13:00
Land og sonur
1. þáttur: Vegir liggja til allra átta

Í ár er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur og ritstjóri fæddist. Hann var um áratugaskeið einn svipmesti leikandi á sviði íslensks þjóðlífs, ritstjóri dagblaðs, áhrifamaður í stjórnmálum og athafnalífi og vinsæll rithöfundur. Í verkum sínum dró hann upp áhrifaríka mynd af þeim miklu umskiptum sem urðu á íslensku samfélagi um miðja tuttugustu öld þegar margra alda gömul þjóðmenning hvarf nánast á einni nóttu og Ísland varð að þéttbýlissamfélagi.

Umsjón: Kristján B. Jónasson

Indriði G. Þorsteinsson hóf feril sinn sem rithöfundur og blaðamaður rétt upp úr tvítugu. Hann sagði frá sveitalífinu sem hann hafði kynnst í Skagafirði og bæjarbragnum á Akureyri í Reykjavík. Æska hans og unglingsár voru mörkuð af sífelldum flutningum, mögnuðum ættingjum, hersetu og nýju lífi mölinni.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 51 mín.
,