15:30
Sögur og sagnalist

Steinunn Harðardóttir fjallar um sagnalist og sögumenn. Sagnalist er gömul listgrein sem fylgt hefur manninum um aldaraðir. Sögumenn hafa ávallt verið aufúsugestir og veitt kærkomna afþreyingu. Í þáttunum Sögum og sagnalist mun Steinunn ræða við nokkra sagnamenn nútímans, einn í hverjum þætti.

Þættirnir voru áður á dagskrá árið 2005

Í þættinum er rætt við Bjarna Harðarson, ritstjóra og þjóðfræðinema um frásagnarlistina og sögurnar sem hann segir og hlustum á nokkrar frásagnir af sérkennilegu fólki á suðurlandi og er Óli gamli ket þar í öndvegi.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 30 mín.
e
Endurflutt.
,