Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Séra Sigurvin Lárus Jónsson flytur.
Útvarpsfréttir.
Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínill vikunnar er hljómplatan Ram frá árinu 1971 með þeim heiðurshjónum Paul og Lindu McCartney.
Umsjón: Guðmundur Pálsson.
Hlið 1:
Too Many People
3 Legs
Ram On
Dear Boy
Uncle Albert / Admiral Halsey
Smile Away
Hlið 2:
Heart Of The Country
Monkberry Moon Delight
Eat At Home
Long Haired Lady
Ram On
The Back Seat Of My Car
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Stefán Jónsson.
Stefán Jónsson, fréttamaður, ræðir við Hermann Jónsson frá Bjargi í Flatey, Héðinn Maríusson og Einar Sörensen, á Húsavík.
(Frá 10. janúar 1968)
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Kristján Kristjánsson.
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Guðný Eyjólfsdóttir Vestfjörð fæddist á köldu vori árið 1888 og ólst upp í torfkofa í Nauthólsvík. Upp úr tvítugu sigldi hún til Kaupmannahafnar þar sem hún vann láglaunastörf, varð einstæð móðir, komst í kast við lögin og gerðist spákona og heilari yfirstéttar Kaupmannahafnarborgar. Hún upplifði gríðarlegar breytingar á heiminum og nokkrum dögum áður en hún lést barst ómurinn af tónleikum Elton John í Tívolí inn um gluggana heima hjá henni á Vesturbrú.
Umsjón: Þórdís Gísladóttir.
Samsetning og framleiðsla: Þorgerður E. Sigurðardóttir.
Í öðrum þætti af fimm um Guðnýju Eyjólfsdóttur Vestfjörð segir frá fyrstu för systranna Guðnýjar og Jósefínu til Kaupmannahafnar og heimför þeirra með ungbarn sem deyr í hafi. Einnig er rætt um íslenskar konur í Kaupmannahöfn á fyrstu áratugum 20. aldar. Þá er fjallað líf Guðnýjar sem var þyrnum stráð framan af, hún fæddi þriðja óskilgetna barnið, lenti í fangelsi og var heimilislaus. Á 4. áratugnum fer hagur hennar að vænkast og hún byrjar að nota dulræna hæfileika sína fyrir alvöru.
Í þættinum er rætt við Ragnhildi Vigfúsdóttur MA í sagnfræði, Þórarin Óskar Þórarinsson og Guðnýju Emmu Nielsen. Rikke Houd tók viðtalið við Guðnýju á heimili hennar í Borgundarhólmi. Einnig heyrast upptökur sem varðveittar eru á gagnagrunninum Ísmús þar sem Hallfreður Örn Eiríksson þjóðfræðingur ræðir við Jósefínu Eyjólfsdóttur spákonu. Ísmús er í umsjá Tónlistarsafns Íslands, Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Landsbókasafns Íslands Háskólabókasafns. Í þættinum heyrist tónlist úr smiðju The Caretaker, Kai Normann Andersen, o.fl.
Útvarpsfréttir.
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur. Þátturinn er í umsjá Sunnu Valgerðardóttur og Höskuldar Kára Schram og er á dagskrá á laugardögum kl. 11-12.
Gestir þáttarins eru Friðrik Jónsson formaður BHM, Lára Ómarsdóttir samskiptastjóri og fyrrverandi fréttakona, og Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR.
Umsjón: Höskuldur Kári Schram
Tæknimaður: Jökull Karlsson
Hádegisútvarp í umsjón þular.
Íslenskt lag eða tónverk.
Útvarpsfréttir.
