar um borgina, en það eru í kringum 180 tegundir og yrki. Í fyrra var það hvítur litur sem var allsráðandi, við hringdum í Karen og spurðum hvaða litur varð fyrir valinu í ár.
Á laugardaginn var ný gönguleið milli Stokkseyrar, Eyrarbakka og Þorlákshafnar formlega opnuð. Leiðin kallast Vitaleiðin og dregur nafn sitt að vitunum þremur, Selvogsvita og Knarrarósvita sem marka upphaf og enda leiðarinnar og svo Hafnarnesvita í Þorlákshöfn. Margrét Blöndal var við vígsluna og fylgdist með þegar klippt var á borðann. Hún talaði við Dagnýju Jóhannsdóttur, framkvæmdastjóra Markaðsstofu Suðrulands, Gunnhildi Hrólfsdóttur og Sigrúnu Klöru Hannesdóttur úr stjórn Vitafélagins, Gísla H. Halldórsson bæjarstjóra Árborgar og Gest. Þór Kristjánsson forseta bæjarstjórnar Ölfuss.
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Njála er mest allra Íslendingasagna og hefur verið lifandi í vitund þjóðarinnar öldum saman. Persónur hennar, Gunnar og Njáll, Hallgerður og Bergþóra, Skarphéðinn, Kári , Flosi og Hildigunnur, svo aðeins fáeinar séu nefndar, hafa verið nákomnar lesendum eins og kunningjar á vettvangi samtíðarinnar. Fólk hefur lesið söguna, hugleitt hana, deilt um hana, skáldin ort út af henni og fræðimenn hafa velt fyrir sér eðli sögunnar og getið sér til um hver hafi samið hana. Á þess konar umhugsun um Njálu verður aldrei þurrð.
Einar Ólafur Sveinsson prófessor var helsti sérfræðingur þjóðarinnar í Njálu á sinni tíð. Hann skrifaði rit og ritgerðir um söguna og gaf hana út í röðinni Íslensk fornrit. Kunnastur almenningi var hann fyrir flutning sögunnar í útvarp. Einar Ólafur las Njálu þrisvar sinnum í heilu lagi. Síðasti lesturinn er varðveittur í safni útvarpsins og það er hann sem er fluttur að þessu sinni.
Flutt í tilefni af gjöf afkomenda Einars Ólafs Sveinssona rtil Ríkisútvarpsins á öllu efni sem hann hljóðritaði.
Einar Ólafur Sveinsson les.
Gjöf afkomenda Einars Ólafs Sveinssonar prófessors til Ríkisútvarpsins á öllu efni sem hann hljóðritaði.
(Hljóðritun frá 1972).
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisráðherra: ný stefna í meðhöndlun úrgangs á Íslandi
Gyða Guðmundsdóttir, leikskólastjóri á Borg í Bakkahverfi: segir frá verkefninu Það þarf þorp, sem miðar að því að efla félagsfærni barna og bæta hverfisbraginn.
Edda Olgudóttir, vikulegur vísindapistill: um misjafnar tegundir bóluefna.
Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Eftir því sem tölvuleikjaiðnaðurinn hefur stækkað hafa áhrif hans orðið víðtækari, efnahagslega, menningarlega og ekki síst á persónuleg samskipti fólks. Einstaklingar spjalla, þeir kynnast, verða vinir, fella hugi saman í gegnum stafræna hliðarheima tölvuleikjanna. Tölvuleikir geta á vissan hátt virkað eins og vináttuvélar. Það er að minnsta kosti kenningin sem liggur að baki nýju netnámskeiði Háskóla Íslands sem er unnið í samstarfi við tölvuleikjaframleiðandann CCP. Annar kennara námskeiðsins, Ársæll Arnarson, heimsækir Lestina í dag og ræðir vináttuna.
Við rýnum í tvær nýjar kvikmyndir í þætti dagsins, hryllingsmyndina A Quiet Place 2 eða Þöglavík, eins og Ásgeir H. Ingólfsson kvikmyndagagnrýnandi þýðir það, og nýja íslenska kvikmynd á ensku, Shadow Town, Skuggahverfið.
