Bruninn í Skildi

1. þáttur: Fyrirboðar

Það er 30. desember. Árið er 1935.

Veðrið er kyrrt, snjóföl liggur yfir og hiti er rétt undir frostmarki. samkomuhúsinu Skildi í Keflavík streymir prúðbúinn hópur ungmenna á seinni jólaskemmtun dagsins.

Lítil hnáta skokkar við hlið bróður í nýrri kápu, systur með krullað hár leiðast og piltar í sparibuxum ærslast. Amma leiðir lítinn dreng sem er örlítið haltur.

Engan grunar hættuna framundan.

Umsjón: Dagný Maggýjardóttir

Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen

Birt

2. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Bruninn í Skildi

Á jólatrésskemmtuninni í Skildi, 1935, létu 10 manns lífið. Þar af sjö börn.

Fleiri hafa ekki farist í bruna á Íslandi, vitað sé, síðan á Sturlungaöld. Margir hlutu alvarleg brunasár og þeirra beið löng sjúkralega. Missirinn í litlu þorpi var ólýsanlegur. Ósegjanlegur. Og þannig, sveipaður þögn. En ef sögur eru ekki sagðar falla þær í gleymsku, svo 90 árum síðar minnumst við hinna látnu og varðveitum söguna af Brunanum í Skildi.

Umsjón: Dagný Maggýjar

Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen

Þættir

,