Sjáandinn á Vesturbrú

Fyrstu ár Guðnýjar í Kaupmannahöfn

Í öðrum þætti af fimm um Guðnýju Eyjólfsdóttur Vestfjörð segir frá fyrstu för systranna Guðnýjar og Jósefínu til Kaupmannahafnar og heimför þeirra með ungbarn sem deyr í hafi. Einnig er rætt um íslenskar konur í Kaupmannahöfn á fyrstu áratugum 20. aldar. Þá er fjallað líf Guðnýjar sem var þyrnum stráð framan af, hún fæddi þriðja óskilgetna barnið, lenti í fangelsi og var heimilislaus. Á 4. áratugnum fer hagur hennar vænkast og hún byrjar nota dulræna hæfileika sína fyrir alvöru.

Í þættinum er rætt við Ragnhildi Vigfúsdóttur MA í sagnfræði, Þórarin Óskar Þórarinsson og Guðnýju Emmu Nielsen. Rikke Houd tók viðtalið við Guðnýju á heimili hennar í Borgundarhólmi. Einnig heyrast upptökur sem varðveittar eru á gagnagrunninum Ísmús þar sem Hallfreður Örn Eiríksson þjóðfræðingur ræðir við Jósefínu Eyjólfsdóttur spákonu. Ísmús er í umsjá Tónlistarsafns Íslands, Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Landsbókasafns Íslands Háskólabókasafns. Í þættinum heyrist tónlist úr smiðju The Caretaker, Kai Normann Andersen, o.fl.

Frumflutt

17. sept. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Sjáandinn á Vesturbrú

Sjáandinn á Vesturbrú

Guðný Eyjólfsdóttir Vestfjörð fæddist á köldu vori árið 1888 og ólst upp í torfkofa í Nauthólsvík. Upp úr tvítugu sigldi hún til Kaupmannahafnar þar sem hún vann láglaunastörf, varð einstæð móðir, komst í kast við lögin og gerðist spákona og heilari yfirstéttar Kaupmannahafnarborgar. Hún upplifði gríðarlegar breytingar á heiminum og nokkrum dögum áður en hún lést barst ómurinn af tónleikum Elton John í Tívolí inn um gluggana heima hjá henni á Vesturbrú.

Umsjón: Þórdís Gísladóttir.

Samsetning og framleiðsla: Þorgerður E. Sigurðardóttir.

Þættir

,