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Það eru næstum sjö mánuðir liðnir síðan Rússar réðust inn í Úkraínu og það eru allskonar afleiðingar að koma betur og betur í ljós. Orkukreppan og verðbólgan í mörgum ríkjum Evrópu er til dæmis bein og óbein afleiðing af þessum átökum, orkukreppan vegna þeirra viðskiptaþvingana og refsiaðgerða sem Evrópusambandið og önnur vestræn ríki, Ísland þar með talið, hafa sett, bæði á stjórnvöld í Rússlandi og líka á ákveðna einstaklinga sem taldir eru sekir um mannréttindabrot og spillingu. Slíkar aðgerðir, gegn einstaklingum, eru margar hverjar byggðar á löggjöf sem kennd eru við rússneskan lögfræðing sem hét Sergei Magnitsky og maðurinn sem barist hefur fyrir því óslitið síðan 2009 við að koma þessari löggjöf á koppinn víða um heim, heitir Bill Browder. Hann er orðinn heimsþekktur fyrir þessa baráttu sína. Björn Malmquist ræddi við Browder.
Þegar kistu Elísabetar Englandsdrottningar var flogið frá Skotlandi yfir til Lundúna á miðvikudag var fóru sex milljónir inn á vefsíðuna Flightradar24 til að fylgjast með ferðalaginu. Aldrei í sögu vefsíðunnar hafa fleiri fylgst jafn grannt með ferðalagi einnar flugvéla. Áhorfið á sjónvarpsþættina The Crown gegnum streymisveituna Netflix hefur aukist um 800 prósent frá því að Elísabet lést. Þá hafa verið fluttar óteljandi fréttir af öllu sem tengist andláti Elísabetar og valdaskiptum í Bretlandi, fréttir um allt frá nýlendustefnu til samloka með marmelaði. Birta Björnsdóttir fjallar um andlát Elísabetar.
Heimskviður er fréttaskýringaþáttur um allt sem gerist ekki á Íslandi. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.
Arthúr Björgvin Bollason skyggnist yfir svið Íslendingasagna, fer á nokkra sögustaði og ræðir m.a. við fólk sem þekkir sögusvið sagnanna.
Í þættinum er rölt með Skúla Alexanderssyni á slóðir Víglundar sögu og rifuð upp ástarsag Víglundar og Ketilríðar sem gerist undir Jökli. Sömuleiðis er rætt við Þorleif Hauksson, íslenskufræðing um þann stíl sem er á sögunni. Einnig heyrist í Hinum íslenska Þursaflokki.
Lesari með umsjónarmanni er Valur Freyr Einarsson.
Umsjón: Arthur Björgvin Bollason.
Þættir á vegum háskólanema.
Leiðbeinandi: Ásdís Emilsdóttir Petersen.
Hvernig hefur trans fólk birst í kvikmyndum í gegnum árin og hvernig móta þær birtingarmyndir hugmyndir um trans fólk? Í þættinum er rætt við Guðrúnu Elsu Bragadóttur bókmenntafræðing sem hefur lagt áherslu á kvikmynda- og hinseginfræði í rannsóknum sínum og Örnu Magneu Danks trans konu sem starfar sem kennari, leikkona og áhættuleikstjóri. Rætt er um birtingarmyndir trans fólks í kvikmyndum og þær breytingar sem eiga sér stað í hugmyndum um trans fólk.
Þáttagerð: Unnur Steina Knarran Karls, nemandi í bókmenntafræði.
Leiðbeinandi: Dr. Ásdís Emilsdóttir Petersen.
Gestur úr Mannlega þættinum talar um bækur.
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum var Guðrún Óla Jónsdóttir, blaða- og söngkona. Hún sagði okkur hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina.
Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.
