Tveir þættir um skáldið Kristján frá Djúpalæk.
Umsjón: Hannes Blandon.
Um skáldið Kristján frá Djúpalæk.
Seinni þáttur um skáldið Kristján frá Djúpalæk. Þátturinn fjallar aðallega um danslagatexta og vísnagerð skáldsins.
Rætt við bróður skáldsins Þórhall Einarsson.
Rætt við Óskar Pétursson
Hannes Blandon les söguna Dansiböll.
Viðtal við Þorstein Jónatansson vin og vopnabróður skáldsins og hann flytur vísur og les kvæðið Hvalfjörður.
Umsjónarmaður: Hannes Blandon.

Stabat Mater op. 61 eftir Luigi Boccherini.
Marta Guðrún Halldórsdóttir, Hlín Pétursdóttir Behrens og Eyjólfur Eyjólfsson syngja með strengjakvintetti sem skipaður er fiðluleikurunum Jaap Schröder og Hildigunni Halldórsdóttur, Svövu Bernharðsdóttur víóluleikara, sellóleikaranum Sigurði Halldórsyni og Dean Ferrell kontrabassaleikara.
Á undan verkinu les Margrét Helga Jóhannsdóttir þýðingu Matthísar Jochumssonar á ljóðinu sem verkið er samið við, Stabat Mater eftir Jacopone da Todi.
Í safnvarpinu Sögur úr raunveruleikanum leita dagskrárgerðarmenn uppi sannar sögur úr íslenskum samtíma.
Á föstudaginn langa 2025 ferðaðist Sigyn Blöndal til San Fernando á Filippseyjum. Bærinn er þekktastur fyrir það að á föstudaginn langa ganga hundruðir manna um götur bæjarins í húðstrýkingum en þar hefur einnig Ruben Enaje látið krossfesta sig síðan 1986. Hann er á leiðinni á krossinn í 36. sinn og Sigyn fær tækifæri til að hanga með þeim krossfesta - ekki á krossinum heldur spjölluðu þau saman undir skugga mangótrjáa, innan um Maríulíkneski og krossinn sjálfan. Við ferðumst saman á staðinn, heyrum af upplifun þeirra sem voru á staðnum og reynum að fá svar við spurningunni, af hverju?
Viðmælendur:
Ruben Enaje
Prófessor Xiao Chua
Pétur Guðmann Guðmannsson
Hugo Goodson
Michael Magee
Lestur:
Ruben Enaje: Björn Þór Sigbjörnsson
Xiao Chua: Hafsteinn Vilhelmsson
Hugo Goodson: Jóhannes Ólafsson
Michael Magee: Atli Már Steinarsson
Dagskrárgerð, framleiðsla og hljóðvinnsla: Sigyn Blöndal

Veðurstofa Íslands.
Á jólatrésskemmtuninni í Skildi, 1935, létu 10 manns lífið. Þar af sjö börn.
Fleiri hafa ekki farist í bruna á Íslandi, að vitað sé, síðan á Sturlungaöld. Margir hlutu alvarleg brunasár og þeirra beið löng sjúkralega. Missirinn í litlu þorpi var ólýsanlegur. Ósegjanlegur. Og þannig, sveipaður þögn. En ef sögur eru ekki sagðar falla þær í gleymsku, svo nú – 90 árum síðar – minnumst við hinna látnu og varðveitum söguna af Brunanum í Skildi.
Umsjón: Dagný Maggýjar
Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen
Jólatréð stóð aðeins fyrir innan miðjan salinn í Skildi. Börnin gengu í kringum tréð og sungu á milli þess sem þau fóru til skiptis upp á svið til að þiggja þar veitingar. Salurinn var í hátíðarbúningi og litfilmur voru settar við ljós til að skapa stemningu. Klukkan var um hálf tíu, og gestir sungu Göngum við í kringum einiberjarunn, þegar skyndilega kviknaði í trénu.
Umsjón: Dagný Maggýjardóttir
Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen
föstudagurinn langi
Sr. Sigurður Már Hannesson
Organisti: Tómas Guðni Eggertsson
Kór Seljakirkju
TÓNLIST Í MESSUNNI
Fyrir predikun
Forspil: Andante Funébre - Harald Fryklöf (1882-1919)
215 (sálmbók frá 1997) Við kirkjunnar klukkna hljóm - Jakob Jónsson/Róbert Abraham Ottósson
Úr hátíðarsöngvum sr. Bjarna Þorsteinssonar - Litanían - Martin Luther/Bjarni Þorsteinsson
Krossinn - Sigurbjörg Þrastardóttir/Tómas Guðni Eggertsson
Eftir predikun
Ave Verum Op.2, 1 - Latneskur texti/Edward Elgar
130(Passíusálmur nr. 50) Hvíli ég nú síðast huga minn - Hallgrímur Pétursson/Sigurður Sævarsson
128 Ég kveiki á kertum mínum - Davíð Stefánsson/Guðrún Böðvarsdóttir
Eftirspil: O Mensch, bewein dein Sünde groß BWV 622 - Johann Sebastian Bach


Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Illugi Jökulsson gramsar í safnakosti Ríkisútvarpsins.
Árið 1937 sagði Ingunn Jónsdóttir frá Kornsá frá því sem henni þótti öðruvísi á sínum æskuárum á síðari hluta 19. aldar miðað við það sem gerðist nú þegar hún var komin um áttrátt. 1945 kom hún aftur í útvarpið, nú níræð, og sagði nú frá eftirminnilegum nágrönnum, Jósef Einarssyni bóndi, Guðrún sambýliskonu hans og sérkennilegri konu sem kallaðist Sigga baun.

Í ár er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur og ritstjóri fæddist. Hann var um áratugaskeið einn svipmesti leikandi á sviði íslensks þjóðlífs, ritstjóri dagblaðs, áhrifamaður í stjórnmálum og athafnalífi og vinsæll rithöfundur. Í verkum sínum dró hann upp áhrifaríka mynd af þeim miklu umskiptum sem urðu á íslensku samfélagi um miðja tuttugustu öld þegar margra alda gömul þjóðmenning hvarf nánast á einni nóttu og Ísland varð að þéttbýlissamfélagi.
Umsjón: Kristján B. Jónasson
Indriði G. Þorsteinsson hóf feril sinn sem rithöfundur og blaðamaður rétt upp úr tvítugu. Hann sagði frá sveitalífinu sem hann hafði kynnst í Skagafirði og bæjarbragnum á Akureyri í Reykjavík. Æska hans og unglingsár voru mörkuð af sífelldum flutningum, mögnuðum ættingjum, hersetu og nýju lífi mölinni.
Umsjónarmenn Lestarinnar vörðu heilum föstudegi í desember 2023 um borð í leið 4, strætó sem keyrir úr Mjódd niður á Hlemm um Breiðholtið. Í þættinum heyrast sögur fólks sem ferðaðist með vagninum þann daginn. Strákur á leið að fá sér drekatattú, venesúelskur söngvari á leið til sálfræðings, danskur kökuskreytingameistari og hagmælti bókasafnarinn Mundi.
Á páskadag fer í loftið nýr útvarpsþáttur um ævi eins viðmælandans Guðmundar Arnfinnssonar og er strætóþátturinn endurfluttur að því tilefni.
Að vanda er nóg að gera hjá meðlimum Kriðpleirs, á fjörur þeirra rekur áhugavert verkefni sem gæti breytt öllu fyrir þá og fjölskyldur þeirra. Ragnar og Árni eru til í þetta en Friðgeir er hins vegar á leiðinni til Tene þar sem hann ætlar að freista þess að klára bók fyrir jólin.
Leikarar: Árni Vilhjálmsson, Friðgeir Einarsson, Ragnar Ísleifur Bragason, Ragnheiður Maísól Sturludóttir, Sigrún Hlín Sigurðardóttir, Halldóra Geirharðsdóttir, Ylfa Ösp Áskelsdóttir, Hákon Jóhannesson, Hjörtur Jóhann Jónsson, Benedikt Nikulás Annes Ketilsson og Jón Kalman Stefánsson.
Hugmynd, handrit og leikstjórn:
Bjarni Jónsson, Friðgeir Einarsson, Árni Vilhjálmsson og Ragnar Ísleifur
Bragason.
Tónlist:
Benni Hemm Hemm.
Hljóðvinnsla:
Gísli Kjaran Kristjánsson.
Ragnar og Árni sjá mikla möguleika varðandi byggingarlandið í Hveragerðagerði, möguleika sem myndu þjóna hagsmunum þeirra og draumum. Friðgeir er hins vegar mættur til Tene til að skrifa.

