Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Ísland er í tíunda sæti á spillingarlisa Transparency International, samtaka sem fylgjast með og mæla spillingu í ríkjum. Til okkar kom Þorvaldur Logason, heimspekingur og félagsfræðingur, sem hefur velt spillingu mikið fyrir sér og skrifað bók um fyrirbærið.
Björn Malmquist fréttamaður í Brussel gerði upp öryggisráðstefnuna í Munchen með Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur fyrrverandi utanríkisráðherra. Hann ræddi líka um öryggi orkuinnviða við Finn Beck, framkvæmdastjóra Samorku.
Áramót eru framundan í Kína, kínverska nýárið hefst á morgun 17. febrúar. Þá rennur upp ár hestsins og ári snáksins lýkur. Nýju ári fylgja mikil hátíðarhöld sem vara í tvær vikur. Magnús Björnsson, forstöðumaður Konfúsíuarstofnunarinnar hér á landi, kom til okkar.
Tónlist:
Willie Nelson, Norah Jones - Dreams come true.
Dai Xiaolian - Kai gu yin = Lamentation on the past.
Rolling Stones - Wild horses.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Lögð er áhersla á ljóð þekktra skálda og lög sem hafa verið samin við þau, þó svo að fyrsta lagið sé þeirrar gerðar að það er óvíst hvort kom á undan, kvæðið eða lagið. Það er kvæðið Blástjarnan eftir Bjarna Thorarensen, en höfundur lagsins er ókunnur. Djasskvartettinn Norr 4 leikur það lag. Hjalti Jónsson og Lára Sóley Jóhannsdóttir flytja Ég bið að heilsa, ljóð Jónasar Hallgrímssonar og lag Inga T. Lárussonar. Pálmi Gunnarsson syngur lag við ljóðið Draumur aldamótabarnsins og Stefán Hilmarsson syngur Vetrarljóð, bæði lögin eftir Magnús Þór Sigmundsson og kvæðin eftir Margréti Jónsdóttur. Anton Kristinn Guðmundsson syngur tvö kvæði langafa síns Guðmundar Böðvarssonar, en lögin eru annarsvegar eftir Auði Haraldsdóttur og hinsvegar Sigurð Rúnar Jónsson. Þetta eru Völuvísa og Fylgd. Tvíeykið Þau flytja þrjú lög Garðars Borgþórssonar við ljóð skáldkvenna, við ljóðin Vont og verst og Til kvæðagyðjunnar eftir Ólöfu frá Hlöðum og Heyrði ég í hamrinum við ljóð Huldu. Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Andri Snær Magnason er nýkominn til landsins eftir að hafa fylgt eftir heimildarmyndinni Time and Water, sem gerð er upp úr bók hans Um tímann og vatnið. Myndin hefur verið sýnd til dæmis á Sundance kvikmyndahátíðinni og vakti mikla athygli. Við fengum Andra til að segja okkur frá myndinni og hvernig hún kom til og hver væri munurinn á henni og bókinni. Svo tókum við aðeins með honum stöðuna í loftslagsmálum, því það er auðvitað það sem Andri skrifaði um í bókinni, sem kom út árið 2019, þar sem hann notaði sögur af forfeðrum sínum og ættingjum til þess að fjalla um loftslagsvísindin og þær breytingar sem eru að verða sem hafa áhrif á allt líf á jörðinni. Við ræddum hvernig umræðan hefur breyst undanfarnið, til dæmis þegar Bandaríkjastjórn hefur afturkallað ákvaraðnir um hættu vegna gróðurhúsalofttegunda.