Við gerum okkur ferð á Borgarbókasafnið í grófinni þar sem innsetningin Koddahjal - Endurhlaða eftir Sonju Kova?evi? var opnuð á dögunum. Framsetningin er einföld ; hátalarar hafa verið settir á samanbrjótanlega bedda, eins og notaðir eru sem rúm fyrir hælisleitendur og úr hátölurum heyrast síðan frásagnir flóttamanna á Íslandi.
Í tilefni kvenréttindadagsins 19. júní veltum við fyrir okkur staðhæfingu Vigdísar Finnbogadóttur frá 1980 að þjóðin ætti ekki að kjósa hana vegna þess að hún væri kona heldur af því að hún væri maður.
Næturútvarp Rásar 1.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Rúnar Róbertsson.
Umsjónarmenn: Rúnar Róbertsson og Matthías Már Magnússon
Þjóðhátíðardagur Íslendinga er á fimmtudaginn. 17. júní í ár verður með svipuðu sniði og í fyrra en samkomutakmarkanir setja svip sinn á daginn. Þrátt fyrir að nú búið sé að losa hömlur að einhverju leyti þá eru takmarkanirnar meiri nú en fyrir ári síðan. Við fengum til okkar þær Ingibjörgu Grétu Gísladóttur verkefnastjóra hjá Kópavogsbæ og Soffíu Karlsdóttur forstöðumann menningarmála sem ætla að segja okkur frá hvernig Kópavogsbær breytti 17. júní í fyrra í hverfishátíðir og gerir aftur í ár.
Í dag verða kynntar niðurstöður tveggja ára vinnu um hvernig efla á atvinnulíf og styrkja innviði á Suðurnesjum í átt að sjálfbærri framtíð. Verkefnið er samstarf sveitarfélaga á Suðurnesjum, Isavia og Kadeco og heiti þess er Suðurnesjavettvangur. Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri í Reykjanesbæ kom til okkar og segir okkur nánar frá þessu.
Fjöldi fólks fékk sér gæludýr í Covid faraldrinum og var um tíma talað um að vöntun væri á köttum en flest allir hjá Kattholti t.d. fengu nýtt heimili. Við rákumst á grein frá Ástralíu þar sem þeirri spurningu er velt upp hvort nú, eða næstu misseri, þegar faraldurinn væri í rénum hvort vinnustaðir ættu að opna fyrir því að hleypa gæludýrum inn á vinnustaðinn. Er þá að mestu verið að tala um hunda. Við ákváðum að heyra hvað vinnustaðasálfræðingur hefði um þetta að segja og fengum til okkar hana Þórkötlu Aðalsteinsdóttur, sálfræðing og ráðgjafa í mannauðsmálum frá Lífi og sál.
Nýtt samevrópskt bólusetningavottorð sem kallast Græni passinn er nú aðgengilegur öllum hér á landi sem eru fullbólusettir eða hafa fengið Covid-19. Tekur Ísland þar þátt í tilraunaverkefni en passinn verður tekinn upp í öllum ríkjum Evrópusambandsins og í EFTA ríkjunum þann 1. júlí nk. Ingi Steinar Ingason er verkefnastjóri hjá Landslæknisembættinu og sér um þessa innleiðingu. Hann kom til okkar í morgunkaffi.
Álfa- og draugatrú hefur alla tíð verið sterk á Íslandi. Á morgun í Þjóðminjasafninu verður hægt að fá leiðsögn um hjátrú og galdra á Íslandi. Skoðaðir eru ýmsir gripir sem eiga sér sögu tengda álfum og öðru huldufólki og hingað til að ræða þetta allt saman kom Jóhanna Bergmann safnkennari frá Þjóðminjasafninu.
Tónlist:
Nýdönsk - Flugvélar
Helgi Björnsson - Ekki ýkja flókið
Aretha Franklin - (You make me feel like) A natural woman
Tómas Welding - Here they come
Ásgeir Trausti - Nýfallið regn
Björk - Big time sensuality
Duran Duran - Sound of thunder
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Ásrún Brynja Ingvarsdóttir
Tæknimaður: Markús Hjaltason
Útvarpsfréttir.