Steinunn Harðardóttir fjallar um sagnalist og sögumenn. Sagnalist er gömul listgrein sem fylgt hefur manninum um aldaraðir. Sögumenn hafa ávallt verið aufúsugestir og veitt kærkomna afþreyingu. Í þáttunum Sögum og sagnalist mun Steinunn ræða við nokkra sagnamenn nútímans, einn í hverjum þætti.
Þættirnir voru áður á dagskrá árið 2005
Í þættinum er rætt við Bjarna Harðarson, ritstjóra og þjóðfræðinema um frásagnarlistina og sögurnar sem hann segir og hlustum á nokkrar frásagnir af sérkennilegu fólki á suðurlandi og er Óli gamli ket þar í öndvegi.

Útvarpsfréttir.

Tónlistarhátíðin Myrkir músíkdagar er ein elsta tónlistarhátíð landsins, stofnuð árið 1980 af Tónskáldafélagi Íslands, sem vettvangur fyrir íslensk tónskáld til að fá verk sín flutt.
Áhersla er á vandaða samtímatónlist með áherslu á nýja, íslenska tónlist og flytjendur í bland við erlend verk og erlenda flytjendur.
Hljóðrtun frá tónleikum kammerkórsins Cantoque Ensemble sem fram fóru í Hallgrímskirkju á Myrkum músíkdögum, 1. febrúar sl.
Á efnisskrá eru kórverk eftir Hildigunni Rúnarsdóttur:
*Herra, mig heiman þú (1994).
*Þrír þættir úr Requiem: Dies irae (2025 - frumflutningur), Pie Jesu (2023), In paradisum (2022).
*Vorlauf (2002).
*Árþula (2019).
*Magnificat (2013).
*Syngur sumarregn (1994).
*Ó Jesú, séu orðin þín (1992).
*Psalmus 116 (2022).
Einsöngvari: Hallveig Rúnarsdóttir.
Stjórnandi: Steinar Logi Helgason.
Umsjón: Rakel Edda Guðmundsdóttir.
Í þættinum hljómar einnig brot úr tónskáldaspjalli sem boðið var upp á fyrir tónleikana þar sem Elísabet Indra Ragnarsdóttir ræddi við Hildigunni um tónskáldaferilinn og tilurð verkanna sem flutt voru.

„Fegursta sjórekið lík í heimi“
Ingibjörg Haraldsdóttir les þýðingu sína.
(Frá 1998)

Fréttir

Inga Huld Hákonardóttir gerði þættina um konur og kristni árið 1994.
Annar þáttur:
Um sögu dýrlinganna Franz og Klöru af Assisi.
Lesari með umsjónarmanni er Kristján Árnason

