Morgunútvarpið

Snorri Steinn í drottningarviðtali,Korter í kosningar,áfram stelpur í fótbolta og átak í umferðinni

Reiðhjólabændur vilja sporna við vaxandi fjölda slysa þar sem ekið er á gangandi og hjólandi vegfarendur. Samtökin ætla því í átak í samstarfi við Samgöngustofu, sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu, FÍB, Sjóvá og við fengum reiðhjólabóndann Birgi Birgisson til fara yfir það með okkur.

Engar stelpur sjást á myndböndum sem tekin voru á TM-móti Stjörnunnar undanfarnar tvær helgar en þar kepptu þúsundir barna á aldrinum 4-9 ára í fótbolta. Strákum í 6. flokki var þakkað fyrir komuna með myndskeiði af glæsilegum tilþrifum en stelpum í sama flokki var þökkuð þátttakan með mynd af bangsa. Ingunn Haraldsdóttir, forseti Hagsmunasamtaka knattspyrnukvenna, segir málið vera vonbrigði og því miður ekki einsdæmi. Skemmst er minnast þess mætingin á leik Íslands og Úkraínu í undankeppni HM í fótbolta í síðustu viku var ekki upp á marga fiska og Ingunn kom til okkar ræða um stöðu mála.

Sveitarstjórnarkosningar fara fram 16. maí næstkomandi og Morgunútvarpið hefur kallað eftir meiri látum í kosningabaráttunni. Til taka kosningabaráttuna framundan allar 360 gráðurnar fengum við til okkar Magnús Sigurbjörnsson og Pétur Krogh Ólafsson en þeir stýra saman hlaðvarpinu Korter í kosningar. Það var sett af stað vegna áhuga þeirra beggja á kosningum og löngun til skapa meiri stemningu í kringum þær kosningar sem fram undan eru.

Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta, hefur gert samning um þjálfun liðsins til ársins 2032. Snorri hefur stýrt Íslandi á síðustu þremur stórmótum og endaði liðið í fjórða sæti á EM í byrjun árs, sem er besti árangur liðsins á stórmóti frá árinu 2010. Snorri Steinn kom til okkar og fór yfir framtíð landsliðsins og hvert hann ætlar með það.

Birt

21. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,