15:00
Bubbi og böndin
2. þáttur (1980-1982)

Tæplega fimmtíu ára tónlistarferill Bubba Morthens krufinn til mergjar í tali og tónum í tilefni af sjötugsafmælisárinu. Boðið upp á fágætar tónleikaupptökur, viðtöl og umfjallanir um tónlist og texta Bubba sem sumar hverjar hafa ekki heyrst í áraraðir á öldum ljósvakans.

Umsjón: Ásgeir Eyþórsson

Í öðrum þætti er fjallað um árin 1980 til 1982 og þar koma m.a. við sögu hljómsveitirnar Utangarðsmenn og Egó. Heyra má valdar klippur útvarpsþáttunum Árið er, Á vettvangi, Bubbi segir sögur, Fljótt gleymist vetrarþraut, Geymt en ekki gleymt, Grínland Popp, Pönk á Íslandi og Rokkland.

Viðmælendur í öðrum þætti eru Bubbi Morthens, Danny Pollock, Einar Örn Benediktsson, Friðrik Þór Friðriksson, Magnús Stefánsson, Mike Pollock og Þorleifur Guðjónsson.

Viðtöl: Árni Daníel Júlíusson, Freyr Eyjólfsson, Gunnlaugur Jónsson, Hermann Gunnarsson, Jón Hallur Stefánsson, Ólafur Páll Gunnarsson, Sigmar B. Hauksson og Þórður Helgi Þórðarson.

Aðstoð við textagerð: Jónatan Garðarsson.

Lagalisti:

Utangarðsmenn - Poppstjarnan

Utangarðsmenn - Rækjureggae

Utangarðsmenn - Fuglinn er floginn

Utangarðsmenn - Barnið sefur

Utangarðsmenn - Kyrrlátt kvöld

Utangarðsmenn - Hiroshima

Utangarðsmenn - Sigurður var sjómaður

Utangarðsmenn - Það er auðvelt

Utangarðarsmenn - Pretty girls

Utangarðarsmenn - Fuglinn er floginn

Utangarðarsmenn - Where Are The Bodies

Bubbi - Blús fyrir Ingu

Bubbi - Bólivar

Bubbi - Segulstöðvarblús

Bubbi - Þú hefur valið

Bubbi - Plágan

The Magnetics- Shanghai Stripper

Egó - Tungan

Egó - Vægan fékk hann dóm

Egó - Stórir strákar fá raflost

Egó - Móðir

Egó - Sieg Heil

Egó - Ráð til vinkonu

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
,