Morgunútvarpið

Formaður VG,Undir ísnum,Gæðablóð,Volvo og fólk á flótta frá Barein

Rósa Björk Brynjólfsdóttir var kjörin formaður Vinstri grænna á landsfundi flokksins um helgina. Rósa sneri aftur til liðs við VG árið 2024 en hún var kjörin á þing fyrir flokkinn árið 2016, sagði sig úr honum árið 2020 og gekk til liðs við Samfylkinguna. VG á ekki fulltrúa á þingi og mældist með fjögurra prósenta fylgi í síðasta þjóðarpúlsi Gallup. Flokkurinn stendur því á tímamótum og við fengum nýjan formann í heimsókn til segja okkur hvernig hún ætlar koma VG á kortið á ný.

Kvikmyndin Undir Ísnum verður frumsýnd í vikunni en hún fjallar um vinahóp sem svindlar sér inn í dularfullt verkefni þar sem þeir þurfa í demant á Suðurskautið í gamla sovéska námu. Í fyrstu virðist verkefnið vera einfalt en fljótlega kemur í ljós það er meira sem býr undir ísnum en einungis demanturinn. Leikstjórinn Kristján Sturla Bjarnason og leikararnir Theodór Gísli og Kristján Saenz kíktu til okkar.

Guðlaug Ólöf Sigfúsdóttir reynir með aðstoð Frakka komast frá Barein, þar sem hún hefur búið ásamt fjölskyldu sinni síðastliðin 14 ár. Við heyrðum í henni í Morgunútvarpinu fyrir skömmu en þá kepptist loftvarnakerfið í Barein við skjóta niður eldflaugar Írana, sem þeir skutu landinu eftir Bandaríkin og Ísrael gerðu árásir á Íran. Síðastu nætur hafa sögn Guðlaugar verið hræðilegar í Barein og við könnuðum hvernig ferðalagið gengi.

Það er óhætt segja Róbert Már Runólfsson mikill áhugamaður um bíla. Hann tók þátt í smíða rafmagnskappakstursbíl í náminu í vélarverkfræði í Háskóla Íslands og var á sínum tíma yngsti bílablaðamaður landsins. Róbert starfar í dag hjá sænska bílarisanum Volvo, sérfræðingur í þróunardeild fyrirtækisins, og renndi við í Morgunútvarpinu og sagði okkur hvernig maður fer úr því skrifa um bíl í búa þá til.

Gæðablóð er sýning þar sem rappari úr Vesturbænum, fyrrum knattspyrnumaður úr Garðabænum og tónlistarmaður úr miðbænum sameina krafta sína. Davíð Þór Katrínarson, Jónmundur Grétarsson og Unnsteinn Manuel Stefánsson eiga það sameiginlegt vera rammíslenskir en geta hver um sig rakið uppruna sinn til tveggja heimsálfa. Þeir deila reynslu sinni í sýningunni og sviðsetja atvik úr eigin lífi sem afhjúpa samfélagið á óvæntan hátt. Þeir skrifa allir handritið ásamt leikstjóranum Þóru Karítas Árnadóttur sem kíkti til okkar ásamt Unnsteini.

Birt

10. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,