Fjallað verður um nýtt torg á Hlemmi. Þegar húsið var tekið í notkun undir nafninu Áningarstaðurinn Hlemmi árið 1978 var þar blómaverslun, blaða- og ritfangaverslun, snyrtivöruverslun, skartgripaverslun, leikfangaverslun, ísbúð og sjoppa. Húsið átti að vera gróðursælt og stór svæði fóru undir lifandi plöntur í beðum, mikil dagsbirta lék um húsið og gluggarnir stóru sem mynda útveggi hússins tengdu starfsemina inni við lífið á götunum í kring. Því er ekki að neita að Hlemmur drabbaðist niður, en sú ákvörðun að breyta því í mathöll sló í gegn, en Hlemmur hélt einnig áfram að vera biðskýli fyrir fólk sem ferðast með strætó. Samkeppni um Hlemmtorg var haldin fyrir nokkrum árum, við höfum svo sem fjallað um það hér á Flakkinu en með tilkomu Borgarlínu verður þetta mikil breyting, bæði fyrir gesti og gangandi, íbúa og einkabíla. Við ræðum við Pawel Bartoszek varaformann umhverfis- og skipulagsráðs og Hrafnkel Á Proppé sem gegnir forstöðu verkefnis um Borgarlínu. En hönnuður hins nýja Hlemmtorgs er Dagný Bjarnadóttir landslagsarkitekt hjá DLD, í samvinnu við sænsku arkitektastofuna Manda Works og er Martin Arfalk er aðalhönnuðurinn. Umsjón: Lísa Pálsdóttir.
Útvarpsfréttir.
Orðanna origami á Rás 1. Hugað að öllu mögulegu á sviði bókmenntanna.
Í þættinu Orð um bækur er rætt við Maríu Elísabetu Bragadóttur um skáldskap, skáldskaparaðferðir, hvað það er mikilvægt að eiga ritvin og fleira.
María Elísabet hefur á tæplega tveimur árum sent frá sér tvær bækur, Herbergi í öðrum heimi og Sápufuglinn, smásagnasafn annars vegar og þrjár smásögur hins vegar.
Þá er í þættinum sagt frá bókunum tveimur sem Danir tilnefna til Barna - og ungmennabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Þetta eru hvort tveggja myndabækur, annars vegar O PO Poi eftir Jan Oksböl Callesen, sem fjallar um að segja sögu og hlusta á sögu og hins vegar Den om Rufus eftir Herman Ditte, Thorbjörn Petersen og Mårdön Smet, sem segir frá refnum Rufusi og ferðalögum hans á milli borgar og villtrar náttúru.
Umsjónarmaður: Jórunn Sigurðardóttir
Lesari: Gunnar Hansson
Fimm þátta sería þar sem Valur Gunnarsson fjallar um breska tónlistarmanninn og lagahöfundinn David Bowie og árin hans í Berlín.
Frá upphafi hafði Bowie komið fram í hinum ýmsu gervum, en svo virtist sem hann óttaðist að vera hann sjálfur. Hann leikur geimveru sem á erfitt með að aðlagast mannlegu samfélagi í myndinni „The Man Who Fell to Earth,“ en leikstjórinn varaði hann við að erfitt yrði að komast úr hlutverkinu. Bróðir hans hafði þjáðst af geðklofa og framdi sjálfsmorð, sem hafði mikil áhrif á líf og list David Bowie. Í Berlín vinnur hann bug á eiturlyfjafíkn sinni, eignast nýjan bróður í kolleganum Iggy Pop og nær hægt og rólega tökum á tilverunni.
Umsjón: Valur Gunnarsson.
Kvöldfréttir útvarps
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Haustið 1983 skaut sovésk orrustuþota niður suðurkóreska farþegaþotu, Korean Airlines flug 007 frá New York til Seúl, með þeim afleiðingum að allir um borð fórust.
Veðurstofa Íslands.
Dánarfregnir.
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Dick Haymes syngur lögin Cheek To Cheek, How Deep Is The Ocean og Isn't This A Lovely Day (to be caught in the rain?). Kvintett Herb Ellis leikur lögin Soft Winds, Royald Garden Blues, Big Red's Boogie Woogie, Blues For Janet, Patti Cake og Pap's Blues. Art Tatum leikur lögin Once In A While, All The Things You Are og Somebody Loves Me. Thad Jones & Mel Lewis stórsveitin flytur lögin Ahunk Ahunk, Tiptoe, Big Dipper, Tow Away Zone og Quietude.