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var svo Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur þekktur sem Dr. Gunni. Við fengum hann til að segja okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Gunnar talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Einn, tveir þrír, fjór... Bítlarnir í tímanna rás e. Craig Brown (Þýð. Helgi Ingólfsson)
Tune in e. Mark Lewisohn
Ævisögur Charles Mingus, Thelonious Monk og Chet Baker
Bækur Braga Ólafssonar, Braga Páls Sigurðsson og Ólaf Gunnarsson
Kokkáll e. Dóra DNA
Bjarmalönd e. Val Gunnarsson
Reyndu aftur, ævisaga Magnúsar Eiríkssonar e. Tómas Hermannsson
Boy on Fire um Nick Cave e. Matt Mordue
The Big Midwwk, Life inside the Fall e. Steve Hanley
Tónlist í þættinum í dag:
Frost / Pálmi Gunnarsson og Ragnheiður Gröndal (Pálmi Gunnarsson, Ragnheiður Gröndal, Stefán Örn Gunnlaugsson)
Frostrósir / Haukur Morthens (Freymóður Jóhannsson)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Nýkjörinn formaður Framsóknarflokksins fundar með þingflokki hans í dag.
Fólk er verr varið fyrir loftmengun inni í bílum í umferðinni en undir berum himni, að sögn læknis sem furðar sig á tilmælum um að forðast það að vera úti þegar er mikið svifryk.
Ný samræmd próf í stæðfræði og lesskilningi verða í grunnskólum í mars. Samræmd próf hafa ekki verið lögð fyrir nemendur í fimm ár.
Ástvinir rússneska stjórnarandstæðingsins Navalnys og vestrænir diplómatar komu saman við leiði hans í morgun. Tvö ár eru síðan Navalny lést í fangelsi. Rússnesk stjórnvöld neita enn ásökunum um að hafa drepið hann.
Utanríkisráðherra telur að samskipti Dana og Grænlendinga við Bandaríkin verði jákvæðari í kjölfar öryggisráðstefnunnar í München um helgina.
Í drögum að samgönguáætlun er gert ráð fyrir að framlög til almenningssamgangna á landsbyggð dragist saman. Forstöðumaður hjá Vegagerðinni segir ólíklegt að hægt sé að bæta úr almenningssamgöngum á Vestfjörðum ef fjármagn vanti til að standa undir núverandi kerfi.
Í dag er bolludagur og til siðs að landsmenn belgi sig út af bollum af öllum stærðum og gerðum. Við bregðum okkur í bakarí í fréttatímanum
Skíðamaðurinn Jón Erik Sigurðsson fer senn fyrstur af stað í seinni ferð í svigi á Vetrarólympíuleikunum.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Norsk-íslenski fjárfestirinn Jón Stephenson von Tetzhner íhugar að flytja frá Bandaríkjunum eftir að hafa búið þar í meira en áratug.
Jón er tiltöluglega lítt þekktur á Íslandi þrátt fyrir að vera nokkuð stórtækur í fjárfestingum hér. Hann á meirihluta í símafyrirtækinu Hringdu, fasteignir á Eiðistorgi, hluti í mjólkurvinnslunni Örnu, tæknifyrirtækið Vivaldi sem rekur samnefndan vafra og hlut í bókunarfyrirtækinu Dohop. Jón er auk þess styrktaraðili íþróttafélagsins Gróttu á Seltjarnarnesi.
Þetta helst ræðir við Jón um stjórnmálaástandið í Bandaríkjunum, af hverju hann íhugar að flytja frá landinu og áhyggjur hans af einokun bandarískra stórfyrirtækja á tæknimarkaði.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð að vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins.
