14:00
Mundi
Strætóferðin - fyrri þáttur

Umsjónarmenn Lestarinnar vörðu heilum föstudegi í desember 2023 um borð í leið 4, strætó sem keyrir úr Mjódd niður á Hlemm um Breiðholtið. Í þættinum heyrast sögur fólks sem ferðaðist með vagninum þann daginn. Strákur á leið að fá sér drekatattú, venesúelskur söngvari á leið til sálfræðings, danskur kökuskreytingameistari og hagmælti bókasafnarinn Mundi.

Á páskadag fer í loftið nýr útvarpsþáttur um ævi eins viðmælandans Guðmundar Arnfinnssonar og er strætóþátturinn endurfluttur að því tilefni.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 59 mín.
,