Morgunútvarpið

Rasismi á Íslandi, leikvellir og staða húsnæðismála eldri borgara

Á landsfundi Landssambands eldri borgara í lok apríl voru samþykktar metnaðarfullar ályktanir um kjaramál og húsnæðismál. Á fundinu var lögð rík áhersla á uppbyggingu hentugs og öruggs húsnæðis fyrir eldri borgara um allt land. Samfélagið allt var hvatt til taka höndum saman henda haldast húsnæðismál eldri borgara í hönd við húsnæðismál yngra fólks. En hvernig er staðan í þessum málum á Íslandi? Björn Snæbjörnsson, formaður LEB, mætti í Morgunútvarpið.

er ljóst kofinn í Vesturbænum, sem við fjölluðum um í síðustu viku og stóð til rífa, fær standa. Eftir stendur hins vegar áhugaverð umræða um leikvelli og tækifæri barna til leika sér utandyra. Aðalheiður Erla Kristjánsdóttir landslagsarkitekt hefur mikla reynslu af hönnun á opnum svæðum og hefur meðal annars skoðað hvar leiksvæðin eru í skipulagi sveitarfélaga. Hún hélt á dögunum erindi um hönnun leiksvæða fyrir Samtök garðyrkjustjóra og gagnrýndi of oft verða þau afgangsstærð. Aðalheiður kom til okkar.

Jón Þorsteinn Sigurðsson stjórnsýslufræðingur birti í gær pistil á Facebook um rasisma sem Lana, eiginkona hans, varð fyrir á dögunum þegar maður öskraði á hana og sagði henni hypja sig úr landi. Jón Þorsteinn sagði slík orð verði ekki til á einum degi heldur vaxi í jarðvegi þar sem sífellt er gefið í skyn sumt fólk þurfi sanna tilverurétt sinn aftur og aftur, þótt þeir vinni, elski, ali upp börn og leggi sitt af mörkum eins og aðrir. Jón kom til okkar og ræddi um rasisma í íslensku samfélagi.

Jóhann Páll Ástvaldsson úr íþróttadeildinni okkar mætir og fer með okkur djúpt ofan í HM karla í fótbolta, sem hefst í júní. Mótið fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó. Leiktímarnir gætu því orðið krefjandi fyrir okkur Íslendinga en Jóhann Páll er með þetta allt saman á hreinu og hann fór yfir hvernig við förum því fylgjast með þessu stærsta heimsmeistaramóti sögunnar.

Birt

21. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,