Bruninn í Skildi

2. þáttur: Eldur laus

Jólatréð stóð aðeins fyrir innan miðjan salinn í Skildi. Börnin gengu í kringum tréð og sungu á milli þess sem þau fóru til skiptis upp á svið til þiggja þar veitingar. Salurinn var í hátíðarbúningi og litfilmur voru settar við ljós til skapa stemningu. Klukkan var um hálf tíu, og gestir sungu Göngum við í kringum einiberjarunn, þegar skyndilega kviknaði í trénu.

Umsjón: Dagný Maggýjardóttir

Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen

Birt

3. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Bruninn í Skildi

Á jólatrésskemmtuninni í Skildi, 1935, létu 10 manns lífið. Þar af sjö börn.

Fleiri hafa ekki farist í bruna á Íslandi, vitað sé, síðan á Sturlungaöld. Margir hlutu alvarleg brunasár og þeirra beið löng sjúkralega. Missirinn í litlu þorpi var ólýsanlegur. Ósegjanlegur. Og þannig, sveipaður þögn. En ef sögur eru ekki sagðar falla þær í gleymsku, svo 90 árum síðar minnumst við hinna látnu og varðveitum söguna af Brunanum í Skildi.

Umsjón: Dagný Maggýjar

Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen

Þættir

,