• 00:13:18Vændi á Íslandi
  • 00:29:19Hatur á hinsegin fólki
  • 00:50:18Sigga Ósk er Ungfrú Ísland
  • 01:15:31Hispurslaus Aron Kristinn

Morgunútvarpið

Vændi á Íslandi,hatursorðræða,Ungfrú Ísland og loksins hispurslaus Aron Kristinn

Hundruð kvenna eru auglýstar í vændi hér á landi, flestar þessara kvenna eru erlendar og margar þeirra þolendur mansals. Þetta kom fram í Kveik í gærkvöldi en þar kom einnig fram kaupendur séu flestir íslenskir karlmenn. Rauða Regnhlífin er hagsmunasamtök sem berst fyrir öryggi og réttindum fólks í kynlífsvinnu á Íslandi. Samtökin tala gegn sænsku leiðinni, sem er til staðar hér á landi og þýðir kaup og milliganga á vændi séu refsiverð en seljanda vændis ekki refsað. Logn Blómdal er stofnandi Rauðu regnhlífarinnar og hán kom til okkar í Morgunútvarpið.

Eftir umræðuna um regnbogafánann í síðustu viku ákvað Sindri Sparkle Freyr stíga á svið í Tjarnarbíói og flytja uppistand um sögu fánans litríka. Kvöldið fór vel og það var mikið hlegið en Sindri segir ýmislegt undarlegt hafa gerst eftir fjallað var um sýninguna í fjölmiðlum. Rúmlega 200 hatursfull ummæli voru skrifuð undir umfjöllunina á einum degi og öryggisvörður var ráðinn um kvöldið. Sindri ætlar koma til okkar og ræða bakslagið sem hefur orðið í málefnum hinsegin fólks.

Sigga Ósk var í síðustu viku kjörin ungfrú Ísland. Við kynntumst Siggu í gegnum tónlistina en hún hefur auðvitað stigið á svið í Söngvakeppninni og komist langt ásamt því troða upp á sviði um allar trissur. Hún er 26 ára, söngkona, kennari og leikkona með B.Ed-gráðu í kennslufræðum og diplómugráðu frá tónsmíðaskólanum LIMPI og nú: Ungfrú Ísland. Sigga kom til okkar í spjall.

Tónlistarmaðurinn Aron Kristinn hefur sent frá sér plötuna Loksins. Við kynntumst honum fyrst í tvíeykinu ClubDub en hann klauf sig úr hljómsveitinni í fyrra og hefur sent frá sér tónlist í eigin nafni síðan. Þeggar lagalisti plötu Arons eru skoðaður sést textarnir eru hispurslausir og við fengum hann í spjall um tónlistina og auðvitað textana.

Birt

29. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,