17:00
Bowie í Berlín
Maðurinn sem féll til jarðar
Bowie í Berlín

Fimm þátta sería þar sem Valur Gunnarsson fjallar um breska tónlistarmanninn og lagahöfundinn David Bowie og árin hans í Berlín.

Frá upphafi hafði Bowie komið fram í hinum ýmsu gervum, en svo virtist sem hann óttaðist að vera hann sjálfur. Hann leikur geimveru sem á erfitt með að aðlagast mannlegu samfélagi í myndinni „The Man Who Fell to Earth,“ en leikstjórinn varaði hann við að erfitt yrði að komast úr hlutverkinu. Bróðir hans hafði þjáðst af geðklofa og framdi sjálfsmorð, sem hafði mikil áhrif á líf og list David Bowie. Í Berlín vinnur hann bug á eiturlyfjafíkn sinni, eignast nýjan bróður í kolleganum Iggy Pop og nær hægt og rólega tökum á tilverunni.

Umsjón: Valur Gunnarsson.

Var aðgengilegt til 17. september 2023.
Lengd: 50 mín.
e
Endurflutt.
,