Sjáandinn á Vesturbrú

Spákona og miðill

Í þessum þætti heyra af miðilsstörfum Guðnýjar Vestfjörð og afhjúpun falsmiðilsins Önnu Melloni Rasmussen. Falsaðir peningaseðlar frá Þýskalandi nasismans koma við sögu og sagt er frá fyrstu búningum íþróttafélagsins Þróttar.

Í þættinum er rætt við Dalrúnu Kaldakvísl sagnfræðing, Þórarin Óskar Þórarinsson og Guðnýju Emmu Nielsen. Rikke Houd tók viðtalið við Guðnýju á heimili hennar í Borgundarhólmi. Í þættinum heyrist tónlist úr smiðju Kai Normann Andersen, Scott Hamilton, Patriciu Brennan og Mary Lattimore. Einnig heyrist í söngkonunum Elsu Sigfúss og Livu Weel.

Frumflutt

24. sept. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Sjáandinn á Vesturbrú

Sjáandinn á Vesturbrú

Guðný Eyjólfsdóttir Vestfjörð fæddist á köldu vori árið 1888 og ólst upp í torfkofa í Nauthólsvík. Upp úr tvítugu sigldi hún til Kaupmannahafnar þar sem hún vann láglaunastörf, varð einstæð móðir, komst í kast við lögin og gerðist spákona og heilari yfirstéttar Kaupmannahafnarborgar. Hún upplifði gríðarlegar breytingar á heiminum og nokkrum dögum áður en hún lést barst ómurinn af tónleikum Elton John í Tívolí inn um gluggana heima hjá henni á Vesturbrú.

Umsjón: Þórdís Gísladóttir.

Samsetning og framleiðsla: Þorgerður E. Sigurðardóttir.

,