22:10
Litla flugan
Vals úr Breiðfirðingabúð
Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin allskonar tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslö. Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

(Áður á dagskrá 2010-2011)

Þrír harmóníkuleikarar skemmta hlustendum: Toralf Tollefsen frá Noregi, Gísli H. Brynjólfsson úr Eyjum og Art van Damme frá Bandaríkjunum. Meðal laga er Vals úr Breiðfirðingabúð, eftir Ólaf Th. Ólafsson, í flutningi Gísla og félaga; Pennies from heaven með Art van Damme og Those were the days með Toralf Tollefsen.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 40 mín.
e
Endurflutt.
,