• 00:11:01Með lífið í lúkunum
  • 00:29:22Vélmennavæðingin
  • 00:51:00Prjónað axlarskjól slær í gegn
  • 01:12:10Keir Starmer segir af sér

Morgunútvarpið

Kyringartök í kynlífi, vélmennavæðing, frægasta axlaskjól landsins og bresk stjórnmál

Samtök og stofnanir sem vinna með brotaþolum ofbeldis hafa haft vaxandi áhyggjur af kyrkingartökum hin síðari ár, bæði sem hluta af öðru ofbeldi en líka sem hluta af kynlífi þar sem klámáhrifa gætir. Ranghugmynda gætir um eitthvað til sem heitir öruggar kyrkingar en nýlegar rannsóknir leiða í ljós meiri hættu við þrengja blóðflæði til heilans en áður hefur verið talið. Með lífið í lúkunum er Átak til vekja athygli á þessu og Guðný S. Bjarnadóttir, stjórnarformaður Vitundar, kom til okkar.

Á dögunum fengum við fréttir af þjónustuvélmenni sem hefur tekið til starfa á hjúkrunarheimili í höfuðborginni. Vélmennið fer á milli borða í matsalnum í þeim tilgangi létta á starfsfólki þegar leirtau er tekið af borðum. En hvernig fórum við úr því láta lítil vélmenni ryksuga heimili okkar í þau byrji taka af borðum? Og hvað gerist næst? Arnór Hreiðarsson er vélmennabóndi eigandi Gengils og kom til okkar í spjall.

Axlaskjól í íslensku fánalitunum sem Jökull í Kaleo klæddist á stórtónleikum á Þingvöllum á laugardagskvöld hefur vakið mikla athygli. Jökull gaf frú Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, axlaskjólið eftir tónleikana en eftir stendur gríðarleg umræða á samfélagsmiðlum og helst inni í Facebook-hópnum handóðir prjónarar. Prjónakonan Guðrún Jónína Magnúsdóttir á heiðurinn á axlaskjólinu en hún hefur prjónað fyrir Kaleo áður. Guðrún kom til okkar í prjónaspjall.

Í dag eru 10 ár frá því Bretar kusu sig út úr Evrópusambandinu. Keir Starmer hefur tilkynnt afsögn sína sem leiðtogi Verkamannaflokksins. Hann gegnir embætti forsætisráðherra þar til nýr leiðtogi Verkamannaflokksins verður valinn. Andy Burnham, nýkjörinn þingmaður Verkamannaflokksins í Makerfield-kjördæminu, hefur staðfest framboð sitt til leiðtoga Verkamannaflokksins. Allt stefnir í hann verði næsti forsætisráðherra Bretlands. Bogi Ágústsson rýndi í stöðuna sem er komin upp með okkur.

Birt

23. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,