14:03
Sígild og samtímatónlist
Tónlist frá 20. og 21. öld

Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.

Tónlistin í þættinum:

Þrjú eftirspil (Three postludes) eftir Valentin Silvestrov. Verkið er í þremur þáttum:

I Postludium DSCH

II Postludium

III Postludium

Flytjendur: Maacha Deubner, sópran; Simon Fordham, fiðla; Anja Lechner, selló; Silke Avenhaus, píanó.

Útgefið á plötunni Leggiero - Pesante árið 2002.

Veröld fláa sýnir sig úr Fjórum íslenskum þjóðlögum (1982), útsetning eftir Hjálmar H. Ragnarsson á íslensku þjóðlagi. Textinn er þjóðvísa. Cantoque ensemble sygur, stjórnandi er Steinar Logi Helgason. Hljóðritað á tónleikunum Cantoque syngur Hjálmar á Myrkum Músíkdögum 2025.

Extensions 1 for violin and piano (1951) eftir Morton Feldman. Flytjendur: Patricia Kopatchinskjaja, fiðla og Joonas Ahonen, píanó. Upptaka fór fram í desember 2020 í Radio Studio Zürich, Sviss. Útgefið á plötunni Le monde selon George Antheil 2022.

Febrúarhiminn (February sky) (2017) eftir Kolbein Bjarnason. Elektra Ensemble og Duo Harpverk flytja.

Elektra Ensemble skipa: Ástríður Alda Sigurðardóttir, píanó; Emilía Rós Sigfúsdóttir, flauta, bassaflauta; Helga Björg Arnardóttir, klarínett, bassaklarínett; Helga Þóra Björgvinsdóttir, fiðla; Margrét Árnadóttir, selló).

Duo Harpverk skipa Frank Aarnink á slagverk og Katie Buckley á hörpu.

Upptaka fór fram í Stúdíó Sýrlandi í mars og ágúst 2018 og í janúar 2019

Þættir verksins eru sjö og þeim fylgja bakþankar, stutt brot úr ljóðum Stefáns Harðar Grímssonar, Vetrardagur og Óttan felldi sín blátár. Bæði ljóðin birtust í Svartálfadansi sem kom út 1951.

Yfirskriftir þáttanna sem hljóma eru:

Þú ert vor fyrir þúsund árum (You are a thousand year old spring);

Undir hola þagnarskelina (Under the hollow shell of silence);

Frá kaldri ásjónu landsins (From the land's frigid face);

Af ferðum vindanna eirðarlausu (Of the wanderings of restless wind);

Þegar íshjartað slær (When the ice heart beats);

Á mjóum fótleggjum sínum / koma mennirnir eftir hjarninu / með fjöll á herðum sér (On their spindly legs - Men cross snowfields - With mountains on their shoulders)

Útgefið á plötunni Elektra Ensemble 2019.

Frozen state of song [1990-1993] : III. þáttur (af 3) eftir Lukas Ligeti.

Wiener Saxophon-Quartett flytur, en kvartettinn skipa: Susan Fancher, sópransaxófónn ; Sabine Zwick, saxófónn ; Thomas Schön, saxófónn ; Mark Engebretson, saxófónn.

Útgefið á plötunni Reich. Bryars. Ligeti. Carl 1997.

Hvíld (2009, úts. fyrir rödd og píanó 2020) eftir Huga Guðmundsson. Ljóðið orti Snorri Hjartarson. Hildigunnur Einarsdóttir mezzósópran syngur, Guðrún Dalía Salómonsdóttir leikur á píanó. Hljóðritað á tónleikum sem báru yfirskriftina Nýtt og nýrra á Myrkum Músíkdögum 2025.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
,