,,Altarissakramentið er líkami og blóð Jesú Krists,’’ segir kanslari kaþólsku kirkjunnar. Þáttastjórnandi er engu nær. Kirkjunnar fólk segir altarissakramentið aðal sakramentið í kaþólskri trú þar sem sókn sameinast Jesú Kristi. Þetta er bæði mikið kraftaverk og mikil ráðgáta, segir á vef kaþólsku kirkjunnar á Íslandi. Leitast er eftir að skilja fyrirbærið til hlítar í þætti dagsins. Vangaveltur um notkun og magn brauðs og víns koma við sögu en kaþólska kirkjan verslar ekki vín sitt í áfengisverslunum hér á landi eins og við flest. Einnig koma við sögu dæmisögur úr Biblíunni, guðslíkamahús, fermingarbörn í Hafnarfirði og ýmislegt fleira. Ferðalagið er drifið áfram af sögu Carlos Acutis, nýslegins dýrlings sem gjarnan er kallaður verndari internetsins enda fyrsti þúsaldardýrlingurinn sem þekktur er fyrir forritun á gagnagrunni um kraftaverk tengd altarissakramentinu. Við heimsækjum systur Pentecostés, nunnu í St. Jósefskirkju. Hún er nýkomin heim úr pílagrímsferð til Ítalíu með íslenskum unglingum. Þangað fóru þeir meðal annars til að vitja helgs dóms Acutis.
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Þrjú eftirspil (Three postludes) eftir Valentin Silvestrov. Verkið er í þremur þáttum:
I Postludium DSCH
II Postludium
III Postludium
Flytjendur: Maacha Deubner, sópran; Simon Fordham, fiðla; Anja Lechner, selló; Silke Avenhaus, píanó.
Útgefið á plötunni Leggiero - Pesante árið 2002.
Veröld fláa sýnir sig úr Fjórum íslenskum þjóðlögum (1982), útsetning eftir Hjálmar H. Ragnarsson á íslensku þjóðlagi. Textinn er þjóðvísa. Cantoque ensemble sygur, stjórnandi er Steinar Logi Helgason. Hljóðritað á tónleikunum Cantoque syngur Hjálmar á Myrkum Músíkdögum 2025.
Extensions 1 for violin and piano (1951) eftir Morton Feldman. Flytjendur: Patricia Kopatchinskjaja, fiðla og Joonas Ahonen, píanó. Upptaka fór fram í desember 2020 í Radio Studio Zürich, Sviss. Útgefið á plötunni Le monde selon George Antheil 2022.
Febrúarhiminn (February sky) (2017) eftir Kolbein Bjarnason. Elektra Ensemble og Duo Harpverk flytja.
Elektra Ensemble skipa: Ástríður Alda Sigurðardóttir, píanó; Emilía Rós Sigfúsdóttir, flauta, bassaflauta; Helga Björg Arnardóttir, klarínett, bassaklarínett; Helga Þóra Björgvinsdóttir, fiðla; Margrét Árnadóttir, selló).
Duo Harpverk skipa Frank Aarnink á slagverk og Katie Buckley á hörpu.
Upptaka fór fram í Stúdíó Sýrlandi í mars og ágúst 2018 og í janúar 2019
Þættir verksins eru sjö og þeim fylgja bakþankar, stutt brot úr ljóðum Stefáns Harðar Grímssonar, Vetrardagur og Óttan felldi sín blátár. Bæði ljóðin birtust í Svartálfadansi sem kom út 1951.
Yfirskriftir þáttanna sem hljóma eru:
Þú ert vor fyrir þúsund árum (You are a thousand year old spring);
Undir hola þagnarskelina (Under the hollow shell of silence);
Frá kaldri ásjónu landsins (From the land's frigid face);
Af ferðum vindanna eirðarlausu (Of the wanderings of restless wind);
Þegar íshjartað slær (When the ice heart beats);
Á mjóum fótleggjum sínum / koma mennirnir eftir hjarninu / með fjöll á herðum sér (On their spindly legs - Men cross snowfields - With mountains on their shoulders)
Útgefið á plötunni Elektra Ensemble 2019.
Frozen state of song [1990-1993] : III. þáttur (af 3) eftir Lukas Ligeti.
Wiener Saxophon-Quartett flytur, en kvartettinn skipa: Susan Fancher, sópransaxófónn ; Sabine Zwick, saxófónn ; Thomas Schön, saxófónn ; Mark Engebretson, saxófónn.
Útgefið á plötunni Reich. Bryars. Ligeti. Carl 1997.