frá Veðurstofu Íslands

Hljóðritun frá hátíðartónleikum sem fram fóru í Eldborg, Hörpu 1. mars sl. í tilefni 50 ára afmælis Sumartónleika í Skálholti.
Flutt var fjórða útgáfa Jóhannesarpassíu Johanns Sebastians Bachs frá árinu 1749 og var hér um frumflutning hennar hér á landi að ræða.
Bach flutti Jóhannesarpassíuna fjórum sinnum á starfsævi sinni og breytti henni ávallt fyrir hvern flutning og var þessi fjórða og síðasta útgáfa passíunnar, flutt ári áður en Bach lést.
Flytjendur:
Kammerkórinn Schola Cantorum, Barokkbandið Brák og blásarasveit Finnsku barokksveitarinnar.
Einsöngvarar:
Benedikt Kiristjánsson tenór, sem syngur guðspjallamanninn.
María Konráðsdóttir sópran.
Arnheiður Eiríksdóttir mezzósópran.
Hrólfur Sæmundsson, bassi, sem syngur Pílatus,
Tobias Berndt bass-barítón, sem syngur Jesú.
Stjórnandi: Benedikt Kristjánsson.
Umsjón: Bergljót Haraldsdóttir.
Seinni hluta ársins 2025 kom út bókverk um æviverk myndlistarkonunnar Guðrúnar Kristjánsdóttur. Þar er á ferðinni leiðarvísir um innlönd, auðn og einstigi sem Guðrún hefur unnið að til margra ára ásamt dóttur sinni Oddnýju Eir Ævarsdóttur. Í tilefni að útkomu bókarinnar tekur Guðni Tómasson hús á myndlistarkonunni á vinnustofu hennar að Hlöðubergi á Skarðströnd og ræðir við Guðrúnu um lífið með listinni, snjóalög sem leysast upp og bláma fjallanna. Lesari í þættinum er Oddný Eir Ævarsdóttir
Þátturinn er endurtekinn í tilefni af yfirlitssýningu á verkum Guðrúnar á Kjarvalsstöðum 2026.


frá Veðurstofu Íslands
Í janúar voru augu heimsbyggðarinnar á Grænlandi. Bandaríkjaforseti hótaði að yfirtaka landið, NATÓ virkaði vanmáttugt og óstöðugt, þúsundir mótmæltu á götum úti og síðan, skyndilega, virtist allt vera búið. En hvað svo? Um viku eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti batt enda á hina svokölluðu baráttu um Grænland fóru Pétur Magnússon og Lóa Björk Björnsdóttir til Nuuk til að ræða við fólkið sem situr eftir með spurningar eins og Hvað gerðist? Hvers vegna? Og hvað tekur nú við fyrir grænlensku þjóðina?
Elsta berg á yfirborði jarðar er að finna á Grænlandi og bergið hefur mótandi áhrif á samfélagið sem á því er byggt.
Jarðfræði Grænlands hefur áhrif á innviði, efnahag og lífsskilyrði í landinu og við ætlum að reyna að skilja þessi fyrirbæri betur. Við veltum fyrir okkur blokkunum, heilbrigðiskerfinu, tónlistinni, leikhúsinu og þögninni.
Viðmælendur voru:
Jón Viðar Sigurðsson
Embla Kristjánsdóttir
Mette Marie Jensen
Glenn Møller
Vivi Sørensen
Lög sem notuð voru í þættinum:
Uummatip tusaataa - Uillut
Akimut Ikaarneq - Uillut
Inuuneq Nunaaq - Uillut
Kalaallit Nunaat, Kalaallit Pigaat - Kalaallit
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Um þessar mundir eru liðin 500 ár frá fæðingu tónskáldsins Giovanni Pierluigi da Palestrina. Ekki er vitað nákvæmlega hvenær hann fæddist, en það var á tímabilinu frá 3. febrúar 1525 til 2. febrúar 1526. Palestrina þykir vera einn af mestu tónsnillingum sögunnar og fremstur í flokki tónskálda endurreisnartímans. Þessi þáttur verður helgaður honum. Auk þess sem sungin verða verk eftir Palestrina verður flutt atriði úr óperunni "Palestrina" sem Hans Pfitzner samdi árið 1917 og byggði á sögnum um tónskáldið.

