08:03
Tónlist að morgni föstudagsins langa - Stóð við krossinn mærin mæra

Stabat Mater op. 61 eftir Luigi Boccherini.

Marta Guðrún Halldórsdóttir, Hlín Pétursdóttir Behrens og Eyjólfur Eyjólfsson syngja með strengjakvintetti sem skipaður er fiðluleikurunum Jaap Schröder og Hildigunni Halldórsdóttur, Svövu Bernharðsdóttur víóluleikara, sellóleikaranum Sigurði Halldórsyni og Dean Ferrell kontrabassaleikara.

Á undan verkinu les Margrét Helga Jóhannsdóttir þýðingu Matthísar Jochumssonar á ljóðinu sem verkið er samið við, Stabat Mater eftir Jacopone da Todi.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
,