Hvíld (2009, úts. fyrir rödd og píanó 2020) eftir Huga Guðmundsson. Ljóðið orti Snorri Hjartarson. Hildigunnur Einarsdóttir mezzósópran syngur, Guðrún Dalía Salómonsdóttir leikur á píanó. Hljóðritað á tónleikum sem báru yfirskriftina Nýtt og nýrra á Myrkum Músíkdögum 2025.
Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Í upphafi fjöllum við um Ursulu K. Le Guin bandaríska furðusagnahöfundinum sem lést árið 2018, en hún átti langan og merkilegan feril að baki og braut blað í því að færa vísindaskáldskap og fantasíur upp um virðingarflokk. Rætt verður við aðdáanda bóka Le Guin, Þórhall Auð Helgason óperusöngvara sem hefur lesið verkin sum hver oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Það verða einnig nokkur viðtalsbrot úr innslagi í Lestinni á sínum tíma, stuttu eftir að Le Guin lést.
Í síðari hluta þáttar beinum við sjónum okkar að Frakklandi. Nýjasta bók rithöfundarins og kvikmyndagerðarkonunnar Virginie Despentes, Cher Connard frá 2022 sem nú hefur komið út hjá Benedikt útgáfu og ber titilinn Kæri fáviti. Við hringjum í Kristínu Jónsdóttur sem búsett er í París og ræðum bókina og Despentes. Bækur þessa alræmda franska höfundar hafa aldrei verið þýddar á íslensku áður en þær hafa alltaf vakið gríðarlegt umtal í Frakklandi. Í bókum sínum tekst hún á við viðkvæm efni; vændi, kynferðisofbeldi, fátækt, fíkn og jaðarsetningu. Kæri fáviti er bréfaskáldsaga, gerist að mestu í einkaskilaboðum á instagram og er uppgjör við #metoo og alkahólisma svo fátt eitt sé nefnt.
Viðmælendur: Þórhallur Auður Helgason, Brynhildur Björnsdóttir, Eyja Margrét Brynjarsdóttir og Kristín Jónsdóttir.
Lesarar: Lóa Björk Björnsdóttir, Kristján Guðjónsson og Anna Gyða Sigurgísladóttir.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Hörður Ágústsson er lykilpersóna í íslenskri menningarsögu. Hann var í framvarðarsveit myndlistar á síðustu öld, leiðandi rödd módernismans og lykilmaður í þróun abstraktsins hér á landi. Hörður var einnig mikilvirkur fræðimaður á sviði íslenskrar húsagerðalistar og brautryðjandi í bókahönnun og auglýsingagerð. „Í mér eru arkitekt og ljóðskáld, og þeir eru sífellt að rífast,“ sagði hann eitt sinn, en á nýrri sýningu um listamanninn í Gerðarsafni er fókusinn settur á arkitektinn Hörð, og dregin fram verk sem sýna fyrst og fremst nálgun hans á form og litafræði. Sýningarstjórar eru þau Brynja Sveinsdóttir forstöðumaður Gerðarsafns og grafísku hönnuðurnir Arnar Freyr Guðmundsson og Birna Geirfinnsdóttir. VIð hittum þau á safninu í þætti dagsins.
Einnig rýnir Gauti Kristmannsson í Dúkkuverksmiðjuna eftir Júlíu Margréti Einarsdóttur og við þjófstörtum Aldrei las ég Laxness bókaklúbbinum.
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Það er verið að rífast um Palestínu og pólitík á kvikmyndahátíðinni Berlinale. Það var þýski leikstjórinn Wim Wenders sem lét fyrstu umdeildu ummælin falla í þeirri rökræðu. Við rekjum atburðarrásina og um hvað er tekist á um.
Hamnet í leikstjórn Chloé Zhao gæti verið mynd ársins. Myndin er byggð á samnefndri bók eftir Maggie O'Farrel, sem er söguleg skáldsaga um sonarmissi Shakespeare og hvernig það varð kveikjan, sársaukinn, að harmleiknum Hamlet. Við ræðum þessa mynd í þaula við Ölmu Mjöll Ólafsdóttur, Helgu Dögg Ólafsdóttur og Kolfinnu Nikulásdóttur, sem voru snortnar yfir myndinni.