Sveinn Sæmundsson ræðir við fólk víðsvegar af landinu. Þáttaröðin var á dagskrá útvarpsins 1969 til 1972.
Sveinn Sæmundsson ræðir við Brynjólf Jónsson, stýrimaður, frá Brekku í Mýrdal. Fyrri hluti.
Áður á dagskrá 2. mars 1972.
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Í Litlu flugunni er leikin allskonar tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslö. Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
(Áður á dagskrá 2010-2011)
Þrír harmóníkuleikarar skemmta hlustendum: Toralf Tollefsen frá Noregi, Gísli H. Brynjólfsson úr Eyjum og Art van Damme frá Bandaríkjunum. Meðal laga er Vals úr Breiðfirðingabúð, eftir Ólaf Th. Ólafsson, í flutningi Gísla og félaga; Pennies from heaven með Art van Damme og Those were the days með Toralf Tollefsen.
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur. Þátturinn er í umsjá Sunnu Valgerðardóttur og Höskuldar Kára Schram og er á dagskrá á laugardögum kl. 11-12.
Gestir þáttarins eru Friðrik Jónsson formaður BHM, Lára Ómarsdóttir samskiptastjóri og fyrrverandi fréttakona, og Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR.
Umsjón: Höskuldur Kári Schram
Tæknimaður: Jökull Karlsson
Útvarpsfréttir.
Tónlist af ýmsu tagi.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Kristján Freyr stekkur í skó Felix Bergssonar, rabbar við hlustendur í morgunsárið og spilar huggulega tóna sem hæfa laugardagsmorgnum. Hin bráðskemmtilega Fimma er á sínum stað þar sem góðir gestir segja frá fimm skemmtilegum atriðum sem hafa breytt lífi þeirra
Felix Bergsson fór Fram og til baka að vanda og fékk Bjarnheiði Hallsdóttur formann Samtaka ferðaþjónustunnar í morgunkaffi. Hún sagði af fimm mikilvægum ákvörðunum sem áttu eftir að hafa jákvæð og góð áhrif á líf hennar.
Nanna Gunnars kom svo í spjall um sérviðburði á RIFF sem byrjar þann 29. september.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Morgunkaffið með Gísla Marteini Baldurssyni og Björgu Magnúsdóttur verður á dagskrá alla laugardaga. Þau fá skemmtilega gesti í hljóðver, spila úrvals tónlist og halda uppi góðri stemmningu fyrir hádegi. Þau hella líka upp á og fylgjast vel með því sem er að gerast í þjóðfélaginu og eru í góðu sambandi við landsbyggðina.
Björg Magnúsdóttir og Gísli Marteinn Baldursson spila létta og skemmtilega tónlist- með örlitlu kvikmyndaívafi vegna þess að um helgina er heimildamyndahátíð í Bíó Paradís og Eddan á sunnudeginum.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Atli Már Steinarsson rabbar við hlustendur og leikur létta tónlist.
Atli það ekki er farinn aftur af stað eftir langt og gott sumarfrí, góð tónlist, góðir hlustendur og almennt hrikalega góð stemmning á þessum frábæra laugardegi.
Lagalisti:
Retro Stefson - Qween
Jessie Ware - Free Yourself
Þursaflokkurinn - Nútíminn
K.Óla - Dansa meira
Beyonce - Break my soul
Bastille - Shut off the lights
Goldfrapp - Strickt Machine
Calvin Harris & Justin Timberlake & Pharrell & Halsey - Stay with me
Sigga og Grétar - Í larí ei
Fleetwood Mac - Everywhere
Steve Lacy - Bad habit
Védís - Blow my mind
Rihanna - Love on the brain
Sugarcubes - Hit
Jói P X Pally - Face
Sssól - Dísa
GDRN - Áður en dagur rís ft. Birnir
Foo Fighters - Love dies young
Benni Hemm Hemm & Urður & Kött grá pjé - Á óvart
Beck - Tropicalia
Lily Allen - Ldn
Daði & Gagnamagnið - Think about things
Snorri Helgason - Falleg
Nýríki Nonni - Til þingmannsins
Gus Gus - Ladyshave
Hvanndalsbræður - X ft. Ása
Emmsjé Gauti - Hvað er að frétta?
