
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
7.15 - Suðrænir fuglar fjúka til Íslands
Suðrænir flækingsfuglar eru að verða æ tíðari gestir á Íslandi vegna hlýnandi loftslags og nú síðast sást bognefur sást í Vestmannaeyjum. Þá eru kúhegrar og bjarthegrar einnig algengari sjón en áður fyrr. Suðrænum fuglategundum fjölfag í norðanverðri Evrópu samhliða hlýnandi loftslagi en lægagangurinn virðist einnig hreinlega sópa þessum fuglum til landsins. Yann Kolbeinsson, líffræðingur hjá Náttúrustofu Norðausturlands, verður á línunni og segir okkur frá þessari áhugaverðu þróun. Gustað hefur um bresku konungsfjölskylduna undanfarið og við vitum ekki hvar við eigum að byrja. Spencer jarl, bróðir Díönu prinsessu, hefur gefið út umdeilda bók um ævi systur sinnar og hefur Karl konungur neyðst til að svara fyrir ýmislegt sem kemur þar fram. Þá klóra mörg sér í hausnum yfir endurkomu Harry Bretaprins og Meghan hertogynju af Sussex til Bretlands en þau hafa dvalið vestanhafs síðustu sex ár. Guðný Ósk Laxdal heldur úti Instagram-aðgangnum Royal Icelander og ætlar að fræða okkur um ástir og örlög bresku konungsfjölskyldunnar.
Ísland og Lúxemborg mætast í C-deild þjóðardeildarinnar í dag. Strákarnir hafa verið gagnrýndir eftir frammistöðuna gegn Eistlandi um síðustu helgi og nú þurfa lærisveinar Arnars Gunnlaugssonar að bíta í skjaldarrendur. En við hverjum eigum við að búast? Sparkspekingurinn Hörður Magnússon verður á línunni.
Í gær greindi Vísir frá því að tónlistarmanninum Elvari Orra hafi verið stefnt fyrir að hafa notað hljóðbút í upphafi lagsins „Miklu betri einn“ þar sem heyra má í tveimur stelpum sem rífast hástöfum. Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson, lögmaður Elvars, verður á línunni.
Sífellt fleiri hafa stigið fram og gagnrýnt stríðsrekstur Ísraels á Gasa undanfarið. Rapparinn Macklemore og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra eru á meðal þeirra sem hafa látið í sér heyra og þeim virðist fækka sem rétlæta framgöngu Ísraelshers. Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur verður á línunni.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.