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Nokkur vel valin lög

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður að einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.
Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð að vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins.
,,Altarissakramentið er líkami og blóð Jesú Krists,’’ segir kanslari kaþólsku kirkjunnar. Þáttastjórnandi er engu nær. Kirkjunnar fólk segir altarissakramentið aðal sakramentið í kaþólskri trú þar sem sókn sameinast Jesú Kristi. Þetta er bæði mikið kraftaverk og mikil ráðgáta, segir á vef kaþólsku kirkjunnar á Íslandi. Leitast er eftir að skilja fyrirbærið til hlítar í þætti dagsins. Vangaveltur um notkun og magn brauðs og víns koma við sögu en kaþólska kirkjan verslar ekki vín sitt í áfengisverslunum hér á landi eins og við flest. Einnig koma við sögu dæmisögur úr Biblíunni, guðslíkamahús, fermingarbörn í Hafnarfirði og ýmislegt fleira. Ferðalagið er drifið áfram af sögu Carlos Acutis, nýslegins dýrlings sem gjarnan er kallaður verndari internetsins enda fyrsti þúsaldardýrlingurinn sem þekktur er fyrir forritun á gagnagrunni um kraftaverk tengd altarissakramentinu. Við heimsækjum systur Pentecostés, nunnu í St. Jósefskirkju. Hún er nýkomin heim úr pílagrímsferð til Ítalíu með íslenskum unglingum. Þangað fóru þeir meðal annars til að vitja helgs dóms Acutis.

Skáldsaga Halldórs Laxness um hinn 18 ára gamla Stein Elliða kom út árið 1927 þegar Halldór var sjálfur 25 ára gamall.
Þessi saga um leit ungs manns að eigin lífsskoðunum þótti marka tímamót í íslenskri bókmenntasögu.
Valdimar Örn Flygenring las söguna fyrir útvarpið árið 1991.


frá Veðurstofu Íslands

Svanhildur Óskarsdóttir les sálmana í hljóðritun frá árinu 1998.
Árið 1944 var tekinn upp sá siður hjá Ríkisútvarpinu að lesa alla Passíusálma Hallgríms Péturssonar á föstunni.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Andri Snær Magnason er nýkominn til landsins eftir að hafa fylgt eftir heimildarmyndinni Time and Water, sem gerð er upp úr bók hans Um tímann og vatnið. Myndin hefur verið sýnd til dæmis á Sundance kvikmyndahátíðinni og vakti mikla athygli. Við fengum Andra til að segja okkur frá myndinni og hvernig hún kom til og hver væri munurinn á henni og bókinni. Svo tókum við aðeins með honum stöðuna í loftslagsmálum, því það er auðvitað það sem Andri skrifaði um í bókinni, sem kom út árið 2019, þar sem hann notaði sögur af forfeðrum sínum og ættingjum til þess að fjalla um loftslagsvísindin og þær breytingar sem eru að verða sem hafa áhrif á allt líf á jörðinni. Við ræddum hvernig umræðan hefur breyst undanfarnið, til dæmis þegar Bandaríkjastjórn hefur afturkallað ákvaraðnir um hættu vegna gróðurhúsalofttegunda.