Útvarpsfréttir.
Umsjón: Atli Már Steinarsson.
Nú þegar líður að jólum og sunnudagarnir af skornum skammti langaði mig til að nýta tvo síðustu þætti ársins í trúmál. Eftir slétta viku þá sest ég niður með Hilmari Erni allsherjargoða og við ræðum ásatrú og allt sem henni tengist. En áður en ég sleppi honum frá mér þá langaði mig til að rifja upp þátt sem ég gerði um jólin 2020. Þar ræddi ég við Hjalta Hugason og Jónínu Ólafsdóttur um kristna trú, söguna og þróun í gegnum aldirnar. Þegar við Hilmar ræddum ásatrú þá tengist það eðililega kristinni trú og innleiðingu hennar á landinu svo mér fannst best að fólk hefði tækifæri á að hlusta á þáttinn um kristna trú fyrst. Þátturinn kom nefnilega út sem sérþáttur og ekki lengur hægt að hlusta á hann svo það má vel vera að fólk hafi ekki fengið tækifæri til að hlusta eða vitað af honum fyrr en nú. Ég ætla því að gefa boltann yfir á sjálfan mig fyrir rúmum 3 árum og svo heyrumst við aftur í næstu viku, þegar við ræðum ásatrú.
Umsjón: Atli Már Steinarsson
Viðmælendur: Hjalti Hugason & Jónína Ólafsdóttir

Rúnar Róbertsson verður með hlustendum þar sem huggulegheitin ráða ríkjum og boðið verður upp á ljúfa stund þar sem jafnvel er best að láta fara vel um sig í náttfötunum.

Útvarpsfréttir.

Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson.

Tæplega fimmtíu ára tónlistarferill Bubba Morthens krufinn til mergjar í tali og tónum í tilefni af sjötugsafmælisárinu. Boðið upp á fágætar tónleikaupptökur, viðtöl og umfjallanir um tónlist og texta Bubba sem sumar hverjar hafa ekki heyrst í áraraðir á öldum ljósvakans.
Umsjón: Ásgeir Eyþórsson
Í öðrum þætti er fjallað um árin 1980 til 1982 og þar koma m.a. við sögu hljómsveitirnar Utangarðsmenn og Egó. Heyra má valdar klippur útvarpsþáttunum Árið er, Á vettvangi, Bubbi segir sögur, Fljótt gleymist vetrarþraut, Geymt en ekki gleymt, Grínland Popp, Pönk á Íslandi og Rokkland.
Viðmælendur í öðrum þætti eru Bubbi Morthens, Danny Pollock, Einar Örn Benediktsson, Friðrik Þór Friðriksson, Magnús Stefánsson, Mike Pollock og Þorleifur Guðjónsson.
Viðtöl: Árni Daníel Júlíusson, Freyr Eyjólfsson, Gunnlaugur Jónsson, Hermann Gunnarsson, Jón Hallur Stefánsson, Ólafur Páll Gunnarsson, Sigmar B. Hauksson og Þórður Helgi Þórðarson.
Aðstoð við textagerð: Jónatan Garðarsson.
Lagalisti:
Utangarðsmenn - Poppstjarnan
Utangarðsmenn - Rækjureggae
Utangarðsmenn - Fuglinn er floginn
Utangarðsmenn - Barnið sefur
Utangarðsmenn - Kyrrlátt kvöld
Utangarðsmenn - Hiroshima
Utangarðsmenn - Sigurður var sjómaður
Utangarðsmenn - Það er auðvelt
Utangarðarsmenn - Pretty girls
Utangarðarsmenn - Fuglinn er floginn
Utangarðarsmenn - Where Are The Bodies
Bubbi - Blús fyrir Ingu
Bubbi - Bólivar
Bubbi - Segulstöðvarblús
Bubbi - Þú hefur valið
Bubbi - Plágan
The Magnetics- Shanghai Stripper
Egó - Tungan
Egó - Vægan fékk hann dóm
Egó - Stórir strákar fá raflost
Egó - Móðir
Egó - Sieg Heil
Egó - Ráð til vinkonu

Útvarpsfréttir.

Úrval af tónleikum í tilefni páska.

Fréttir

Matthías Már spilar létta tóna í eldhúsinu um páska.

Fréttastofa RÚV.

Bein útsending frá tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður.