Morgunverkin er fyrst og fremst tónlistarþáttur þar sem Þórður Helgi spilar bara það besta sem heimurinn hefur alið af sér síðustu 30-40 árin.
Umsjón: Atli Már Steinarsson
09:00 - 10:00:
Stjórnin - Hleypum gleðinni inn
The Police - Every little thing she does is magic
Twenty One Pilots - Shy away
Elíza - Hopeless Case
Huginn - Geimfarar
Jorja Smith - Bussdown
The Pretenders - Back on the chaing gan
Gugusar - Röddin í klettunum
Jennifer Paige - Crush
Neighbourhood - Stargazing
Jeff Who? - Congratulations
Banners - Someone to you
Daði og Gagnamagnið - 10 years
Páll Óskar - Betra líf
10:00 - 11:00:
Kaleo - Skinny
Sigurður Guðmundsson - Kappróður
Kacey Musgraves - Slow Burn
Bubbi - Ennþá er tími
Foo Fighters - Waiting on a war
Friðrik Dór - Hvílíkur dagur
The Charlatans - Can't get out of bed
Shania Twain - Man! I feel like a woman
Moses Hightower - Lífsgleði
The Killers - Human
Babies - Núní júní
Celeste - Tonight tonight
Hipsumhaps - Á hnjánum
11:00 - 12:00:
Tómas Welding - Here they come
Feist - 1234
Billie Eilish - Lost Cause
Prefab Sprout - Appetite
Júníus Meyvant - Hailslide
Hafdís Huld - Synchronised Swimmers
Manic Street Preachers - Orwellian
Toto - Africa
Glowie & Stony - No more
Bubbi - Hungur
Taylor Swift - No body, no crime ft. Haim
Greentea Peng - Hu Man
Valborg Ólafs - Holiday
12:00 - 12:20
Hreimur, Magni og Embla - Göngum í takt
Deep Blue Something - Breakfast at Tiffany's
Gus Gus & Vök - Higher
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Joe Biden og Vladimír Pútin sitja á fundi í Genf í Sviss. Þeir töluðust lítið sem ekkert við þegar þeir mættust úti fyrir fundarstaðnum enda sammála um að samband ríkjanna sé verra nú en síðustu áratugi.
Útboð á 35 prósenta hlut ríkisins í Íslandsbanka gekk geysilega vel, segir stjórnarformaður Bankasýslunnar. 24 þúsund manns verða hluthafar í bankanum þegar hann verður skráður á markað.
Fjármálaráðherra segir að tækifærum væri kastað á glæ með því að afneita þeim kostum sem geta falist í fjölbreyttu rekstrarfyrirkomulagi í heilbrigðiskerfinu, þar með talið auknum einkarekstri.
Ný flugstöðvarbygging á Akureyrarflugvelli verður mikil lyftistöng við markaðssetningu á erlendum mörkuðum. Faraldurinn hefur þó enn mikil áhrif hjá viðskiptavinum erlendis.
Fyrstu göngugarpar sumarsins eru að búa sig í Laugavegsgöngu þrátt fyrir talsverðar fannir, sérstaklega í Hrafntinnuskeri.
Valur hefur yfirhöndina gegn Haukum í baráttunni um Íslandsmeistaratitil karla í handbolta. Valsmenn unnu í gærkvöldi fyrri leik liðanna í úrslitaeinvíginu með þremur mörkum.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson, Lovísa Rut Kristjánsdóttir og Matthías Már Magnússon.
Umsjón: Orri Freyr Rúnarsson
Góð stemning í Popplandi dagsins, alls konar tónlist úr ýmsum áttum. Valdimar Guðmundsson, Óskar Guðjónsson og Ásgeir Aðalsteinsson kíktu í spjall og kynntu nýja hljómsveit sem þeir skipa og heitir Lón. Plata vikunnar er Sjálfsmynd með Bubba Morthens og Blue Weekend með Wolf Alice er plata dagsins.