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var svo Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur þekktur sem Dr. Gunni. Við fengum hann til að segja okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Gunnar talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Einn, tveir þrír, fjór... Bítlarnir í tímanna rás e. Craig Brown (Þýð. Helgi Ingólfsson)
Tune in e. Mark Lewisohn
Ævisögur Charles Mingus, Thelonious Monk og Chet Baker
Bækur Braga Ólafssonar, Braga Páls Sigurðsson og Ólaf Gunnarsson
Kokkáll e. Dóra DNA
Bjarmalönd e. Val Gunnarsson
Reyndu aftur, ævisaga Magnúsar Eiríkssonar e. Tómas Hermannsson
Boy on Fire um Nick Cave e. Matt Mordue
The Big Midwwk, Life inside the Fall e. Steve Hanley
Tónlist í þættinum í dag:
Frost / Pálmi Gunnarsson og Ragnheiður Gröndal (Pálmi Gunnarsson, Ragnheiður Gröndal, Stefán Örn Gunnlaugsson)
Frostrósir / Haukur Morthens (Freymóður Jóhannsson)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Það er verið að rífast um Palestínu og pólitík á kvikmyndahátíðinni Berlinale. Það var þýski leikstjórinn Wim Wenders sem lét fyrstu umdeildu ummælin falla í þeirri rökræðu. Við rekjum atburðarrásina og um hvað er tekist á um.
Hamnet í leikstjórn Chloé Zhao gæti verið mynd ársins. Myndin er byggð á samnefndri bók eftir Maggie O'Farrel, sem er söguleg skáldsaga um sonarmissi Shakespeare og hvernig það varð kveikjan, sársaukinn, að harmleiknum Hamlet. Við ræðum þessa mynd í þaula við Ölmu Mjöll Ólafsdóttur, Helgu Dögg Ólafsdóttur og Kolfinnu Nikulásdóttur, sem voru snortnar yfir myndinni.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
30 ár eru liðin frá því að Biskupsmálið kom upp hér á landi en málið hófst þegar þegar Sigrún Pálína Ingvarsdóttir sakaði Ólaf Skúlason, biskup Íslands, um kynferðisbrot. Í kjölfarið stigu fleiri konur fram og sögðu hann hafa brotið á sér, þar á meðal Guðrún Ebba Ólafsdóttir, dóttir Ólafs. Gabríela Bryndís Ernudóttir sálfræðingur fjallar um málið í nýju hlaðvarpi en fyrsti þáttur kom út á sunnudag. Hún kom til okkar í Morgunútvarpið sagði frá nýjum upplýsingum sem koma fram í hlaðvarpinu og af hverju hún ákvað að fjalla um málið á þessum tímapunkti.
Langflest erum við með háþróaaðar myndavélar í símunum okkar. En eru þessar myndavélar að mynda raunverulegar minningar okkar eða hefur tæknin tekið yfir? Guðmundur Jóhannsson fór yfir þetta áhugaverða mál í Tæknihorninu.
Mikil svifryksmengun var á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Litlu máli virðist skipta þó göturnar hafi verið rykbundnar og samkvæmt nýjustu fréttum er allt rykbindiefni búið á landinu. Örn Úlfar Sævarsson íbúi í Reykjavík skrifaði færslu á Facebook um helgina og sagði óboðlegt að gefast upp fyrir þessu, kallaði eftir viðbrögðum frá pólitíkinni og setti spurningamerki við að hleypa börnunum sínum út í þeim aðstæðum sem hafa ríkt. Við fengum Hjalta Má Björnsson, formann félags lækna gegn umhverfisvá til okkar og fræddumst um skaðleg áhrif svifryks á fólk.
Ráðamenn hittust á öryggisráðstefnunni í München um helgina. Málefni norðurslóða hafa verið í brennidepli eftir að forseti Bandaríkjanna setti stöðu Grænlands rækilega á dagskrá. Evrópskir ráðamenn biðu því með öndina í hálsinum eftir erindi Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, eftir að varaforsetinn JD Vance lét þá heyra það við sama tilefni í fyrra. Mildur tónn var hins vegar í ræðu Rubio. Á fundinum varð einnig ljóst að Íslensk stjórnvöld ætli að verja um milljarði króna í vopnakaup fyrir Úkraínu á næstunni, sem var talsvert rætt hér heima um helgina. Jónas G. Allansson, Skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, er nýkominn heim af fundinum. Hann kíkti í Morgunútvarpið og fór yfir stöðuna.
