16:05
Síðdegisútvarpið
Kýrin Plóma, Toppstöðin fær nýtt hlutverk og Jón Erik slær í gegn á Olympiuleikum

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Í dag fór fram svigkeppni karla á Vetrarólympiuleikunum á Ítalíu og áttum við Íslendingar einn fulltrúa í keppninni Jón Erik Sigurðsson.  Aðstæður voru vægast sagt mjög krefjandi í fyrri ferð keppninnar og svo fór að um helmingur náði ekki að klára fyrri ferð.  Það gerði hins vegar okkar maður sem var með þrítugasta besta tímann eftir fyrri ferð sem þýddi að hann fór fyrstur niður þá seinni og endaði samanlagt í 25 sæti sem er besti árangur Íslendings á Olympiuleikum í alpagreinum í 20 ár.  Systir hans Agla Sigurðardóttir var meðal áhorfenda og við ætlum að heyra í henni hljóðið í henni

Á morgun fer fram málþing þar sem verður fjallað um álitamál um gjaldtöku á ferðamannastöðum. Málþingið fer fram í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi undir yfirskriftinni:  GJALDSKYLDA – þjónustugjöld eða þjórfé?- Gjaldtaka á ferðamannastöðum – hlutverk, ábyrgð, réttindi, skyldur.

Þar munu fulltrúar ólíkra sjónarhorna ræða hvernig tryggja megi að gjaldtaka byggi á skýrum forsendum og stuðli að raunverulegum ábata fyrir staði, samfélög og gesti.

Margrét Björk Björnsdóttir, fagstjóri Áfangastaða- og Markaðsstofu Vesturlands ætlar að ræða við okkur um málþingið og undirbúning fyrir þeirra sólmyrkvann í ágúst en búist er við miklum fjölda á svæðið. Við hringdum í hana.

Það hafa verðið vandræði í Landeyjarhöfn og Herjólfur hefur ítrekað þurft að sigla til Þorlákshafnar - Framkvæmdastjóri Herjólfs er Ólafur Jóhann Borgþórsson var á línunni

Fyrir helgi var greint frá því að borgarráð hafi samþykkt kaupsamning þar sem Toppstöðin ehf. kaupir Toppstöðina í Elliðaárdal af Reykjavíkurborg en endanlegt kaupverð er um 440 milljónir.  Borgin hefur sagt að í húsinu sé stefnt að því að koma á fót miðstöð útivistar sem styður við fjölbreytta starfsemi í Elliðaárdal. Hilmar Ingimundarson og Halldór Jensson fulltrúar kaupanda komu til okkar.

Kýrin Plóma frá Gunnbjarnarholti setti Íslandsmet á síðasta ári en hún mjólkaði mest allra kúa á árinu. Arnar Bjarni Eiríksson, kúabóndi í Gunnbjarnarholti í uppsveitum Árnessýslu sem er með hátæknifjós þar og framleiðir hrepppamjólk við hringdum í hann.

Listamaðurinn Örn Smári Gíslason hannar frímerki og plötuumslög. Sjálfsagt dreymir einhverja um að feta í þessi fótspor. En hvernig hannar maður slíkt? Það hljóta að vera einhverjar reglur um frímerki t.d. Örn Smári kíkti á okkur.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,