Lagalisti:
Kiriyama Family - Pleasant Ship
Black Pistol Fire - Look Alive
The White Stripes - I Just Don't Know What To Do With Myself
Easy Life - Have a Great Day
Travis - Sing
Florence & The Machine - Dog Days Are Over
Albatross - Allt á hvolfi
Destiny's Child - Survivor
Cease Tone, Rakel & JóiPé - Ég var að spá
Bubbi Morthens - Þessi menn (plata vikunnar)
Úlfur Úlfur - Tarantúlur
Torfi Tómasson - Væntumþykjast
Wolf Alice - The Last Man on Earth
Led By a Lion - Gimme Love
Babies - Núní júní
GusGus - Ladyshave
Stjórnin - Hleypum gleðinni inn
Coldplay - Yellow
Daft Punk - Lose Yourself to Dance
Pretty Purple - Don't Think About It
Björgvin Halldórsson - Sendu nú gullvagninn
Aron Can - Flýg upp
Gugusar - Röddin í klettunum
Toto - Africa
Hipsumhaps - Á hnjánum
Mugison - Murr Murr
Kött Grjá Pjé & Nolem - Aheybaró
Madness - Our House
Páll Óskar - Betra líf
Friðrik Dór - Hvílíkur dagur
Mumford and Sons - Little Lion
Moses Hightower - Lífsgleði
Bubbi Morthens - Stofa 112 (Plata vikunnar)
Blind Melon - No Rain
Mö, DJ Snake & Major Lazer - Lean On
Nýdönks - Frelsið
Dúkkulísur - Svarthvíta hetjan mín
Stefán Hilmarsson - Heimur allur hlær
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Þau Valur Grettisson, Guðrún Dís Emilsdóttir og Hrafnhildur Halldórsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu á daginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Netflix hefur birt stiklu úr Kötlu, fyrstu íslensku þáttaröðinni, sem framleidd er fyrir streymisveituna. Þessir tilfinningaþrungnu og dularfullu vísindaskáldsöguþættir eru úr smiðju leikstjórans Baltasars Kormáks og verða teknir til sýninga um allan heim á morgun 17. júní. Við fáum til okkar tvo leikara úr seríunni þau Guðrún Gísladóttur og Harald Ara Stefánsson
Mikil uppbygging er að hefjast á skíðasvæðum höfuðborgarbúa í Bláfjöllum og Skálafelli og nýlega voru útboð samþykkt um kaup á fyrstu stólalyftunni - Einar Bjarnason rekstarstjóri í Bláfjöllum segir okkur meira af þessari langþráðu framkvæmd.
Hljóbókin Jökull ? epísk ástarsaga eftir metsöluhöfundinn Camillu Läckberg og hinn rómaða leikara Alexander Karim kemur út á hljóðbók 15. júní í frábærum flutningi Halldóru
Geirharðsdóttur og Hjartar Jóhanns Jónssonar. Sagan var skrifuð sérstaklega fyrir Storytel Original við ræðum við Hjört Jóhann Jónsson annan lesara sögunnar
Og svo er það Jazzklúbburinn Múlinn sem minnist í kvöld tónlistar Jóns Múla Árnasonar þessa litríka persónuleika og kyndilbera jazzins með hátíðartónleikum í Kaldalónssal Hörpu.
Óskar Guðjónsson saxafónleikari leit við í útvarpshúsinu fyrr í dag og spjallaði við okkur um tónlistina og lífið.
En við byrjum á göngugarpinum Karli Marinóssyni sem er að leggja af stað í sína sextugustu ferð á Úlfarsfell í dag í tilefni af eigin sextugsafmæli Karl er á línunni ....
Útvarpsfréttir.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala segir mikilvægt að vinna að úrbótum til að atburðir eins og hópsmitið á Landakoti gerist ekki aftur. Hann segir samhljóm í skýrslu embættis Landlæknis og Landspítala um málið.
Fjármálaráðherra vill halda áfram að losa um eignarhald ríkisins yfir Íslandsbanka á næsta ári ef markaðsaðstæður leyfa. Hann segir nýlokið útboð hafa gengið framar vonum og að áhugi erlendra fjárfesta hafi vakið sérstaka athygli.
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir að fyrsti fundur hans með Joe Biden Bandaríkjaforseta hafi verið uppbyggilegur á ýmsum sviðum. Fundurinn var styttri en reiknað hafði verið með.
