21:05
Bláleiðir Guðrúnar

Seinni hluta ársins 2025 kom út bókverk um æviverk myndlistarkonunnar Guðrúnar Kristjánsdóttur. Þar er á ferðinni leiðarvísir um innlönd, auðn og einstigi sem Guðrún hefur unnið að til margra ára ásamt dóttur sinni Oddnýju Eir Ævarsdóttur. Í tilefni að útkomu bókarinnar tekur Guðni Tómasson hús á myndlistarkonunni á vinnustofu hennar að Hlöðubergi á Skarðströnd og ræðir við Guðrúnu um lífið með listinni, snjóalög sem leysast upp og bláma fjallanna. Lesari í þættinum er Oddný Eir Ævarsdóttir

Þátturinn er endurtekinn í tilefni af yfirlitssýningu á verkum Guðrúnar á Kjarvalsstöðum 2026.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 53 mín.
e
Endurflutt.
,