Morgunútvarpið beindi sjónum sínum að Ólympíuleikunum á Ítalíu og ræddi við Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson um það sem hefur borið hæst þar undanfarna daga.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Gasalega fínn þáttur í þetta skiptið, frumfluttningur á Sanity með HAMPARAT, fréttir af Jarvis Cocker fer í skónna hans Iggy Pop, Lauryn Hill og hinn magnaði leikur; Hvert er lagið?
Lagalisti þáttarins:
BLOODGROUP – Fall
FOREIGNER – Cold As Ice
DURAN DURAN – Planet earth
ARLO PARKS – 2SIDED
AMABADAMA – Gróðurhúsið
PAUL SIMON – 50 Ways To Leave Your Lover
LAURYN HILL – Doo wop (that thing)
THE BLACK KEYS – No Rain, No Flowers
ADDISON RAE – Headphones On
ELVAR – Miklu betri einn
LEGEND – Frostbite
ELÍN HALL IZLEIFUR – Hugsa alltof mikið um þig
FLEETWOOD MAC – Rhiannon (Will You Ever Win)
ALSÆLA – Þorraþræll
VANILLA ICE – Ice Ice Baby
ÁRNY MARGRÉT – Hakk og spaghettí
PRINS THOMAS ISOEBEL – Linger
BUBBI MORTHENS – Aldrei Fór Ég Suður
MICHAEL KIWANUKA – Cold Little Heart
CMAT – Ready
SNOW PATROL – Chasing Cars
SÁLIN HANS JÓNS MÍNS – Á Nýjum Stað
AEROSMITH – I Don't Want To Miss A Thing
R.E.M. – Drive
THE ANIMALS – Don't Let Me Be Misunderstood
MADONNA – Frozen
HJALTALÍN – Feels Like Sugar
HAMPARAT – Sanity (Live)
PULP – Babies
IGGY POP – Gardenia
KINGFISHR – Killeagh
BILLY STRINGS – Gild the Lily
UNNUR ELÍSABET – Skíthrædd
TEARS FOR FEARS – Everybody Wants To Rule The World
NOAH KAHAN – The Great Divide
ASAP ROCKY – Punk Rocky
PORTUGAL. THE MAN – Silver Spoons
MARK RONSON RAYE – Suzanne
PÁLL ÓSKAR – Betra Líf
OLIVIA DEAN – Nice To Each Other
OMD – Enola Gay
THE BEATHS - Straight line was a lie

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Nýkjörinn formaður Framsóknarflokksins fundar með þingflokki hans í dag.
Fólk er verr varið fyrir loftmengun inni í bílum í umferðinni en undir berum himni, að sögn læknis sem furðar sig á tilmælum um að forðast það að vera úti þegar er mikið svifryk.
Ný samræmd próf í stæðfræði og lesskilningi verða í grunnskólum í mars. Samræmd próf hafa ekki verið lögð fyrir nemendur í fimm ár.
Ástvinir rússneska stjórnarandstæðingsins Navalnys og vestrænir diplómatar komu saman við leiði hans í morgun. Tvö ár eru síðan Navalny lést í fangelsi. Rússnesk stjórnvöld neita enn ásökunum um að hafa drepið hann.
Utanríkisráðherra telur að samskipti Dana og Grænlendinga við Bandaríkin verði jákvæðari í kjölfar öryggisráðstefnunnar í München um helgina.
Í drögum að samgönguáætlun er gert ráð fyrir að framlög til almenningssamgangna á landsbyggð dragist saman. Forstöðumaður hjá Vegagerðinni segir ólíklegt að hægt sé að bæta úr almenningssamgöngum á Vestfjörðum ef fjármagn vanti til að standa undir núverandi kerfi.
