
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Eins og kom fram í Morgunútvarpinu í síðustu viku þá hækkar samkeppni um orku til stórnotenda hækkar verðið til almennings. Halla Hrund Logadóttir og félagar hennar í Framsókn lögðu á dögunum fram tillögu um að tryggja orkuöryggi almennings og stuðla um leið að hagkvæmu og stöðugu verðlagi raforku til almennings. Þessi mál eru á borði Jóhanns Páls Jóhannssonar, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og við fengum hann til okkar og fræddumst um hvar hann stendur í þessu máli.
Börn allt niður í 11 ára gömul þeysast um göturnar á öflugum rafmagnshjólum. Lögreglan á Suðurnesjum hefur verulegar áhyggjur af þessu og segir sum þessara tækja gríðarlega kraftmikil og geti jafnvel náð 100 kílómetra hraða. Þá er í sumum tilfellum tiltölulega einfalt að breyta stillingum tækjanna þannig að þau fari mun hraðar en þau voru stillt á við kaup. Lögreglan biðlar til foreldra að sýna ábyrgð og Sigvaldi Lárusson, aðalvarðstjóri lögreglunnar á Suðurnesjum, var á línunni.
Í Gulum september er lögð áhersla á að auka meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna með kærleika, aðgát og umhyggju að leiðarljósi. Fjallað verður um sjálfsvíg á Íslandi á fundi í fundaröðinni Heilsan okkar í Öskju í Vatnsmýri á morgun. Á meðal þeirra sem taka til máls eru Tómas Kristjánsson, lektor við Sálfræðideild Háskóla Íslands og Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir, verkefnisstjóri embættis landlæknis og þau komu til okkar og ræddu forvarnir og tölfræði.
Heimir Hallgrímsson, þjálfari karlalandsliðs Íra í fótbolta, fékk mikla gagnrýni frá ísraelska knattspyrnusambandinu eftir að hann tjáði sig fyrir leiki Írlands gegn Ísrael í B-deild Þjóðadeildar Evrópu á næstu dögum. Heimi sagði Íra ekki vera að spila með þjóðarmorði, heldur gegn þjóðarmorði og bætti við að þeir væru að gegn Ísrael,ekki með Ísrael. Málið hefur vakið mikla athygli hérlendis og erlendis og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson tók það allar 360 gráðurnar í Morgunútvarpinu.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.