07:03
Morgunútvarpið
Biskupsmálið, myndavélasímar og öryggisráðstefnan í München

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

30 ár eru liðin frá því að Biskupsmálið kom upp hér á landi en málið hófst þegar þegar Sigrún Pálína Ingvarsdóttir sakaði Ólaf Skúlason, biskup Íslands, um kynferðisbrot. Í kjölfarið stigu fleiri konur fram og sögðu hann hafa brotið á sér, þar á meðal Guðrún Ebba Ólafsdóttir, dóttir Ólafs. Gabríela Bryndís Ernudóttir sálfræðingur fjallar um málið í nýju hlaðvarpi en fyrsti þáttur kom út á sunnudag. Hún kom til okkar í Morgunútvarpið sagði frá nýjum upplýsingum sem koma fram í hlaðvarpinu og af hverju hún ákvað að fjalla um málið á þessum tímapunkti.

Langflest erum við með háþróaaðar myndavélar í símunum okkar. En eru þessar myndavélar að mynda raunverulegar minningar okkar eða hefur tæknin tekið yfir? Guðmundur Jóhannsson fór yfir þetta áhugaverða mál í Tæknihorninu.

Mikil svifryks­meng­un var á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um helgina. Litlu máli virðist skipta þó göturnar hafi verið rykbundnar og samkvæmt nýjustu fréttum er allt rykbindiefni búið á landinu. Örn Úlfar Sævarsson íbúi í Reykjavík skrifaði færslu á Facebook um helgina og sagði óboðlegt að gefast upp fyrir þessu, kallaði eftir viðbrögðum frá pólitíkinni og setti spurningamerki við að hleypa börnunum sínum út í þeim aðstæðum sem hafa ríkt. Við fengum Hjalta Má Björnsson, formann félags lækna gegn umhverfisvá til okkar og fræddumst um skaðleg áhrif svifryks á fólk.

Ráðamenn hittust á öryggisráðstefnunni í München um helgina. Málefni norðurslóða hafa verið í brennidepli eftir að forseti Bandaríkjanna setti stöðu Grænlands rækilega á dagskrá. Evrópskir ráðamenn biðu því með öndina í hálsinum eftir erindi Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, eftir að varaforsetinn JD Vance lét þá heyra það við sama tilefni í fyrra. Mildur tónn var hins vegar í ræðu Rubio. Á fundinum varð einnig ljóst að Íslensk stjórnvöld ætli að verja um milljarði króna í vopnakaup fyrir Úkraínu á næstunni, sem var talsvert rætt hér heima um helgina. Jónas G. Allansson, Skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, er nýkominn heim af fundinum. Hann kíkti í Morgunútvarpið og fór yfir stöðuna.

Morgunútvarpið beindi sjónum sínum að Ólympíuleikunum á Ítalíu og ræddi við Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson um það sem hefur borið hæst þar undanfarna daga.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,