• 00:12:36Veik og þreytt dag eftir dag
  • 00:25:07Stóra Bachelorette-málið
  • 00:50:09Meira um mannhvolfið
  • 01:14:26Írland elskar Heimi Hallgríms

Morgunútvarpið

Bachelorette hneyksli og Frosti Logason um Into the Manosphere

Talsvert hefur verið rætt um kvenheilsu og langvinn veikindi kvenna undanförnu en lítið um aðgerðir. Hagsmunasamtök þeirra kvenna og kvára sem lifa við langvinn veikindi segja frá reynslu sinni og mikilvægum aðgerðum til bæta stuðning og þjónustu við þennan hóp á málþingi á Grand Hótel Reykjavíkur í dag klukkan 13. Við ætlum til okkar Nönnu Hlín Halldórsdóttur, rannsóknarlektor við HÍ, og hún deildi með okkur reynslu sinni af kerfinu.

Sjónvarpsstöðin ABC tilkynnti á dögunum 22. þáttaröðin af Bachelorette fari ekki í loftið eftir myndband sem sýnir Taylor Frankie Paul, sem er í aðalhlutverki í þáttunum, ráðast á fyrrverandi kærasta sinn. Aðdáendur þáttanna hafa í kjölfarið fylgst með fréttum af málinu með öndina í hálsinum og miðað við fjölda frétta þá er eðlilegt fólk ringlað. Við fengum til okkar fréttakonuna Ingu Söru Guðmundsdóttir til útskýra málið.

Við höldum áfram umfjöllun okkur um heimildarmyndina Inside the Manosphere eftir Louis Theroux, sem fer með himinskautum á Netflix. Myndin fjallar um umdeilda áhrifavalda sem reyna höfða til ungra karla með því boða einstaklingshyggju, græðgi, ofur-íhaldssamar hugmyndir um karlmennsku í bland við kvenfyrirlitningu, hommahatur og rasisma. Frosti Logason hefur látið sig málið varða og hann kom í Morgunútvarpið í spjall.

Við höfum tekið þá ákvörðun færa íþróttamolann okkar af mánudögum yfir á fimmtudaga. Okkar kona Helga Margrét Höskuldsdóttir mætti því galvösk til okkar og sagði okkur frá hvernig Írar eru taka Heimi okkar Hallgríms en hann er á leiðinni í umspil fyrir HM í fótbolta með írska karlalandsliðið í fótbolta.

Birt

26. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,