Í dag er bolludagur og til siðs að landsmenn belgi sig út af bollum af öllum stærðum og gerðum. Við bregðum okkur í bakarí í fréttatímanum
Skíðamaðurinn Jón Erik Sigurðsson fer senn fyrstur af stað í seinni ferð í svigi á Vetrarólympíuleikunum.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Í dag fór fram svigkeppni karla á Vetrarólympiuleikunum á Ítalíu og áttum við Íslendingar einn fulltrúa í keppninni Jón Erik Sigurðsson. Aðstæður voru vægast sagt mjög krefjandi í fyrri ferð keppninnar og svo fór að um helmingur náði ekki að klára fyrri ferð. Það gerði hins vegar okkar maður sem var með þrítugasta besta tímann eftir fyrri ferð sem þýddi að hann fór fyrstur niður þá seinni og endaði samanlagt í 25 sæti sem er besti árangur Íslendings á Olympiuleikum í alpagreinum í 20 ár. Systir hans Agla Sigurðardóttir var meðal áhorfenda og við ætlum að heyra í henni hljóðið í henni
Á morgun fer fram málþing þar sem verður fjallað um álitamál um gjaldtöku á ferðamannastöðum. Málþingið fer fram í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi undir yfirskriftinni: GJALDSKYLDA – þjónustugjöld eða þjórfé?- Gjaldtaka á ferðamannastöðum – hlutverk, ábyrgð, réttindi, skyldur.
Þar munu fulltrúar ólíkra sjónarhorna ræða hvernig tryggja megi að gjaldtaka byggi á skýrum forsendum og stuðli að raunverulegum ábata fyrir staði, samfélög og gesti.
Margrét Björk Björnsdóttir, fagstjóri Áfangastaða- og Markaðsstofu Vesturlands ætlar að ræða við okkur um málþingið og undirbúning fyrir þeirra sólmyrkvann í ágúst en búist er við miklum fjölda á svæðið. Við hringdum í hana.
Það hafa verðið vandræði í Landeyjarhöfn og Herjólfur hefur ítrekað þurft að sigla til Þorlákshafnar - Framkvæmdastjóri Herjólfs er Ólafur Jóhann Borgþórsson var á línunni
Fyrir helgi var greint frá því að borgarráð hafi samþykkt kaupsamning þar sem Toppstöðin ehf. kaupir Toppstöðina í Elliðaárdal af Reykjavíkurborg en endanlegt kaupverð er um 440 milljónir. Borgin hefur sagt að í húsinu sé stefnt að því að koma á fót miðstöð útivistar sem styður við fjölbreytta starfsemi í Elliðaárdal. Hilmar Ingimundarson og Halldór Jensson fulltrúar kaupanda komu til okkar.
Kýrin Plóma frá Gunnbjarnarholti setti Íslandsmet á síðasta ári en hún mjólkaði mest allra kúa á árinu. Arnar Bjarni Eiríksson, kúabóndi í Gunnbjarnarholti í uppsveitum Árnessýslu sem er með hátæknifjós þar og framleiðir hrepppamjólk við hringdum í hann.
Listamaðurinn Örn Smári Gíslason hannar frímerki og plötuumslög. Sjálfsagt dreymir einhverja um að feta í þessi fótspor. En hvernig hannar maður slíkt? Það hljóta að vera einhverjar reglur um frímerki t.d. Örn Smári kíkti á okkur.

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Ólafur Páll Gunnarsson spilar tónlist að sínum hætti - hitt og þetta og þetta og allt í bland.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.


Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.
Unnur Elísabet kynnir plötuna Skíthrædd. Í verkinu segir hún sannar sögur úr eigin lífi þar sem húmor og berskjölduð einlægni fara saman í grípandi popptónlist. Margrét Maack settist niður með henni og þær ræddu ferlið að baki plötunni og hvers vegna það getur verið styrkleiki að viðurkenna að maður sé „skíthræddur“.

Gjallarhorn fyrir nýjar raddir, nýstárlegar hugmyndir, óhljóð og tónlist sem þú hefur aldrei heyrt. Í Ólátagarði á íslensk grasrótartónlist griðarstað.
Umsjón: Einar Karl Pétursson og Björk Magnúsdóttir.