
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

07:30

08:30

Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.

Morgunleikfimi með Halldóru Björnsdóttur.


Veðurstofa Íslands.

Umsjón: Kristján Kristjánsson.


Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Dánarfregnir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Fólk úr ýmsum áttum flytur stuttar hugleiðingar sem tengjast sama umfjöllunarefni.
Hugleiðingu dagsins um vind flytur Búi Bjarmar Aðalsteinsson, hönnuður og hjólagarpur.

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Matvælastofnun fjarlægði mörg hundruð dýr af sveitabænum Brimnesi í Eyjafirði í sumar vegna vanhirðu og slælegrar meðferðar. Bæði var um að ræða kindur, hross og hrúta segir bóndinn á bænum, Arnar Gústafsson.
Hann segir stofnunina meðal annars hafa fjarlægt 450 kindur, 26 hrúta og 36 hross. Kindurnar voru færðar í sláturhús um helgina, segir Arnar, og hrútunum var lógað og þeir notaðir í moltu segir bóndinn. Matvælastofnun hefur reynt að selja hrossin eftir að þetta inngrip átti sér stað og einhverjum mun hafa verið lógað.
Að mati Arnars fer MAST fram með ofríki og einelti í málinu og telur hann að ríkisstofnunin ætli sér að knésetja hann og hans búskap í Brimnesi.
Rætt er við Arnar og forstjóra Matvælastofnunar, Hrönn Jörundsdóttur í þættinum. Hrönn segir sjaldgæft að stofnunin fari í vörslusviptingu á dýrum á sveitabæjum og að þetta sé þrautalending þegar önnur úrræði hafa ekki dugað.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Sannar sögur úr íslenskum samtíma.
Æskuvinirnir Kristinn Rúnarsson og Þorsteinn Guðjónsson lögðu í örlagaríkan leiðangur á einn hæsta tind heims í Himalajafjöllunum árið 1988. Í leiðangrinum gerðust óvæntir atburðir sem aldrei hafa verið upplýstir að fullu. Röð tilviljana gerði það svo að verkum að þetta dularfulla mál kom aftur upp á yfirborðið fyrir nokkrum árum.
Viðmælendur: Rúnar Guðbjartsson, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, Kristinn Steinar Kristinsson, Hafdís Guðjónsdóttir, Jón Geirsson, Leifur Örn Svavarsson og Steve Aisthorpe.
Dagskrárgerð: Þóra Tómasdóttir og Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir


Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Pétur Grétarsson ræðir við Þóri Baldursson orgelleikara, píanóleikara, harmonikuleikara, útsetjara og tónskáld.
Þórir segir frá nýjum hljóðritunum sínum sem meðal annars leiða saman 45 ára gamlar upptökur við splunkunýjar upptökur.
Hann segir líka frá endalausri forvitni sinni um tónlist og tækni og frá tónleikum sem hann heldur með hljómsveitinni Gömmum í Austurbæjarbíói í16. október nk.
Tónlistin í þættinum er öll eftir Þóri nema fyrsta lagið, sem er eftir Stefán S. Stefánsson:
Af Niðafjöllum
It all gets back to you
Soft Shue
I can show you better love
Chain
Gammadans

