Í annarri vindátt hefði sinueldurinn í gær getað ógnað vatnsbóli höfuðborgarsvæðisins. Fjölmennt lið slökkviliðsmanna barðist við sinueld við Þingahverfi og Guðmundarlund og tíkst þeim að slökkva eldinn á áttunda tímanum. Það sem virtist í fyrstu ætla að verða takmarkaður eldur varð að lokum mikið bál sem reyndist erfitt að slökkva. Við heyrðum í Brynju Ragnarsdóttur, forstöðumanni vatnsmiðla hjá Veitum.
Við heyrðum í Sævari Helga í síma að þessu sinni. Hann er staddur á sólmyrkvaslóðum fyrir vestan en ætlar að horfa með okkur til himins, eins og hann gerir annan hvern mánudag.
Lilja Alfreðsdóttir var á dögunum kjörin formaður Framsóknarflokksins fyrst kvenna í rúmlega 109 ára sögu flokksins. Framsóknarflokkurinn hefur oft verið með meira fylgi og það er spurning hvernig Lilja ætlar að fara að því að rífa flokkinn í gang. Hún mætti í Morgunútvarpið og sagði okkur það.
Stjörnubíó er ný íslensk heimildarþáttaröð um íslenskar kvikmyndir. Í hverjum þætti tekur Ari Eldjárn fyrir eina sígilda kvikmynd og skyggnist á bak við tjöldin. Rætt er við leikstjóra, handritshöfunda, framleiðendur, leikara, búninga- og leikmyndahönnuði, kvikmyndastjóra, klippara og fleira fagfólk, sem ljóstra upp ýmsum leyndarmálum frá gerð myndanna. Ari kom til okkar ásamt Gunnari Páli Ólafssyni, sem framleiðir þættina með honum.
Í tilefni af konudeginum í gær birti Hagstofa Íslands myndband á Facebook sem sýndi hvernig konur eyða deginum sínum, samkvæmt tímarannsókn Hagstofunnar. Ýmislegt merkilegt kemur þar í ljós, t.d. að konur sofi að jafnaði í tæplega níu tíma á nóttu og eyði rúmlega þremur tímum á dag í afþreyingu og öðrum þremur í að sinna eigin þörfum. Konur á Facebook skildu hvorki upp né niður í þessum tölum og við fengum Anton Örn Karlsson, deidarstjóra félagsmálatölfræði hjá Hagstofunni, til að fara yfir niðurstöðurnar með okkur.