Iron Butterfly - In-A-Gadda-Da-Vida
Phoenix - Alpha Zulu
Marcus and Martinus - Belinda
Sálin hans jóns míns - Krókurinn
The Thrills - Big Sur
Dúkkulísur - Svarthvíta hetjan mín
Ásgeir Trausti - Dýrð í dauðaþögn
Áhöfnin á Skímó VE - Draumur um Þjóðhátíð
Stevie Nicks - Edge of seventeen
Birgir Hansen - Poki
First aid kit - Emmylou
Slagarasveitin - Hestamót
The Moly Peaches - Anyone else but you
Elton John - I'm still standing
Lizzo - 2 Be loved (Am I ready)
Hljómsveit Ingimars Eydal - Í sól og sumaryl
Bríet - Fimm
Donna Summer - Hot Stuff
Bee Gees - Nights on broadway
Umsjón: Atli Már Steinarsson
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Tónlistinn er vinsældalisti Íslands. Listinn er samantekt á mest spiluðu lögunum á útvarpsstöðvunum Bylgjunni, FM957, X-inu 977, Rás 2 og K100, sem og á streymisveitum. Listinn er unninn af Félagi hljómplötuframleiðenda og er á dagskrá Rásar 2 alla sunnudaga.
Umsjón: Helga Margrét Höskuldsdóttir.
Vinsælustu lögin á Íslandi vikuna 10. -17. september.
Útvarpsfréttir.
Kvöldfréttir útvarps
Umsjón: Rósa Birgitta Ísfeld.
Fréttastofa RÚV.
Það eiga allir einhverjar góðar og jafnvel trylltar minningar af dansgólfinu þar sem diskókúlan snýst. Við spilum dansmelli áratuganna og kyndum upp í minningum hlustenda. Við rifjum upp skemmtistaði, ákveðin ár eða gullaldartímabil þar sem dansgólfin voru troðfull af gleði og látum.
Þátturinn geymir dagskrárliði eins og Diskóþrennuna, Dansárið er, Skemmtistað fortíðar og íslenska lagið. Gestur þáttarins fær nafnbótina Veislustjórinn og rifjar upp trylling á dansgólfinu og velur nokkur lög. Að lokum er kokteill kvöldsins hristur fyrir hlustendur, nokkurra laga syrpa með lögum úr ýmsum áttum.
Umsjón: Kristján Helgi Stefánsson og Helgi Már Bjarnason
Diskókúlan snýst í Efstaleitinu á laugardagskvöldum þar sem við kyndum uppí minningum hlustenda af dansgólfinu.
Þátturinn hefst að vanda með diskóþrennunni og síðan förum við út í frímínutur þar sem við spilum dansslagara úr öllum tímabeltum diskókúlunnar.
Við förum síðan aftur í tímann og heimsækjum aldamótaárið 2000 og svo förum við á skemmtistaðinn Hollywood í ca ágúst 1980.
Gestur þáttarins, þ.e. veislustjóri kvöldsins, er plötusnúðurinn Daddi Diskó sem hefur spilað og skemmt fólki í meira en fjóra áratugi og hefur án efa sögur að segja.
Þvínæst fikrum við okkur að barnum og hristum "Kokteil kvöldsins", sem er syrpa með slögurum sem eiga það sameiginlegt að hafa fyllt dansgólf.
Við endum þáttin að vanda á einu íslensku og einu glænýju úr þættinum PartyZone.
Spjallað við landann og leikin tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.
Útvarpsfréttir.