Það er ekki að ófyrirsynju að níundi og næst yngsti sonur Johanns Sebastians er oft kallaður Bückeburg-Bach. Hann starfaði nefnilega allan sinn feril við furstahirðina í þessari litlu borg í Neðra-Saxlandi, hálfan fimmta tug ára. Þar lék hann á sembal og stjórnaði hirðhljómsveitinni, sem þótti ein sú besta í Þýskalandi, og samdi hljómborðsverk, bæði fyrir byrjendur og lengra komna, tríósónötur, sinfóníur, veraldlegar og kirkjulegar kantötur og óratóríur, m.a. í samvinnu við skáldið og heimspekinginn Johann Gottfried Herder, einn af guðfeðrum þýsku rómantíkurinnar. Johann Christoph Friedrich naut þess, eins og eldri bræður hans, að hafa gengið fyrstu skrefin á tónlistarbrautinni við hlið föður síns. Hann átti afar auðvelt með að tileinka sér ýmiskonar stíleinkenni, eftir því sem aðstæður og smekkur kröfðust, en fetaði líka gjarna ótroðnar slóðir í tónlist sinni. Veigamikill hluti af æviverki hans glataðist í seinni heimsstyrjöldinni en þó hafa nógu mörg verka hans varðveist til að hægt sé að gera sér góða grein fyrir framlagi hans til tónlistarinnar. Í minningarorðum sem voru rituð um Johann Christoph Friedrich var hann sagður hafa verið vinnusamur tónsmiður, ætíð til þjónustu reiðubúinn, heiðvirður maður og hjartahlýr. Sonur hans, Wilhelm Friedrich Ernst Bach, var eina barnabarn Johanns Sebastians sem náði frama í tónlist og síðasti fulltrúi Bach-ættarinnar sem lét að sér kveða á því sviði.
Umsjón: Halldór Hauksson
Fughetta über H.C.F.B.B.A.C.H. - Johann Christoph Friedrich Bach -Marie-Claire Alain orgel
Sónata í E-dúr f. tvær flautur og
fylgirödd, 1. kafli (Allegretto) - Carl Philipp Emanuel Bach - Valerie Balssa flauta, Jean-Pierre Pinet flauta, Hager Spaeter-Hanana selló og Blandine Rannou - semball
Þriggja radda ricercar úr Tónafórninni - Johann Sebastian Bach - Michael Behringer fortepianó
Úr kantötunni Cassöndru-Johann Chrietoph Friedrich Bach - Lena Susanne Norin alt og Das Kleine Konzert; stjórnandi: Hermann Max
Sinfónia I Bdúr,3. kafli(Allegro assai) - Johann Christoph Friedrich Bach - Neues Bachisches Collegium Musicum ; stjórnandi:Burkhard Glaetzner
Sellósónata i Adúr, 1. kafli (Larghetto) - Johann Christoph Friedrich Bach - Anner Bylsma violoncello piccolo og Bob van Asperen orgel
Mótettan Wachet auf, 1. hluti - Johann Christoph Friedrich Bach - The Choir of Trinity College, Cambridge, stjórnandi: Richard Marlow
Kantatan Die Amerikanerin, seinni hluti -Johann Christoph Friedrich Bach - Magdalena Kozena mezzósópran og Musica
Antiqua Köln; stjórnandi: Reinhard Goebel
So oft ich meine Tobackspfeife, BWV 515 - Úr nótnabók Önnu Magdalenu Bach 1725 - Johannes-Christoph Happel bariton og Michael Behringer semball
Prelude to Einstein on the Fritz (S. e=mt2) - P.D.Q. Bach - The Greater Hoople Area Off-Season
Philharmonic; stjórnandi: Walter Bruno
Duetto Comico - Der Dichter und der Komponist - Wilhelm Friedrich Ernst Bach - Markus Schaefer tenór, Ekkehard Abele bassi og Ludger Rémy fortepianó.
Sinfonia f G-dúr, 3. kafli (Allegro) - Witnelm Friedrich Ernst Bach - Das Kleine Konzert; stjórnandi: Hermann Max

Útvarpsfréttir.

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.


Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Nokkur vel valin lög
Nokkur vel valin lög
Lagalistinn:
B.G. og Ingibjörg - Þín innsta þrá.
Scott Walker - Next.
Jórunn Viðar - Svipmyndir fyrir píanó : 8. Mazurka. (Páll Ísólfsson)
Gyða Valtýsdóttir - Safe to love.
Sigurður Flosason, Anna Gréta Sigurðardóttir - Some other time (with Sigurður Flosason).
Mótettukórinn - A Hymn to the Virgin. (B. Britten)

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.

Hljóðritun frá tónleikum Il Pomo d'Oro hljómsveitarinnar á Musica Antiqua hátíðinni í Brügge í Belgíu, 31. júlí sl.
Á efnisskrá:
-Klingeln, Rascheln, Knistern eftir Siebe Thijs - frumflutningur.
-Sinfónía nr. 20 í D-dúr, K. 133 eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
-Hornkonsert nr. 3 í Es-dúr, K. 447 eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
-Sinfónía nr. 39 í Es-dúr K. 543 eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
Einleikari: Johannes Hinterholzer.
Stjórnandi: Maxim Emelyanychev.
Umsjón: Pétur Eggertsson.
Sannar sögur úr íslenskum samtíma.
Æskuvinirnir Kristinn Rúnarsson og Þorsteinn Guðjónsson lögðu í örlagaríkan leiðangur á einn hæsta tind heims í Himalajafjöllunum árið 1988. Í leiðangrinum gerðust óvæntir atburðir sem aldrei hafa verið upplýstir að fullu. Röð tilviljana gerði það svo að verkum að þetta dularfulla mál kom aftur upp á yfirborðið fyrir nokkrum árum.
Viðmælendur: Rúnar Guðbjartsson, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, Kristinn Steinar Kristinsson, Hafdís Guðjónsdóttir, Jón Geirsson, Leifur Örn Svavarsson og Steve Aisthorpe.
Dagskrárgerð: Þóra Tómasdóttir og Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir


Að loknum 15. lestri Völsunga sögu ræðir Jórunn Sigurðardóttir við Kristján Árnason, málfræðing, um þróun ríms og stuðlasetningar í skáldskap, einkum mikillar notkunar stuðla í norður álfu en ríms sunnar í álfunni (15,75 mín.)
Frumflutt 14.04.1993


frá Veðurstofu Íslands

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Útvarpsfréttir.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

07:30

08:30

Létt spjall og lögin við vinnuna.



Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Útvarpsfréttir.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.



Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.


Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Léttir tónar óma úr eldhúsinu.

Fréttastofa RÚV.

Bein útsending frá stefnuræðu forsætisráðherra á Alþingi.
Útsending frá Alþingi hefst kl. 19:40.


Umsjón: Andrea Jónsdóttir.