Eimskip viðurkenndi í dag alvarleg brot á samkeppnislögum og greiðir einn og hálfan milljarð króna í sekt. Ætluð brot Samskipa eru enn til rannsóknar.
Talið er að fjórðungur þeirra sem fengið hafa COVID glími við langvinn einkenni, segir framkvæmdastjóri lækninga á Reykjalundi. Margir þeirra sem fara í COVID endurhæfingu á Heilsustofnun í Hveragerði eru býsna illa haldnir. Framkvæmdastjóri lækninga þar, segist jafnvel hafa gefið þau læknisráð að fólk láti af því að setja í uppþvottavélina og sinna öðrum heimilisstörfum, svo það hafi einfaldlega orku til að tala við börnin sín. Ragnhildur Thorlacius tala við Birnu Guðmundsdóttur og Stefán Yngvason.
Samherji stefnir að því að reisa fiskeldisstöð á Reykjanesi sem gæti innan 11 ára framleitt um 40 þúsund tonn af laxi. Fyrrverandi formaður Landssambands fiskeldisstöðva og framkvæmdastjóri Laxa fiskeldis segir að framleiðsla í sjókvíaeldi geti á næstu 10 árum auðveldlega farið í 200 til 300 þúsund tonn á ári. Fiskeldi jókst um 20% í fyrra. Arnar Páll Hauksson segir frá og talar við Jens Garðar Helgason og það heyrist í Jóni Kjartani Jónssyni.
Í Bretlandi hefur mikil orka farið í að koma Brexit frá, klára útgönguna úr ESB. En það er líka enn eins og breska stjórnin hafi ekki fundið sér sinn samastað í alþjóðasamfélaginu, utanríkisstefnan enn óskýr. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
Létt tónlist af ýmsu tagi.
Umsjón: Rósa Birgitta Ísfeld.
Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmaður: Þorsteinn Hreggviðsson.
Það er mikið af nýrri tónlist að koma út þessa dagana, og við fáum smjörþefinn af þeirri bylgju í Kvöldvaktinni þennan miðvikudaginn, með nýjum lögum frá Aldous Harding, Tyler The Creator, black midi og Rebeccu Black.
Umsjón: Bjarni Daníel Þorvaldsson
Lagalisti:
gugusar - Röddin í klettunum
Rebecca Black - Worth It For The Feeling
Moses Hightower - Lífsgleði
Aldous Harding - Old Peel
Sycamore Tree, Arnar Guðjónsson - Picking Fights and Pulling Guns
Matt Berninger - One More Second
U2 - Beautiful Day
Friðrik Dór - Hvílíkur dagur
Kári The Attempt - Them
Little Simz, Cleo Sol - Woman
Jorja Smith, Shaybo - Bussdown
Tómas Welding - Here They Come
Torfi Tómasson - Væntumþykjast
Kim Petras - Clarity
Elio, Micah Jasper - Something For Nothing
Inspector Spacetime - Teppavirki
easy life - have a great day
Tyler The Creator - Lumberjack
The Vaccines - Headphones Baby
BSÍ - My Knee Against Kyriarchy
Deafheaven - Great Mass of Color
Mammút - Prince
Julia Jacklin, RVG - Army of Me (Björk Cover)
black midi - Marlene Dietrich
Future Islands - Seasons (Waiting On You)
Bon Iver - AUATC
Stjórnin - Hleypum gleðinni inn
Ólafur Kram - ómægad ég elska þig
Arctic Monkeys - Why?d You Only Call Me When You?re High
GRÓA - Dansa uppá þaki
Hinds - Spanish Bombs (The Clash)
The Clash - I Fought The Law
IDLES - Damaged Goods (Gang of Four)
Pom Poko - Cheater
Fontaines D.C. - Televised Mind
Pretty Purple - Don?t think about it
CYBER - Breakfast Buffet
Bubbi Morthens - Ennþá er tími
First Aid Kit - The Lion?s Roar
Sigurður Guðmundsson og Memfismafían - Lady Fish and Chips
Teitur Magnússon, Mr Silla - Háfjöllin
Ásta, Salóme Katrín - Kaffi hjá Salóme
Umsjón: Andrea Jónsdóttir.