10:13
Flugur
Söngvar og kvæði

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.

Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Lögð er áhersla á ljóð þekktra skálda og lög sem hafa verið samin við þau, þó svo að fyrsta lagið sé þeirrar gerðar að það er óvíst hvort kom á undan, kvæðið eða lagið. Það er kvæðið Blástjarnan eftir Bjarna Thorarensen, en höfundur lagsins er ókunnur. Djasskvartettinn Norr 4 leikur það lag. Hjalti Jónsson og Lára Sóley Jóhannsdóttir flytja Ég bið að heilsa, ljóð Jónasar Hallgrímssonar og lag Inga T. Lárussonar. Pálmi Gunnarsson syngur lag við ljóðið Draumur aldamótabarnsins og Stefán Hilmarsson syngur Vetrarljóð, bæði lögin eftir Magnús Þór Sigmundsson og kvæðin eftir Margréti Jónsdóttur. Anton Kristinn Guðmundsson syngur tvö kvæði langafa síns Guðmundar Böðvarssonar, en lögin eru annarsvegar eftir Auði Haraldsdóttur og hinsvegar Sigurð Rúnar Jónsson. Þetta eru Völuvísa og Fylgd. Tvíeykið Þau flytja þrjú lög Garðars Borgþórssonar við ljóð skáldkvenna, við ljóðin Vont og verst og Til kvæðagyðjunnar eftir Ólöfu frá Hlöðum og Heyrði ég í hamrinum við ljóð Huldu. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 45 mín.
,