Morgunútvarpið

Stórmeistari,símalaus ungmenni,offita og afþreying í vetrarfríinu

Vetrarfríin eru framundan í mörgum skólum og leikskólum og Borgarbókasafnið er til þjónustu reiðubúið. Þangað geta ráðvilltir foreldrar leitað um helgina kíkt á fjölbreytta dagskrá. Bingó, brandarar, smiðjur, tónlist, ratleikir og margt fleira verður í boði og hún Hólmfríður Ólöf Ólafsdóttir kíkti í Morgunútvarpið og sagði okkur frá þessu.

Fréttir um rykbindiefni landsins hafi klárast á landinu vakti mikla athygli í síðustu viku. Svifryksmengun hefur gert íbúum höfuðborgarsvæðisins lífið leitt og fannst mörgum tímasetningin á rykbindiefnisskortinum bagalegur. En hvað er frétta af þessum máli? Við kröfðumst svara frá G. Pétri Matthíassyni hjá Vegagerðinni.

Símafrí í grunnskólum hefur verið mikið til umræðu undanfarið og Rebekka Lind Guðmundsdóttir, kennari í Kerhólsskóla á Borg í Grímsnesi, er með áhugavert innlegg í umræðuna. Hún er stödd með nemendur í 7. bekk í skólabúðum á Reykjum og þar eru engir símar leyfðir í heila viku. Hún var á línunni og sagði okkur hvernig nemendurnir taka í það.

Heilbrigðisráðherra vill skera upp herör gegn offitu og skoðar meðal annars setja á óhollustuskatt, endurskoða greiðsluþátttöku í þyngdarstjórnunarlyfjum og fjölga meðferðarúrræðum. Hvernig líst minnihlutanum á þingi á þessar tillögur? Eru þau kannski með einhverjar aðrar lausnir á þessum mikla vanda? Sigríður Á. Andersen frá Miðflokknum og Ingibjörg Isaksen frá Framsóknarflokknum eiga sæti í velferðarnefnd Alþingis og þær kíktu til okkar.

Stórmeistarinn Vignir Vatnar hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir frábæran árangur við taflborðið og hversu snjall hann er koma íþróttinni á framfæri á samfélagsmiðlum. Þar sýnir hann líka hvernig hann fór því leggja besta skákmann samtímans, Magnus Carlsen ásamt því birta skemmtilegt efni frá ferðalögum sínum um heiminn. Vignir Vatnar kíkti í Morgunútvarpið.

Birt

19. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,