Morgunútvarpið

Forritun fyrir einhverft ungt fólk, banvæn hitabylgja, Paul Watson og ungmenni saka ráðherra um sýndarsamráð

Námslínan Forritun fyrir einhverft ungt fólk er nýtt og sérhannað menntunarúrræði í Háskólanum í Reykjavík sem miðar því veita einstaklingum með einhverfu jöfn tækifæri til náms, starfsþjálfunar og þátttöku í samfélaginu. Bettý Ragnarsdóttir, forstöðukona Háskólaklíníkar Sálfræðideildar HR og Ingunn Unnsteinsdóttir, forstöðukona Opna háskólans, sögðu okkur betur frá þessu.

Hitamet falla víða um Evrópu og alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir minnst 1.300 dauðsföll megi rekja til hitans í álfunni, sem hefur víða farið yfir 40 gráður. Framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO), segir hraðast hlýni í Evrópu, tvöfalt hraðar en heimsmeðaltalið. Hvernig stendur á þessu og hvernig eiga þessi mál eftir þróast? Halldór Björnsson veðurfræðingur fór yfir þessi mál með okkur.

Hvalveiðitímabilið 2026 hófst hér á landi í júní þegar hvalveiðiskipin Hvalur 8 og Hvalur 9 héldu til veiða. Í kjölfarið komst Ísland á radarinn hjá Paul Watson á en skip á hans vegum siglir við íslandsstrendur og varðskipið Þór veitir því eftirför. Watson þessi er einn umdeildasti umhverfissinni heims og hefur beitt ýmsum aðferðum í baráttu sinni gegn hvalveiðum. Kristín Ingvarsdóttir dósent í japönskum fræðum við Háskóla Íslands hefur kynnt sér sögu hvalveiða til hlítar. Kristín kíkti til okkar og fræddi okkur um Paul Watson og stöðu hvalveiða í heiminum í dag.

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, bauð ungmennum víðs vegar af landinu til vinnustofu þar sem markmiðið var þau til móta með ráðherra þá reglugerð sem fyrirhugað er setja um símafrí í skólum og aldurstakmark á samfélagsmiðlum. „Ekkert um ykkur án ykkar,“ sagði ráðherra. eru drög reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda en Ungheill, rödd unga fólksins hjá Barnaheillum, segja engar tillögur úr vinnustofu barnanna hafi ratað í drögin og saka þau Ingu um sýndarsamráð. Karítas Lea Kristjánsdóttir og Indriði Nökkvi Þóreyjarson frá Ungheillum komu til okkar í lok þáttar.

Birt

30. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,